1 minute read

Fimm fengu gullmerki Fjölnis

Fimm aðilar fengu afhent gullmerki Fjölnis á uppskeruhátíð fégsins um síðustu áramót.

Eins og allir þeir aðilar sem fengu silfurmerki félagsins og greint er frá hér að ofan, hafa þessir aðilar unnið frábært starf fyrir Fjölni á liðnum árum. Allir hafa þessir aðilar lagt á sig mikla og óeigingjarna vinnu í sjálfboðastarfi fyrir Fjölni og fær félagið þeim seint fullþakkað allt þetta öfluga framlag til starfsemi félagsins. Þeir sem fengu gullmerkið afhent voru:

Advertisement

Þorgrímur H. Guðmundsson. Þorgils Garðar Gunnþórsson. Laufey Jörgensdóttir. Trausti Harðarson. Anna Podolskaia.

Við óskum þessum aðilum til hamingju með gullmerkið. Á uppskeruhátíðinni fengu 22 aðilar afhent silfurmerki Fjölnis. Við birtum myndir af þeim í næsta blaði í mars.

This article is from: