Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

Page 1

Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013 Verknúmer: 05121-002

Nóvember 2013



Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

GREINING Á ANDA- OG GÆSAVÆNGJUM ÚR VEIÐI 2013

VERKNÚMER:

05121-002

DAGS:

2014-11-26

VERKHLUTI:

0006

NR.:

0006

UNNIÐ FYRIR:

Umhverfisráðuneyti - Veiðikortasjóð

VERKEFNISSTJÓRI:

AÞS

HÖFUNDUR:

Arnór Þ. Sigfússon

YFIRFARIÐ:

GPé

DREIFING:

Opin: Óheimilt er að vitna í skýrsluna nema með leyfi höfundar

SAMANTEKT Frá árinu 1993 hefur höfundur safnað vængjum af öndum og gæsum frá veiðimönnum víðsvegar að af landinu. Vængirnir hafa verið flokkaðir eftir tegundum og aldurshópum, þ.e. annars vegar ungfuglar á fyrsta ári og hins vegar eldri fuglar. Markmið þessara rannsókna er að vakta varpárangur stofnanna en hlutfall unga í veiði gefur vísbendingu um það hvernig varp tegundanna hefur gengið. Hér er gerð grein fyrir niðurstöðum frá árinu 2013. Alls voru aldursgreindar 4.064 gæsir sem söfnuðust frá veiðimönnum árið 2013. Hlutfall unga í veiðinni var það hæsta sem greinst hefur hjá grágæs frá upphafi athuganna, sem bendir til að varp hafi heppnast mjög vel. Hlutfall unga í veiðinni hjá heiðagæs var undir meðallagi og mun minna en var 2012, en það ár mældist hæsta ungahlutfall hjá heiðagæs frá upphafi. Ungahlutfall hjá helsingja var einnig undir meðallagi. Ungahlutfall blesgæsa í túnum og ökrum var um 9% sem er svipað og var 2011 og 2012. Greindir voru vængir af 286 stokköndum 2013. Hlutfall ungra stokkanda var um 50% sem er nokkuð lægra en 1993-2000, en það var þá 64% (95% öryggismörk 61-67%). Það bendir til að árið 2013 hafi verið undir meðallagi hjá stokköndinni. Sýni af öðrum tegundum anda voru svo lítil að þau reyndust ekki vera marktæk.

05121002-4-GR-0016-Hlutfall-2013.docx FS-020-05 Verkís hf. | 422 8000 | verkis.is | verkis@verkis.is



Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

Efnisyfirlit 1

Inngangur ....................................................................................................... 1

2

Aðferðir .......................................................................................................... 1

3

Niðurstöður og umræður ................................................................................. 2

4

Heimildir ......................................................................................................... 6



Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

1

Inngangur

Veiðikortasjóður veitti Verkís hf. styrk árið 2013 í verkefni það sem hér er greint frá og nefnt er „Vöktun á ungahlutföllum í veiðistofnum gæsa og anda með aldursgreiningu vængja úr veiði“. Frá árinu 1993 hefur höfundur safnað vængjum af öndum og gæsum frá veiðimönnum víðsvegar að af landinu. Vængirnir hafa verið flokkaðir eftir tegundum og aldurshópum, þ.e. annars vegar ungfuglar á fyrsta ári og hins vegar eldri fuglar. Markmið þessara rannsókna er að vakta varpárangur anda- og gæsastofnanna, en hlutfall unga í veiði gefur vísbendingu um það hvernig varp tegundanna hefur gengið. Söfnun og greining anda- og gæsavængja hefur farið fram nær samfellt síðan 1993, þó féll greining niður 2001 og 2002. Höfundur hóf greiningar á vængjum árið 1993 sem starfsmaður hjá Veiðistjóraembættinu (nú Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar) og fluttust þær á Náttúrufræðistofnun Íslands 1995 - 2000 er höfundur starfaði þar. Þá féllu greiningar niður í tvö ár þar til höfundur hóf greiningar á gæsavængjum að nýju árið 2003 í samvinnu við Halldór Walter Stefánsson, en aðstöðuleysi og sú staðreynd að þær voru í upphafi verið kostaðar af athugendum hefur hamlað nokkuð umfangi og þess vegna hefur söfnun og greining andavængja m.a. verið látin mæta afgangi og áhersla lögð á gæsirnar. Samantekt á niðurstöðum greininganna má m.a. sjá í Arnór Þ. Sigfússon 2000, Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004, Arnór Þ. Sigfússon 2005, Arnór Þ. Sigfússon 2007, Arnór Þ. Sigfússon 2010 og Arnór Þ. Sigfússon 2011. Helstu niðurstöður eru þær að góð samsvörun er milli ungahlutfalls í veiði og þess sem mælt er í gæsahópum á vetrarstöðvunum sem bendir til að báðar aðferðir gefi okkur góða vísitölu yfir ungaframleiðslu í stofnunum. Ungahlutfall er nokkuð mismunandi eftir tegundum. Það er hæst hjá grágæs, um 44%, nokkuð lægra hjá heiðagæs eða um 30% og hjá blesgæs var það einnig um 33% að meðaltali, þó síðustu árin sem blesgæs var veidd hafi hlutfallið lækkað mjög. Hjá helsingjanum er hlutfallið um 28% (Arnór Þ. Sigfússon 2010). Vegna breytinga á vetrarútbreiðslu grágæsa á Bretlandseyjum þar sem þær eru innan um stækkandi stofn breskra grágæsa er orðið erfitt að mæla ungahlutfall íslensku grágæsanna á vetrarstöðvum og því er ungahlutfall í veiði á Íslandi orðið mun mikilvægara til að meta varpárangur grágæsa (Mitchell, C. 2014). Höfundur þakkar öllum þeim fjölmörgu veiðimönnum sem sendu inn vængi til greininga eða buðu okkur að koma og aldursgreina aflann. Halldóri Walter Stefánssyni er þakkað fyrir ómetanlega aðstoð við greiningar. Veiðikortasjóði er þakkaður styrkur sem veittur var í verkefnið 2013.

2

Aðferðir

Frá 20. ágúst, þegar gæsaveiðitíminn hefst, er gæsavængjum safnað frá veiðimönnum og þeir aldursgreindir eða að veiðimenn eru heimsóttir og gæsirnar aldursgreindar. Veiðitími gæsa er til 15. mars en gæsir eru að mestu farnar af landinu um mánaðarmótin nóvember/desember, þannig að um það leyti lauk að mestu söfnun og greiningu gæsavængja. Þó bárust síðustu gæsa- og andavængir frá árinu 2013 fram í nóvember 2014. Aðeins má veiða þrjár tegundir gæsa hér á landi, en þær eru grágæs Anser anser, heiðagæs A. brachyrhyncus og helsingi Branta leucopsis. Árið 2006 var fyrsta árið sem blesgæs Anser albifrons flavirostris var friðuð og hún því ekki lengur með í úrtakinu. Hlutfall unga hjá blesgæsum hefur þó verið mælt af höfundi frá 2006 með því að skoða blesgæsahópa í túnum og ökrum og er það nú í annað sinn hluti af rannsókn þessari og styrkt af veiðikortasjóði. Gæsavængir eru aldursgreindir á lögun og litarmun á vængþökum og einnig á lögun stærstu dvergvængfjaðrar (Halldór W. Stefánsson 2009). Andaveiðitíminn hefst 1. september og stendur til 15. mars og þar sem endur eru hér allan þann tíma eru andavængir að berast allt veiðtímabilið þó að megnið af andavængjum berist á sama tíma og gæsavængirnir og oft frá sömu aðilum. Leyfilegt er að veiða sjö tegundir anda á Íslandi, þar af þrjár tegundir gráanda, stokkönd Anas platyrhynchos, urtönd Anas crecca og rauðhöfða Anas penelope og fjórar tegundir kafanda,

1


Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

skúfönd Aythya fuligula, duggönd Aythya marila, toppönd Mergus serrator og hávellu Clangula hyemalis. Andavængir eru greindir á lit og lögun fjaðra og er sú greining flóknari en greining gæsavængja. Því er þeim safnað og reynt að greina sem flesta í einu. Einnig er hægt að nota stélfjaðrir til aldursgreiningar snemma vetrar ef endurnar eru skoðaðar heilar. Líkt og með gæsir þá er hvort tveggja um að ræða að vængjum sé safnað frá veiðimönnum eða að veiðimenn séu heimsóttir og endurnar skoðaðar heilar.

3

Niðurstöður og umræður

Alls voru aldursgreindir 4.064 gæsavængir sem söfnuðust frá veiðimönnum á árinu 2013. Af þessum 4.064 gæsavængjum voru 3.220 af grágæsum, 729 af heiðagæsum og 115 af helsingjum. Hlutfall grágæsa í vængjasýninu er nokkuð hærra en búast mætti við út frá veiði samkvæmt bráðabirgðaveiðitölum frá Umhverfisstofnun á meðan hlutfall heiðagæsavængja er talsvert lægra (1. tafla). Hlutfall helsingja í vængjasýni var það sama og búast hefði mátt við út frá veiði. 1. tafla. Samanburður á hlutfalli tegunda í vængjasýni og veiði samkvæmt bráðabirgða veiðitölum frá Umhverfisstofnun þegar um 89% af veiðiskýrslum þess árs hafði verið skilað. Einnig er sýnt hve stórt hlutfall af veiðinni er greint. Tegund Grágæs Heiðagæs Helsingi

