Vinnuskýrsla vegna starfa SJÁ fyrir Hekluskóga á árinu 2018. Þátttakendur frá Sjá: Grétar Einarsson, Björg Ólínudóttir, Halldór Þ.W. Kristinsson, Helga Óskarsdóttir, Brynhildur Sighvatsdóttir, Jóhanna Harðardótir, Júlía Leví, Jón Olav Fivelstad, Sigríður Rut Skúladóttir, Vigfús Ó. Vigfússon, Þorvaldur Örn Árnason. Sumarið 2018 í stuttu máli. Samtökin hafa aldrei áður gróðursett jafn mikið og á árinu 2018. Undirbúningsvinnan byrjaði fljótlega eftir áramótin með því að stiklingar voru teknir og sagðaðir til. Þeir biðu svo síns tíma vel innpakkir í snjóskafli við hjólhýsið. Mikill jarðklaki var veturinn 20172018 en ekki mikil snjóalög. Við þurftum því nokkrum sinnum að moka yfir stiklingana. Það voraði nokkuð snemma svo vinnan gat hafist nokkuð snemma miðað við hve mikill klaki var í jörðu um veturinn. Sett var niður mikið af stiklingum um vorið og haustið og nokkru af birkifræði var sáð bæði að vori og hausti. Stóra gróðursetningarhelgin var fyrstu helgina í júni en eins næstu árin á undan var gróðursett dagana á undan helginni en þá með færri mönnum og helgina á eftir var svo þessi gróðursetning kláruð. Samtals fóru plöntur úr 72 bökkum niður í það skiptið. Seinna um sumarið fengum við svo viðbótarskammt af birki frá Hekluskógum 50 bakka 67 gata. Þessi hluti var settur niður í nokkrum áföngum. Samtökin verkefni plöntu- og tvær stiklinga. vinnuna
fengu hálfa miljón í styrk frá Ísavia í þetta við Hekluskóga. Sá styrkur var notaður í tækjakaup. Meðal annars létum við útbúa stengur með fótstigi til að setja niður Þær hafa reyst mjög vel, auðveldað og margfalda afköstin við niðursetningu á stklingum. Eiginlega má segja að flöskuhálsinn í þessu verkefni sé núna vinnan sem tekur að útbúa stiklingana. Þessu til viðbótar var fjárfest í geispu og bakkagrind. Við höfum þá tvær bakkagrindur sem auðvelda gróðursetningu þegar staðurinn sem gróðursett er á er fjarri vegi. Fyrir styrkinn fengum við auk þess 26 bakka af birki, 30 pottaplöntur mest af reyni, tvo bakka af loðvíði, 10 pottaplöntur af loðvíði og sitthvað fleira smálegt. Samtals tóku 11 þátt í þessu verkefni hjá samtökunum. Flestir komu einu sinni en Vigfús og Grétar voru að störfum að verkefninu flestar helgar eftir að klaki fór úr jörðu um vorið og alveg fram að