Vinnuskýrsla vegna starfa SJÁ við skógrækt í Þjórsárdal á árinu 2019 Þátttakendur frá Sjá: Grétar Einarsson, Björg Ólínudóttir, Halldór Þ. W. Kristinsson, Jón Olav Fivelstad, Ragnheiður E. Jónsdóttir, Sigríður Rut Skúladóttir, Vigfús Ó. Vigfússon, Þorvaldur Örn Árnason, Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Daníel Orri Óskarsson, Jóhanna Eldey Óskarsdóttir, Hugrún Eva Haraldsdóttir, Sveinn Jóhannsson, Krisrún Ólöf Þorsteinsdóttir. Flestir unnu einn dag, nema Grétar og Vigfús unnu vikum saman og vöktuðu svæðið, hvort heldur fyrir þurrki eða sauðfé og öfluðu plantna og ræktuðu. Árið 2019 í stuttu máli. Árið var í það heila afar hagstætt í skógræktinni hjá okkur. Frost var lítið í jörðu um veturinn og hægt að byrja snemma á vorverkum. Sumarið var mjög hlýtt en að vísu þurftum við að glíma við eitt erfiðasta þurka- sumar sem komið hefur frá því við byrjuðum á þessu verkefni. Við eru hætt að láta slík vandamál trufla starfsemina. Með vökvun þá vaxa trén sem aldrei fyrr. Haustið var hagstætt með vætu og næturfrost seint á ferðinni. Veturinn kom svo fyrr en síðustu ár eða um miðjan nóvember og hélt tökum sínum fast. Helstu tölur yfir það sem var plantað og safnað af fræi eftir tegundum eru eftirfarandi: Gróðursetningar: Birki Ilmreynir Stafafura Sitkagreni Blágreni Kjarrölur Sitkaölur Ryðölur Gráölur Ösp
13228 af því komu 12663 frá Hekluskógum 89 435 207 80 70 70 69 49 310
Lensuvíðir Kamtjatkavíðir Rifs, sólber, glæsitoppur og fl. Samtals
72 19 75 14773
Stiklingar: Asparstiklingar 2035 Gulvíðistiklingar 760 Alaskavíðistiklingar 590 Samtals 3385 Fræ: Birkifræ safnað 10 kg Birkifræ sáð Ilmreynir 5 Stafafura sáð Samtals 22
5 kg 2 kg
kg kg
Samantekt eftir gerðum: Bakkaplöntur Pottar Hnausar Stiklingar Samtals
14130 265 378 3.385 18.158
Birkið: Samtals voru settar niður 13228 birki plöntur úr bökkum þetta árið. Árið áður voru þær 9109 svo viðbótin er 4.119 plöntur eða rúmlega 45%. Þar munaði mestu að plantað var um haustið í fyrsta sinn í mörg ár. Eins og árið áður var nánast eingöngu plantað suðaustan við gömlu Sprengisandsleiðina en að þessu sinni var mest sett niður fyrir utan Vegghamar. Sérstaklega var sett í og við lúpínubreiður. Sluppu fárar undan birkinu jafnvel þótt þær væru lengst úti á sléttunni. Haustplöntunin fór víðar en þar sem enginn áburður var notaður þurfti að setja plönturnar eingöngu í lúpínu eða þokkalega gróið land. Það er undir hælinn lagt hvort þær fái áburð síðar. Stóra plöntunarhelgin var 24. – 28. maí þegar settar voru niður birkiplöntur úr 100 bökkum eða samtals 6700 birki. Nokkur raki var í sandinum eftir rigningu
vikuna á undan. Síðan tók við eitt mesta þurkasumar sem við höfum lent í og hafa þau þó verið mörg. Þetta árið var því ekki nóg að planta heldur þurfti einnig að vökva og það mikið. Það var það þurrt að meira að segja var of þurrt fyrir lúpínuna. Það var eiginlega meiri vinna hjá okkur við að vökva en að setja niður. En samt ekki lúpínuna beint en þær sem voru nálægar birkinu nutu einnig góðs af vatninu og tóku við sér. Þurkatímabilin voru tvö á sumrinu með smá vætu á milli. Það fyrr var ekki alveg þurrt. Sum kvöld kom smá úði sem rétt bleytti yfirborð sandsins þegar best lét. Stundum var náttfall þannig að sandurinn var blautur yfir nóttina en þornaði strax í hitanum næsta morgun. Þessi smá raki virtist nægja þeim plöntum sem fóru í gróið land og í skjóli lúpínu þótt þær væri ekki vökvaðar allt sumarið. Hins vegar uxu þessar plöntur lítið um sumarið án vökvunar og fóru að hausta sig fljótlega í seinna þurkatímabilinu. Þær sem fengu vökvun uxu vel í hitum sumarsins. Ein góð skvetta af vatni virtist nægja til vaxtar birkinu í sandinum sem gróðursett var um vorið til vaxtar en því fleiri því betra. Seinni þurkatíminn var alveg þurr og dugði ekkert annað en að vökva sama dag og sett var niður og helst aftur viku síðar. Í gróðursetningunni um haustið var farið að rigna svo allt sem sett niður um sumarið fékk kærkomna vökvun. Árið áður höfðum við prófað að setja niður Koofed úr Gróðrarstöðinni Mörk og Emblu sem við fengum frá Gróðrarstöðinn Þöll. Það verður spennandi hvernig samburðurinn við plöntur frá Hekluskógum kemur út þegar fram líða stundir. Það kom dálítil reynsla á þetta síðasta vor. Aðfararnótt 11. maí 2019 kl. 5:30 var frostið -6° á mælinum við hjólhýsið sem er í 1,5m hæð yfir jörðu og -3° kl. 7 um morguninn. Næsta nótt leiti fyrst út fyrir að ætla að verða svipuð en milli 1 og 2 um nóttina sló aðeins á frostið vegna komandi lægðar. Nokkrar áhyggur voru um afdrif hins norskættaða Koofeds við þessar aðstæður. Eftir hlýndin næstu vikur á undan var allt farið að gróa og birkið farið að laufgast og aðrar tegundir jafnvel lenga komnar. Þessar áhyggjur reyndust ástæðulausar. Allt birkið óx eins og ekkert hefði í skorist og afföll voru ekki meiri en áður. Hluti af greninu sem var komið úr gróðurhúsinu og út á pallinn á móti sól varði fyrir smá sjokki og var tíma að jafna sig en annað var það ekki. Stiklingarnir:
Þetta árið voru settir niður 2035 asparstiklingar og 1418 víðistiklingar eða samtals 3385 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Nokkuð var sett af asparstiklingum vestan og sunnan við Vegghamar. Drjúgur hluti af asparstiklingum fór í lúpínujaðarinn fyrir austan Dimon og má segja að það verkefni sé langt komið. Eftir er að fyllla uppí nokkrar eyður og setja inn í þar sem afföll hafa orðið. Þessi asparröð nær orðið saman við raðirnar af gulvíðistiklingum
sem Grétar hefur sett niður frá Vegghamri í suður út á sandinn. Lítið frost var í jörðu í byrjun ársins svo hægt var að setja niður stiklinga á þeim stöðum sem stóðu hæst á sléttunni og voru því þurrastir. Þessi vinna stóð með hléum flestar helgar fram á vorið þegar við komumst en féll samt niður þegar var mikill snjór. Það var heilmikið púl að koma stiklingunum niður í hálf freðna jörðina. Fyrst að finna góðan stað, síðan að gera holuna nægjanlega víða eftir þykkt stiklingsins, síðan koma honum niður með aðstoð slaghamars ef þurfti og síðan loka holunni með slaghamrinum eða fætinum. Dagarnir eru stuttir í skammdeginu og afköstin því ekki mjög mikil við þessar aðstæður þótt unnið sé fram í myrkur með höfuðljós. Afköstin voru því ekki mikil um há vetur og oftast í kringum 100 stiklingar á mann. Þegar nær dró vori jukust afköstin þannig að eina helgi í lok apríl fóru niður 509 asparstiklingar og slatti af gulvíði þótt einnig væri unnið að fleiri vorverkum. Vinnu við stiklingana lauk svo í maí byrjun en aftur tekið til við hana um haustið Þá fórum við okkur hægar í stiklingavinnunni. Pottaplönturnar og rótarstungnar plöntur: Settar voru niður 265 pottaplöntur um sumarið. Mikið var sett af sitkagreni í lúpínubrekkuna í norðurhlíð Háholtsskógar. Þessar pottaplöntur komu allar úr eigin ræktun. Aðrar pottapöntur voru reynir, glæsitoppur, gráölur, ryðölur og ýmsar berja- og víðtegundir. Þessar pottaplöntur komu ýmist úr eigin ræktun eða frá Gróðrarstöðinni Þöll. Þær dreifðust víða en samt ekki mjög langt frá vegi eða Sandánni svo hægt væri að vökva. Grá- og ryðölurinn í pottum fór allur í lúpínu við Sandá. Það var eini staðurinn þar sem reynandi var að setja niður svo þorstlát tré. Þau voru svo vökvuð vel nokkrum
