Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Sjá, efndu til vinnuferðar að Búðum á Snæfellsnesi hegina 27. - 29. júlí 1990, í samvinnu við Náttúruverndarráð, enda eru Búðir á friðlýstu svæði.
Verkefnið var í fyrsta lagi að lagfæra gönguleiðir að Frambúðum og Klettsgötuna, merkja og bæta í stikum. Í öðru lagi að grafa upp gamlan og næstum týndan brunn, sem reyndist vera með sama lagi og Írskrabrunnur á Gufuskálum. Einnig var tínt rusl og að sjálfsögðu náttúruskoðun í fallegu umhverfi og góðu veðri. Heitt var í veðri á laugardeginum og þeir sem mokuðu sandi úr brunninum allan daginn kældu sig í sjónum inn á milli. Farið var með áætlunarbíl og greiddi Náttúruverndarráð þann kostnað.