3 minute read

Björnslundur er falinn gimsteinn í Norðlingaholti sem ekki margir vita af

Í Norðlingaholti er að finna skógarlund sem kallast Björnslundur. Vinir Björnslundar eru hvatahópur sem stofnaður var í lok árs 2021 með það að markmiði að vekja og vernda Björnslundinn okkar hér í Norðlingaholti. Mikil saga er á bak við lundinn en 1942 festi Björn Ófeigsson kaup á 2 hekturum að stærð og var þá enginn trjágróður á svæðinu. Björn var staðráðinn í að hefja skógrækt á svæðinu og lagði mikið á sig til að það mæti takast og var hann virkur félagi í Skógræktarfélagi Reykjavíkur og gróðursetti græðlinga og tré í Björnslundi til um það bil 1994.

Advertisement

Í kringum 1998-1999 keypti

Reykjavíkurborg svæðið af Birni og þegar Norðlingaskóli hóf starfsemi sína árið 2005 þá fékk skólinn hann til afnota og leikskólinn Rauðhóll síðan 2009 og nýtir hann til útikennslustofu.

Björn Ófeigsson vann mikið og óeigingjart starf við gróðursetningu á þeim trjám sem við sjáum og njótum í dag í Björnslundi.

Leikskólinn Rauðhóll er með skógarhús í Björnslundi þar sem eldri deildir skiptast á að vera viku í senn og njóta börnin þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Útivera og tenging við náttúruna eru veigamestu verkefnin og börnin fara í gönguferðir og náttúruskoðanir um nágrennið og víðar í öllum veðrum.

Með komu skógarhúss var þörf á að kortleggja svæðið í Björnslundi betur og gera úrbætur á nokkrum stöðum og auka gróður. Búið er að teikna upp fallegt skipulag af Björnslundi í heild sinni á vegum borgarinnar en síðan hefur það verkefni fallið í dvala og er það megin markmið Vina Björnslundar að vekja Björnslund og hans möguleika fyrir alla aldurshópa í leik og starfi – færa samfélagið nær hvort öðru.

Björnslundur er falinn gimsteinn í Norðlingaholti sem ekki margir vita af. Í lok nóvember 2022 setti hópur Vina Björnslundar ásamt góðvinum upp jólaljós til að lýsa hann upp og fengu varanleg borð og bekki í lundinn frá Reykjavíkurborg og erum við ákaflega þakklát fyrir. Jólaljósin vöktu mikla lukku og jókst umferð nær samfélagsins margfalt og gladdi það okkur.

Í fyrra styrkti Hverfissjóður Reykjavíkurborgar Vini Björnslundar um 200.000,-kr í formi trjáa og sam mæltust Vinir Björnslundar um að farið yrði í kaup á epla-, skógar- og rifsberjatrjám sem borgin hjálpaði okkur að setja niður. Spennandi verður að vita hver uppskeran verður næsta sumar en eplatrén eru 10 talsins og rifsberjatrén 12 og önnur 12 stykki af sólberjatrjám.

Í lok síðasta árs sendu Vinir Björnslundar inn beiðni til Íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts um uppsetningu á rafmagnskassa í Björnslundi en erindið var sent áfram til umhverfis- og skipulagssviðs, deildar náttúru og garða og erum við þakklát Íbúaráði Árbæjar og Norðlingaholts fyrir þeirra liðsauka í málefnum Björnslundar. Við erum bjartsýnir á að rafmagnskassa verði komið upp í Björnslundinn fyrir margþættan tilgang, t.d. lýsingu, viðburðahald, öryggi, forvarnir, útivist, aukinn félagsauð og svo mætti lengi telja.

Vini Björnslundar dreymir um að í Björnslundi verði öll þau tækifæri nýtt sem í honum búa og þar verði hægt að halda viðburði til að þétta mannauðinn þvert á allan aldur ásamt því að njóta þeirra útivistar sem náttúran hefur upp á að bjóða. Mikilvægt er að hafa grunninn góðan í upphafi svo við getum byggt trausta og góða upplifun af hvaða tagi sem er svo fallegir skógarlundir líkt og Björnslundur verði allir þeir möguleikar sem í þeim búa. Það er von okkar að Reykjavíkurborg sjái hag sinn vænan þegar kemur að Björnslundi og hans græna hjarta. Allt er vænt sem vel er grænt og á það svo sannarlega vel við í Björnslundi. Hvet ykkur til að veita Björnslundi athygli og sækja hann heim þegar vel viðrar, þangað til þá bendum við ykkur á hópinn okkar á Facebook og að gerast vinir okkar þar en við erum undir heitinu „Vinir Björnslundar“, sjá slóð: https://www.facebook.com/groups/115 1523912337966/ Björnslundur - Best geymda leyndarmálið í borginni. Þar sem hjartað slær – þar eru Vinir Björnslundar.

Fh. Vina Björnslundar Edda María Baldvinsdóttir Hvatamanneskja og íbúi

Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN

Þetta unga og efnilega fólk skrifaði á dögunum undir samning við Fylki. Efri röð frá vinstri: Stefán Logi Sigurjónsson (2008), Katla Sigrún Elvarsdóttir (2008), Birta Margrét Gestsdóttir (2008), Eik Elmarsdóttir (2008), Sóley María Björgvinsdóttir (2007) og Daníel Þór Michelsen (2007). Neðri röð frá vinstri: Guðmar Gauti Sævarsson (2008), Sigrún Helga Halldórsdóttir (2008), Selma Schweitz Ágústsdóttir (2008) og Jóel Baldursson (2007). Á myndina vantar: Ívar Hrafn Atlason (2008).

This article is from: