Æskan og skógurinn - Kolbrún Kristjánsdóttir

Page 56

Arður Okkur verður ávallt í fersku minni dvölin á Hallormsstað og sú stund er við sáum Guttormslund. Við heyrum margt um ræktun skóga sem okkur kom algerlega á óvart. Okkur var skýrt frá því að tekjur af Guttormslundi um 1960 hafi verið tæpar þrjú þúsund krónur árlega þegar búið var að draga allan kostnað frá. Er þá miðað við einn hektara lands og var þá lundurinn um tuttugu ára. Þessi arður fékkst þó eingöngu með sölu á girðingarstaurum. Við getum líka skyggnst lengra fram í tímann. Samkvæmt mælingum og útreikningum ætti heildarvöxturinn í Guttormslundi eftir 80 ár að nema um fjögur hundruð og sextíu teningsmetrum viðar á hektara. Verðmætin aukast þó enn þegar viðnum er flett í bjálka og borð. Hér er aðeins nefnt dæmi um arð af skógrækt á Austurlandi. En í mörgum öðrum héruðum er að vaxa upp ungskógur sem lofar góðu um framtíðina.

Atvinna Hvarvetna veita skógar mikla vinnu. Með aukinni skógrækt á Íslandi yrði fjarmagn flutt inn í sveitir landsins þar sem náttúran ávaxtar það. Mikil vinna er við plöntun, grisjun og hirðingu ungskógar. Hundruð unglinga um allt land starfa við garðyrkju og skógrækt sumarlangt en ættu að skipta þúsundum, því að engin störf eru hollari æskulýðnum. Skógar sem við gróðursetjum bæta landið, efla sveitirnar, veita niðjum okkar vinnu, gera atvinnulíf þjóðarinnar fjölbreyttara og gera þjóðina færari til sjálfbjargar.

Skjól Áhrif skjóls á allan gróður sést óvíða betur hér á landi en í Hallormsstaðaskógi. Í skógarjaðrinum eru trén veðurbarin og kræklótt. Þau eru engin

54 | ÆSKAN OG SKÓGURINN


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Æskan og skógurinn - Kolbrún Kristjánsdóttir by Tækniskólinn - Issuu