
1 minute read
Fjölmenni á fyrsta mótinu í Fjölnishöllinni
Helgina 3.-5. febrúar hélt fimleikadeild Fjölnis GK-mót yngri flokka í hópfimleikum og stökkfimi.

Advertisement


Rúmlega 700 iðkendur voru skráðir til keppni og var því mikið fjör alla helgina í Fjölnishöllinni.
Það var yndislegt að sjá mikinn fjölda áhorfenda í stúkunni en þetta er í fyrsta sinn sem fimleikadeildin heldur fim- leikamót í Fjölnishöllinni.

Takk kærlega allir fyrir komuna iðkendur, þjálfarar og áhorfendur. Við viljum líka þakka öllum sem að mótinu komu kærlega fyrir alla hjálpina.
Úrslit allra flokka má sjá inni á fjolnir.is
ÞREPAMÓT Í 4. OG 5. ÞREPI Helgina 3.-5. febrúar fór einnig fram Þrepamót 2. Mótið var haldið í fimleikasal Gerplu í Versölum.
Keppt var í 4. og 5. .þrepi drengja og stúlkna og átti Fjölnir nokkra keppendur á mótinu sem stóðu sig vel. Öll úrslit má skoða inni á fjolnir.is (Frétt frá Fjölni)




































GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 14.2.2023 11:32 Page 6
