Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd aðstoðuðu heimafólk á Klaustri við að gera stíg upp með Systrafossi að Systravatni og áfram meðfram vatninu og niður Bjarnaklif (hringleið), og einnig að Sönghelli. Stígurinn var stikaður, gerð fjölmörg þrep og borið í bæði möl og trjákurl.
Unnið var eina helgi sumurin 1995, 2005, 2006, 2008 og 2009. Hér er lýst, í máli og myndum, vinnunni þrjú síðustu árin.
Árið 2009 var að auki unnið við uppgræðslu rofsára eftir göngufólk við Fjaðrárgljúfur, skammt vestan við Klaustur, m.a. með sauðataði.