Lindifuran er eitt hið fegursta tré með löngu og mjúku barri og standa fimm nálar ávallt saman í knippi. Við höfum nú skoðað helstu útlendu trjátegundirnar á Hallormsstað og vinnan verður æ skemmtilegri. Skógurinn er heill ævin týraheimur og við hlökkum til hvers dags því að alltaf gerist eitthvað nýtt. Við hættum vinnu í þetta sinn, setjumst í hvirfingu og tökum lagið. Ljóð Laxness um skóginn varð fyrir valinu í þetta skipti: Bláfjólu má í birkiskógi líta. Blessað sé norðurhvelið, sem mig ól! Hallormur, má þá ei til einhvers nýta þinn unga vin á nýjum sparikjól, . . .
33