
1 minute read
Fjör hjá Fjölni
- Skemmtilegasta Þorrablótið!
Þorrablót Grafarvogs var haldið hátíðlegt nýverið. Blótið er haldið af Ungmennafélaginu Fjölni í Fjölnishöllinni í Egilshöll. Í boði var alvöru þorramatur frá Múlakaffi, hákarl, brennivín og með því.
Advertisement


Skemmtiatriði á heimsmælikvarða voru í boði fyrir gesti. Regína Ósk stýrði kvöldinu og Nýju Fötin Keisarans var hljómsveit kvöldsins. Svenni Þór sá um að skemmta lýðnum með brekkusöng. Ragga Gísla, Stebbi Hilmars, Friðrik Ómar, Kristmundur Axel og Margrét Eir sáu einnig um að halda uppi stuðinu.




Tveir leynigestir stigu á stokk og voru það engir aðrir en Bjartmar Guðlaugsson og Blaz Roca allra landsmanna.
Grafarvogur er stórt hverfi með enn stærra hjarta.

Þorrablótið - Happdrætti
Sala á happdrættismiðum fór vonum framar á þorrablótinu en hægt er að skoða öll vinningsnúmerin á fjolnir.is Hægt er að nálgast vinningana á skrifstofu Fjölnis í Egilshöll til 29. apríl gegn framvísun happdrættismiða með vinningsnúmeri. Að venju látum við myndirnar tala enda segja þær meira en mörg orð. Það var Ólafur Þórisson ljósmyndari sem tók myndirnar.