sinnum og dugði varla til í þurkunum í sumar. Nokkrar pottaplöntur og skyrdósir úr eigin ræktun voru settar niður af birki og glæsitopp. Við þetta bættist svo 8 pottar frá Þöll af ofvöxnum blendingi af birki og hengibjörk sem fór bara beint í sand með 2 lítrum af skít í nesti og smá áburði ofan á og virtust spjara sig vel í þurkinum með mikilli vökvun. Áfram var haldið með að færa plöntur í hnaus úr vegköntum í Heiðmörk í Þjórárdalinn. Þetta árið var einnig smávegis sótt á Þingvöll. Þegar leið á vorið og um haustið var meira tekið við gatnamótin á Laugarvatni. Þar er sko af nægu að taka. Mest var um stafafuru að ræða en einnig smávegis af greni. Flestar fururnar voru settar niður fyrir utan Hallslaut og eitthvað hjá Vegghamri. Út af þurkum og vindi um sumarið þurfti að vökva þessar furur vel fram yfir mitt sumar. Til að auðvelda vökvunina var gerð skáli í sandinn í kringum fururnar og hún fyllt við hverja vökvun. Þannig náðist að koma vatninu niður allt rótarkerfið. Það er ljóst af útkomunni að það er mun betra að færa plöntur að vori en að hausti við þær aðstæður sem eru á sandinum. Afföll eru minni og haustplöntur sem lifa af verða oftast fyrir einhverjum skemmdum um veturinn. Upphaflega áttu þessar furur að vera utar á sandinum en vegna aðstæðna um sumari var þessi gróðursetning færð nær vegi til að auðveldara væri að vökva. Aðrar bakkaplöntur: Eins og áður var birkið lang stærsti hluti bakkaplantna sem gróðursettar voru sumarið 2019 eða 93,62% af heildarfjölda bakkaplantna. Það hlutfall er með því hæsta sem verið hefur síðustu ár. Aukningin stafar ekki af því að sett var minna niður af öðrum tegundum heldur jókst útplöntun birkis meira heldur en á öðrum tegundum. Aðrar bakkaplöntur voru 1.545 og þar var mest plantað af stafafuru, sitkagreni og ösp. Aspirnar fóru mest í austurjaðarinn á lúpínunni með Dímon þar sem lúpínurnar mynda breiður á litlum svæðum á sandinum. Þeim var plantað þannig að karlaspirnar fóru jaðarinn á lúpínubreiðum. Í miðjar lúpínubreiðurnar voru settar ofvaxnar aspar-kerlingar úr bökkum frá Þöll. Þar var lúpínan stigin niður og aspirnar settar djúpt niður með skóflublaði. Grenið var sett í lúpínuhlíðina í Háholtsskógi
fyrir ofan pottaplönturnar. Stafafuran fór í gamlar kjötmjölsdreifingar fyrir utan Dimon. Aðrar bakkaplöntur fóru nokkuð víða. Fræsöfnun og frædreifing 2019 Árið 2019 telst nokkuð stórt hvað söfnun birkifræs varðar og hefur ekki safnast meira síðan fyrir pestirnar sem hrjáð hafa birkið síðustu ár. Okkur telst til að rúmlega 10 kg hafi verið safnað og helmingnum hefur verið dreift. Mest var safnað í Reykjavík og helstu söfnunarstaðir eins áður Klamratún og nágrenni, Suðurlandsbrautin, Breiðholt, Elliðaárdalur og eftir nokkurt hlé var aftur safnað við Miklubrautina. Smávegis af birki-fræi var safnað í Þjórárdal en þar var almennt ekki mikið að hafa. Þó var eitt tré sem við höfum plantað alveg þakið birkifræi þótt það sé ekki stórt. Það var óþarfi að tína af því. Það sá sjálft um dreifinguna. Til er mynd af því þakið rekklum en því miður var ekki hægt að setja hana í skýrsluna þar sem hún var upp á rönd. Töluvert var safnað af furufræi bæði á vormisseri og haustmisseri. Eftir rakt og kalt sumar 2018 þroskuðust furukönglarir seint svo hægt var að týna þá a.m.k. fram í lok febrúar árið eftir. Þeir virðast opnast mjög seint þegar raki er mikill. Þessu var alveg öfug farið með sumarið 2019 sem var hlýtt og þurrt. Þá vildu könglar sem voru áveðurs opnast október sérstaklega í uppsveitum sunnan lands. Í Grafarvogi var hægt að tína furuköngla fram í janúar þar sem skjól var fyrir norðanáttinni og upp í Heiðmörk var sum staðar hægt að tína fram í byrjun mars