
3 minute read
Plöntuskrá
Vatnsmiðlun
Um leið og snjóa leysir á vorin, hleypur vöxtur í ár og læki og þau flæða yfir landið í kring. Skriður falla úr fjallshlíðum og flytja aur og grjót niður á láglendi. En vegir og önnur mannvirki skemmast í vatnavöxtum. Þetta þekkja allir hér á landi.
Í skógivöxnum löndum er þessu annan veg farið. Snjórinn bráðnar þar mun hægar, skógarnir taka til sín mikið vatnsmagn og rætur trjánna binda jarðveginn. Allt þetta eykur jafnstreymi ánna og gerir þær meðal annars hæfari til virkjunar og fiskiræktar.
Heilsugjafi
Skógarloftið er heilnæmt, tært og hressandi. Heilsuveilt fólk flykkist því til skóganna til þess að öðlast þar nýjan þrótt. Þá sækir þangað fjöldi fólks hvíld og frið frá önnum dagsins. Og enn aðrir stunda þar skemmtanir og útilíf sem aukið getur lífsgleði og heilbrigði ef rétt er á haldið.
En nú haustar og tré og runnar í skólagarðinum breyta um svip. Laufin taka að blikna. Eitt og eitt falla þau hljóðlega til jarðar og þegar stormsveipir fara yfir falla þau í hrönnum. Sumarið hefur kvatt, önnur árstíð tekið við en samt er engu lokið. Upphafið getur alveg eins verið hér.
Við höfum búið trjábeðinn undir vetur og hlúð að fjölæru blómunum. Í Hallormsstaðaskógi áttum við í sumar dvöl við leiki, nám og störf. Nú er veturinn einnig einráður þar. Ilmurinn frá björkinni er ekki hinn sami og þyturinn í laufi hennar heyrist ekki lengur. En grenitrén bera sitt barr, þótt vetur steypi yfir þau hvítri mjöll. Lengi sér í grænar greinar sem minna á sumarið.
Þótt vetur ríki leynist líf um allan skóg, líf sem bíður nýs sumars, nýs vaxtar.
Bókinni lýkur hér en starfinu og sögunni um skóginn er ekki lokið.
61
ÖRNEFNASKRÁ
Alaska 13, 20 Alpafjöll 22, 44 Asía 13, 24 Atlavík 4, 45, 66 Atlavíkurstekkur 13, 24, 25, 34, 45, 50 Austurland 2, 14, 16, 19 Árnessýsla 1, 5, 48 Breiðamerkursandur 1, 23, 28, 29, 31 Bretlandseyjar 5, 48 Brimnesskógur 12, 18 Bárðardalur 7, 9, 20 Bæjarstaðaskógur 13, 14, 55 Djúpá 3, 11 Evrópa 23, 25, 29 Eyjafjörður 13, 28, 39 Fljótsdalshérað 13, 15, 26 Flugumýri 14, 29, 31, 33 Fálkaklettur 11, 29, 30, 33 Gatnaskógur 18, 23, 24 Glóðafeykir 3 Guttormslundur 12 Gönguskarðsós 4, 14 Hafursá 28, 29, 30 Hallormsstaðaskógur 11, 23, 14, 28, 34 Hekla 3, 11 Jökullækur 4 Jökulsá 5 Kerlingará 28 Klettafjöll 31 Kolafjörður 11, 28, 33 Kolbeinsárós 19, 28 Kyrrahaf 13 Lagarfljót 2, 23 Landbrot 10, 21, 24 Lýsishóll 33, 34 Mið-Evrópa 50 Mörk 21, 58 Noregur 11 Norður-Ameríka 10, 18 Norður-Noregur 4 Nýiskógur 20 Ormsstaðir 8, 28 Pýreneafjöll 5, 13 Rússland 5, 29, 30 Skaftafellssýslur 11, 24, 29 Skaftártungur 7, 17, 29 Snæfell 24, 55 Suðausturland 18, 20 Suðurland 5, 27, 30 Suðvesturland 11 Svíþjóð 15 Tromsfylki 30, 31, 33 Vaglaskógur 14, 25 Vestfirðir 7, 18 Þingeyjarsýsla 11 Þistilfjörður 19 Þórsmörk 21
62
PLÖNTUSKRÁ
Alaskaösp 11, 24 Álmur 13, 18, 20 Balsamþinur 15 Bergfura 11 Birki 13, 18, 20 Bláber 11, 17 Bláfjóla 19, 24 Blágreni 18, 33 Blágresi 24, 29 Blæösp 11, 28 Blóðberg 12, 58, 59 Brennisóley 5, 12 Broddfura 11 Broddfura 19 Broddgreni 21, 31 Brönugrös 14, 18 Bugðupunktur 22, 26 Elfting 11, 29 Elri 7 Fjallafura 9 Fjallaþinur 11 Fjallaþöll 12 Fjalldalafífill 29, 47 Fura 45, 48 Geldingahnappur 12, 44 Greni 12, 14, 28 Gráreynir 11, 12 Gulmaðra 7 Gulrófa 30 Gulrót 11, 28 Hlynur 14, 29 Holtasóley 25 Holurt 17 Hrútaberjalyng 14 Hvítelri 26 Hvítgreni 11 Hvítþinur 28 Ilmbjörk 30 Krækilyng 14, 28, 34 Lambagras 11, 24 Lerki 7, 28, 30 Lindifura 11, 45 Língresi 13 Maríustakkur 48, 50 Marþöll 50 54 Móa 12, 50 Rauðelri 15 Rauðgreni 21, 34, 48 Reynivður 48, 59 Reyrgresi 15, 32 Seljureynir 24, 26, 30 Silfurreynir 11, 48 Sitkagreni 18, 27 Skógarfura 11, 28, 50 Sortulyng 30, 48, 58 Stafafura 31, 47 Svartgreni 11 Síberíuþinur 12 Umfeðmingur 50 Víðir 48 Þursaskegg 38 Ösp 34
63
Til minnis
64
65
ÆSKAN
OG SKÓGURINN
LEIÐBEININGAR Í SKÓGRÆKT FYRIR UNGLINGA
Þetta er sagan af skóginum á Íslandi, að vísu aðeins örfáar svipmyndir af samskiptum þjóðar, lands og skóga. Þessi saga er að því leyti ólík öðrum sögum að sögulok eru jafnlangt undan þegar bókinni lýkur og er hún hefst.
En þetta er bókin ykkar, hinna ungu Íslendinga. Það eruð þið sem haldið sögunni áfram og síðan taka aðrir við af ykkur og enn aðrir af þeim.
Í fáum orðum sagt. Við viljum færa Íslandi aftur þá skóga sem það átti einu sinni, fjölga trjátegundum þess og búa öðrum gróðri yl og næði í skjóli þeirra.
Jón Jósep Jóhannesson Snorri Sigurðsson
66