
1 minute read
Enn betri þjónusta í Hraunbænum
Við höfum aukið afköstin í Endurvinnslumóttökunni Hraunbæ 123 með fleiri talningavélum, rúmbetri móttöku og lengri opnunartíma.
Greiddar eru 18 kr. fyrir eininguna
Advertisement
Opnunartíminn okkar er:
Virkir dagar 9-18
Helgar 12-16.30
Reykjavíkurmeistarar í sundi 2023
Sunddeild Ármanns stóð uppi sem sigurvegari á Reykjavíkurmeistaramótinu í sundi sem fram fór í
Laugardalslaug dagana 13. og 14. janúar. Á mótið mættu allir sterkustu sundmenn Reykjavíkur og áttust við í stigakeppni á milli félagsliða þeirra.

Ármenningar enduðu keppnina með 968 stig, Ægir varð í öðru sæti með 888 stig og í þriðja sæti var KR með 540 stig. Þetta var kærkominn sigur fyrir Ármenninga sem sigruðu síðast á Reykjavíkurmeistaramótinu í sundi 2019 en keppt hefur verið um þennan eftirsótta bikar síðan 1970. Óhætt er að segja að sundfólk Ármanns hafi staðið sig frábærlega og var stemningin góð í hópnum. Alls unnu þau 61 gull, 39 silfur og
37 bronsverðlaun. Á mótinu náðust einnig margar góðar bætingar og persónulegir sigrar. Ármenningarnir Sigurður Haukur, Ylfa Lind og Ágústa Ellý voru stigahæstu sundmennirnir í sínum aldursflokkum og fengu þau sérstaka bikara fyrir þau afrek.
Yfirþjálfarar liðsins eru þau Hjalti Guðmundsson og Jóhanna Iða Halldórsdóttir.

Og í tilefni af Reykjavíkurmeistaratitlinum býður sunddeild Ármanns áhugasömum nýjum iðkendum að koma og prófa æfingar frítt til og með 3. mars. Sunddeildin er öflug og frábær stemning í hópnum. Kjörið fyrir öll sem vilja koma og prófa hvort þau vilji æfa sund og er öllum frjálst og koma á æfingatíma og spreyta sig, bara að mæta. Æfingar eru Árbæjarlaug, Laugardalslaug og Sundhöll Reykjavíkur.

Sund er frábær hreyfing, hentar öllum og bætir bæði líkamlega- og andlega líðan.
Nánari upplýsingar um hópa og tímasetningar má finna hér https://armenningar.is/frettir?guid =84 .

