1 minute read

Örnefnaskrá

Next Article
Plöntuskrá

Plöntuskrá

Við getum líka skyggnst lengra fram í tímann. Samkvæmt mælingum og útreikningum ætti heildarvöxturinn í Guttormslundi eftir 80 ár að nema um fjögur hundruð og sextíu teningsmetrum viðar á hektara.

Verðmætin aukast þó enn þegar viðnum er flett í bjálka og borð.

Hér er aðeins nefnt dæmi um arð af skógrækt á Austurlandi. En í mörgum öðrum héruðum er að vaxa upp ungskógur sem lofar góðu um framtíðina.

Atvinna

Hvarvetna veita skógar mikla vinnu. Með aukinni skógrækt á Íslandi yrði fjarmagn flutt inn í sveitir landsins þar sem náttúran ávaxtar það.

Mikil vinna er við plöntun, grisjun og hirðingu ungskógar. Hundruð unglinga um allt land starfa við garðyrkju og skógrækt sumarlangt en ættu að skipta þúsundum, því az zzð engin störf eru hollari æskulýðnum.

Skógar sem við gróðursetjum bæta landið, efla sveitirnar, veita niðjum okkar vinnu, gera atvinnulíf þjóðarinnar fjölbreyttara og gera þjóðina færari til sjálfbjargar.

Skjól

Áhrif skjóls á allan gróður sést óvíða betur hér á landi en í Hallormsstaðaskógi. Í skógarjaðrinum eru trén veðurbarin og kræklótt. Þau eru engin skrauttré en vernda skóginn gegn veðrum og minni snjóflóðum. Þetta eru útverðir skógarins. En er lengra kemur inn í skóginn verða trén stórvaxnari og jurtagróður fjölskrúðugri. Fuglalíf er þar einnig mun auðugra en á bersvæði.

Skjólbelti hafa sömu áhrif. Ræktun þeirra er enn skammt á veg komin en vænta má mikils af henni í framtíðinni.

Skjólbelti hafa meðal annars þessi áhrif:

Þau lægja vindinn og auka jarðvegs- og lofthitann næst yfirborði jarðar.

Skjól dregur úr uppgufun og varnar ofþornun.

Afurðir búfjár verða meiri þar sem beitt er á skýlt land.

Okkur líður betur við vinnu á skýldu landi, ekki síst við ýmiss konar jarðyrkjustörf.

60

This article is from: