Æskan og skógurinn - Sandra Ósk Júníusdóttir

Page 61

Vatnsmiðlun

Um leið og snjóa leysir á vorin, hleypur vöxtur í ár og læki og þau flæða yfir landið í kring. Skriður falla úr fjallshlíðum og flytja aur og grjót niður á láglendi. En vegir og önnur mannvirki skemmast í vatnavöxtum. Þetta þekkja allir hér á landi. Í skógivöxnum löndum er þessu annan veg farið. Snjórinn bráðnar þar mun hægar, skógarnir taka til sín mikið vatnsmagn og rætur trjánna binda jarðveginn. Allt þetta eykur jafnstreymi ánna og gerir þær meðal annars hæfari til virkjunar og fiskiræktar.

Heilsugjafi

Skógarloftið er heilnæmt, tært og hressandi. Heilsuveilt fólk flykkist því til skóganna til þess að öðlast þar nýjan þrótt. Þá sækir þangað fjöldi fólks hvíld og frið frá önnum dagsins. Og enn aðrir stunda þar skemmtanir og útilíf sem aukið getur lífsgleði og heilbrigði ef rétt er á haldið. En nú haustar og tré og runnar í skólagarðinum breyta um svip. Laufin taka að blikna. Eitt og eitt falla þau hljóðlega til jarðar og þegar stormsveipir fara yfir falla þau í hrönnum. Sumarið hefur kvatt, önnur árstíð tekið við en samt er engu lokið. Upphafið getur alveg eins verið hér. Við höfum búið trjábeðinn undir vetur og hlúð að fjölæru blómunum. Í Hallormsstaðaskógi áttum við í sumar dvöl við leiki, nám og störf. Nú er veturinn einnig einráður þar. Ilmurinn frá björkinni er ekki hinn sami og þyturinn í laufi hennar heyrist ekki lengur. En grenitrén bera sitt barr, þótt vetur steypi yfir þau hvítri mjöll. Lengi sér í grænar greinar sem minna á sumarið. Þótt vetur ríki leynist líf um allan skóg, líf sem bíður nýs sumars, nýs vaxtar. Bókinni lýkur hér en starfinu og sögunni um skóginn er ekki lokið.

61


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Æskan og skógurinn - Sandra Ósk Júníusdóttir by Tækniskólinn - Issuu