
1 minute read
Skrifuðu undir sína fyrstu samninga við Fylki
Knattspyrnudeild Fylkis hefur skrifað undir samninga við unga og efnilega leikmenn félagsins.
Allir þessir leikmenn koma úr afreksstarfi félagsins og binda Fylkismenn miklar vonir við þau í framtíðinni!
Advertisement
Þessi glæsilegi hópur er stór og mikilvægur hluti starfsins í framtíðinni hjá Fylki.
Þetta eru framtíðar leikmenn félagsins í kvenna- og karlaflokki og því mikilvægt fyrir félagið að gera vel við þetta efnilega fólk.
Við óskum þessum leikmönnum til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með þeim í framtíðinni
Rosalegt magn af svampi er i fimleikaselinu við Norðlingabraut og er hann rándýr og allur ónýtur.
Tjónið hleypur á tugum milljóna

Komið er í ljós að tjón vegna vatnsskemmdanna í Fylkisseli, fimleikahúsi Fylkis, er mun meira en haldið var í fyrstu.
Mikið vatn flæddi um húsið á sínum tíma og er stærstur hluti búnaðar í húsinu ónýtur. Er fullyrt að tjónið nemi mörgum tugum milljóna.
Um áramótin síðustu flæddi vatn inn í tvo þriðju hluta hússins og skemmdir eru mjög miklar.
Þrátt fyrir þetta mikla áfall hefur fimleikadeild Fylkis tekist að halda úti fullri starfsemi og hafa æfingar haldið sér að langmestu leyti. Stappar það nærri kraftaverki, svo miklar voru skemmdirnar.
Stærsti hluti tjónsins er vegna svampsins og mun nýr svampur í húsið, einn og sér, kosta 15-17 milljónir króna.
Fylkir mun ekki bera kostnað vegna skemmdanna og kemur það í hlut tryggingafélags að bæta tjónið.