Þau fræ sem höfðu frjóvgast árið áður voru almennt vel þroskuð og stór en einnig var mikið af vængjum í könglunum með engu fræi. Tæpur þriðjungur af þessu furufræi fór í Gróðrarstöðina Þöll. Rúmum þriðjungi var sáð út á mela í Heiðmörk og sá þriðjungur sem eftir stóð notum við í litlu gróðrarstöðinni okkar í Þjórsárdal og sáðum út á í gróðureyjar á sandinum eða settum í moldarköggla undir plastglösum í sandinum. Árangurinn af sáningum í sandinum í Þjórsárdal sumarið 2019 virðist hafa verið lítill vegna þurka og að fræðið var ekki nógu vel þroskað eftir kalt sumar árið áður. Þetta smágerða fræ kom þó til í gróðrarstöðinni og má það þakka sólríku og hlýju sumri. Það sem var forræktað um vorið í stofuglugga og/eða gróðurskála á svölum náði þokkalegum vexti um sumarið. Helstu söfnunarstaðir hafa verið í Grafarvogi, Heiðmörk og Þjórsárdalur. Veturinn 2018-2019 var einnig safnað í Hamrahlíð
Úlfarsfells, Laugardal í Reyjavík og við Háteigkirkju. Veturinn 20192020 bættist Elliðaárdalur og Laugarvatn við en Úlfarsfellið, Laugardalur og Háteigkirkja duttu út. Lang mest var samt safnað í Grafarvogi sem segja má að hafi nánast verið hreinsaður eins hægt var að ná til. Við höfum lagt áherslu á að safna af fíngerðum trjám eftir því sem færi hefur gefist. Þeir hjá Þöll hafa fengið jöfnum höndum fræ af fíngerðum og grófgerðum trjám. Upp í Heiðmörk hefur mest verið sáð fræ af grófgerðum trjám en í Þjórsárdal hefur mest verið sáð fræ af fíngerðum trjám. Furukönglunum var svo dreift í Þjórsárdal og Heiðmörk með svipaðri skiptingu. Það leynist alltaf eitthvað af fræi í könglunum þótt þeir hafi verið bankaðir og hristir. Þetta árið var einnig safnað fræi af sembrafuru og evrópulerki í Ítalska hluta Tíról. Búið er sá í sjö bakka af sebrafuru og þrjá af evrópulerki í gróðrarstöðinni hjá okkur. Bakkarnir eru undir gleri svo mýsnar komist ekki í fræið og að auki á kafi í snjó sem stendur. Slatti í poka er eftir af sebrafurunni og smávegis af evrópulerkinu sem dugar í eins og einn sáðbakka. Smávegis var sáð af sebrafurunni út í mörkina eftir að frost var komið í jörðu. Notuð var batterísborvél til að gera holu í jörðina og fræið sett þar í og fyllt upp í með furumold. Áfram var sáð undir plastglös á svipuðum slóðum og áður úti á sandinum. Þetta árið var sáði undir 131 glas af stafafurur og 11 af bergfuru. Þetta er mun minna en áður. Árangur af þessum sáningum hefur verið upp og ofan en þetta árið í þurkunum var hann aðalega ofan og niður en samt heldur skárri hjá bergfurunni. Ekki vannst tími til að vökva ofan í glösin þetta sumarið. Gróðrarstöðin. Við höfum komið okkur upp lítilli gróðrarstöð við hjólhýsið hans Grétars í Þjórsárdal. Hún hefur vaxið hægt og rólega þannig að núna erum við með eitt lítið gróðurhús og fimm gróðurkassa sem með tengingum á milli er hægt að fjölga í sjö kassa og loka þeim á haustin. Öll barrtré í uppeldi hafa því verið undir plasti á veturnar. Yfirleitt höfum við ekki sett yfir fyrr en um mánaðarmótin nóvember – desember og tekið ofan af kössunum í maí. Þetta árið kom vorið snemma og svo komu næturfrost eftir að búið var að taka ofan af kössunum og færa út hluta af plöntunum svo loka þurfti þeim aftur og breiða plast yfir það sem var á pallinum eins og kostur var. Þetta slapp þannig án teljandi skemmda. Í gróðrarstöðinni kennir ýmissa grasa. Til að byrja með vorum við mest með greni í áframeldi til að nota í lúpínu. Síðan höfum við pottað töluvert af gráöl og reynt ýmsar aðrar tegundir eins og glæsitopp og hegg. Reynir, birki, rifs og sólber sem sem hefur óboðið komið upp úr pottum og bökkum hefur verið sett í skyrdósir og potta.
Í ferð með Skógræktarfélagi Íslands til Colrado 2013 var safnað töluverðu fræi af blágreni sem var sáð út í bakka á árunum 20142015. Blágrenið er afar seinvaxið fyrstu árin við þær frumstæðu aðstæður sem eru í gróðrarstöðinni okkar. Það hefur samt vaxið hægt og rólega og núna er búið að potta megnið af því blágreni sem var sáð í bakkana. Eftir er að potta úr rúmalega einum bakka. Smávegis sem var forræktað innhúss lengur en annað er búið að planta en ekki tókst að halda því aðgreindu frá Rio Grande blágreninu sem var í meirihluta. Núna erum við með um 200 potta af blágreni frá Colorado og smávegis af Rio Grande. Það er sennilega ekki hægt að byrja að planta Colorado blágreninu út fyrr en 2021 og þeirri útpöntun verður varla lokið fyrr en 2023. Árið 2019 var mikið plantað út af sitkagreni sem við höfum verið með í ræktun nokkuð lengi. Við höfum ekki lagt mikla áherslu á að bæta við það síðustu árin en það slæðist inn sem meðafli með rótarstungnu furunum og eftir öðrum leiðum svo einhvern veginn gengur alltaf hægt að minnka þessar birgðir. Í ferðinni 2018 í Pireneafjöllin á Spáni með skógræktarfélaginu var safnað töluverðu af bergfurufræi sem var sáð sama haust í sex bakka og vorið eftir í einn sáðbakka. Þessi sáning hefur gengið mjög vel og plönturnar sem koma upp eru kröftugar. Fræ bergfurunnar er líka stærra en fræ stafafurunnar. Fræ stafurunnar haustið 2018 var óvenju ræfilslegt vegna sólarleysis og kulda um sumarið. Það náði samt að spíra í þremur sáðbökkum í stofuglugga og einum hjá hjólhýsinu. Plönturnar sem komu upp voru viðkvæmar og afföll töluverð. Töluvert af stafafuru ætti samt að komast á legg og verður sett í skyrdósir næsta vor. Sama verður gert við bergfurur í sáðbakkanum. Við fengum sáðbakka frá Gróðrarstöðinn Þöll sem var fullur af birki í einni flækju. Greitt var úr flækjunni og birkið sett í potta og skyrdósir. Nokkur afföll urðu á þessum plöntum vegna frostlyftingar og eins í næturfrostinu um vorið. Með skert rótarkerfi eru þessar plöntur mun viðkvæm-ari heldur en tré sem ekki hafa verið flutt. Sennilega hefði verið betra að potta þeim um vorið. Það sem var lífvænlegt í skyrdósunum var einnig sett í potta. Samtals fengust um 100 pottaplöntur úr sáðbakkanum. Um sumarið uxu þær plöntur sem
ekki urðu fyrir áföllum afar vel í hitanum um sumarið. Þær sem best uxu um sumarið hækkuðu um 30-40 cm. Stefnt er að því að þessu birki verði ekki plantað fyrr en þær hafa komist upp fyrir bithæðina hjá sauðkindinni sem þýðir að þeim fyrstu verður plantað vorið 2021 ef vel gengur. Um haustið var þriðjungi af birkibakka frá Hekluskógum pottað í sama tilgangi. Um var að ræða bústnar plöntur sem virtust vera efnilegar. Síðasta haust var safnað fræi af sembrafuru og evrópulerki í Ítalska hluta Týrol í ferð með skógræktarfélaginu. Búið er að sá sembrafuru í sjö bakka og evrópulerki í þrjá bakka. Gert er ráð fyrir að sá einnig báðum þessum tegundum í sáðbakka núna í vor. Eins verður sáð fyrir stafafuru í nokkra sáðbakka í vor. Vandamál í skógræktinni. Búið er að minnast á þurkinn um sumarið svo ekki þarf meira að fjalla um hann. Ertuygla var á ferli en var almennt ekki til vandræða. Það er möguleiki eftir gott sumar að það komi faraldur næsta sumar sérstaklega ef það verður hlýtt. Það er ekki hægt að ljúka þessari skýrslu án þess að minnast á rolluganginn í skógræktinni síðasta sumar. Annað eins höfum við og fleiri ekki séð. Við rákum á annað hundrað fjár úr skógræktinni um sumarið. Fyrst var byrjað að reka féð til baka út fyrir girðinguna. Það gekk treglega. Féð vildi helst ekki fara til baka. Við tókum þá til við að reka féð niður eftir og gekk það betur þótt sumt hafi snúið aftur. Sama sagan var um allt Suðurland og alveg austur í Mýrdal. Skipti þar litlu máli þótt ekki væri margt fé á bæjum í kring. Eflaust eru girðingar víða orðnar lélegar en aðal skýringin er sennilega sú að eftir þurka sumarsins hafi afrétturinn verið orðinn sviðinn af þurki og féð verið að leita einhverju ferskara. Sjá mátti sauðféð tæta í sig lúpínuviska sem þeim getur nú varla þótt mjög góð tugga. Þá er stutt í asparstiklinga þar undir svo og birkið. Fururnar létu þær að mestu í friði nema ef þær voru litlar og gras í kring þá voru fururnar étnar með grasinu. Sem betur fer eru aðstæður okkar orðnar þannig að við getum haldið meira til í dalnum svo svæðið er ekki án eftirlits marga daga í röð. Þetta návígi við sauðkindina hefur kennt okkur að kind og kind er ekki alveg það sama. Sumar eru meðfærilegar og láta auðveldlega reka sig hvert sem er meðan aðrar eru ljónstyggar. Þá er gott að
hafa fyrrverandi marþonhlaupara til að hlaupa þær uppi. Þær sleppa ekki svo auðveldlega, þótt við séum bara tveir, ef við vinnum saman og leggjum okkur fram í rekstrinum. Meira segja sú allra sprettharðast og styggasta sem höfum komist í kynni við með lömbin sín tvö álíka frá á fæti mátti lúta í lægra haldi í annarri tilraun. Eftir þessar viðureignir í sumar eru sumt féð farið að kannst við okkur og bílana okkar og forða sér um leið og við birtumst. Það var eftirminnilegt í sumar að sjá tvo bíla keyra fram hjá kindahóp á gömlu Sprengisandsleiðinni og þær hreyfðu sig ekki og bitu áfram en um leið og okkar bílar nálguðust þá hætti beitin og þær tóku á rás og héldu strax yfir Sandánna og upp hlíðina við Áslákstungufjallið og hurfu þar sjónum ekki löngu síðar. Næstu verkefni. Næstu verkefni verða að planta fyrir norðan Vegghamar og lengra út á sandinn fyrir utan Vegghamar. Það er dálítil eyða í birkibeltið fyrir sunnan gatnmótin að afleggjar-anum að Sandánni sem komin er tími á að fylla upp í. Eins stendur til að stækka birkieyjuna fyrir utan miðjan Dímon og halda áfram að planta birki frá Hallslaut og í áttina að Þjórsárdalsvegi. Það ræðst dálítið af því hvort það þurfi að vökva eða ekki hvað verður fyrir valinu. Svo verður stiklingaröðin í lúpínunni fyrir utan Dímon loksins kláruð næsta sumar. Reykjavík, 17. apríl 2020 Vigfús Óðinn Vigfússon