Vængir 2013 3.220 (79%) 729 (18%) 115 (3%)

Veiði 2013 42.818 (66%) 20.202 (31%) 2.114 (3%)

Hlutfall greint 7,5% 3,6% 5,4%

Grágæs Af 3.220 grágæsum var fjöldi unga frá sumrinu 1.429 eða um 56% og eins og sjá má á 1. mynd þá er þetta ungahlutfall það hæsta sem sést hefur, aðeins hærra en 2010, sem var áður metár. Þessi munur en þó ekki marktækur. Meðalhlutfall unga í grágæsaveiðinni frá 1993 til 2013 er um 44% (95% öryggismörk; 41-47%). Þetta háa ungahlutfall grágæsa í veiðinni bendir til að varpárangur gæsanna hafi verið mjög góður sumarið 2013 og er það sjöunda árið í röð sem varpárangur er yfir meðallagi eftir tvö mögur ár þar á undan. Samkvæmt talningum á grágæsum haustið 2013 þá fækkaði þeim um 15% frá talningum 2012 (Mitchell, C. 2012 og Mitchell, C. 2013). Heiðagæs Af 729 heiðagæsum var fjöldi unga 201, eða um 28% sem er aðeins undir meðallagi (2. mynd) Meðalhlutfall unga í heiðagæsaveiðinni frá 1995 til 2013 er um 30% (95% öryggismörk; 2635%). Hlutfall unga í heiðagæsaveiðinni bendir til að varpárangur heiðagæsa sumarið 2013 hafi verið í minna. Talningar 2013 bentu til að stofninn hefði stækkað um 3,6% og hefði aldrei verið stærri eða um 372 þúsund fuglar (Mitchell, C. 2013).

2


Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

70% 60% 50% 40% 30%

3158

3048

2207

2174

2262

2545

1168

1052

473

1367

1367

997

1456

1178

2439

1241

916

0%

81

10%

336

20%

Ár 1. mynd. Hlutfall grágæsaunga í vængjasýnum. Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins.

70% 60% 50% 40% 30% 20%

729

963

387

498

521

324

415

410

326

377

268

302

243

320

436

99

0%

153

10%

Ár 2. mynd. Hlutfall heiðagæsaunga í vængjasýnum. Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins.

3


Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

Helsingi Alls bárust vængir af 114 helsingjum árið 2013, sem er mun minna en barst 2012. Af þeim voru 22 af ungum eða um 19%, sem er undir meðallagi (3. mynd). Á árunum 1995 til 2000 var meðalungahlutfall helsingja í veiðinni 25,9% sem er lægsta ungahlutfallið af þeim þremur tegundum gæsa sem heimilt er að veiða hér á landi (Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004). Meðalungahlutfall á tímabilinu frá 1995-2013 er heldur hærra eða um 27% (95% öryggismörk; 22-32%). Sökum þess hve sýni af helsingjavængjum eru yfirleitt lítil eru öryggismörk hlutfallsins mjög víð eins og sést á 3. mynd og skarast yfirleitt milli ára. Því er yfirleitt ekki um marktækan mun að ræða milli ára.

70% 60% 50% 40% 30%

114

263

95

36

48

135

112

11

38

37

19

23

24

75

338

0%

50

10%

50

20%

Ár 3. mynd. Hlutfall helsingjaunga í vængjasýnum. Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins. Blesgæs Ungahlutfall hjá blesgæs er sýnt á 4. mynd. Þar sem veiðar á blesgæsum voru bannaðar árið 2006 eru hlutföll unga sem sýnd eru árin 2006 til 2013 mæld með fjarsjá á ökrum og túnum þannig að þau eru ekki sambærileg við fyrri athuganir. Síðasta árið sem blesgæsir voru veiddar, 2005, var ungahlutfall í veiðinni nokkuð gott samanborið við árin þar á undan sem bendir til að varp hafi tekist vel það ár. Hafa verður þó í huga að sýnastærð var með minna móti það ár, einungis 93 fuglar. Árið 2006 var svo aldurshlutfallið í ökrum og túnum einungis um 7% sem er mjög lélegt en heldur betra árið 2007 eða um 10%. Næstu tvö árin, 2008 og 2009 nær svo ungahlutfallið í um 15%, en talið er að hlutfall unga í stofni blesgæsa þurfi að vera yfir 15% til að stofninn nái að vega upp á móti afföllum og stækka. Árið 2010 er svo unghlutfallið um 19% sem er það besta sem sést hefur frá friðun 2006 en dettur svo niður í um 11% aftur 2011 og 2012. Árið 2013 er svo ungahlutfallið komið niður í 9% sem er næst lélegasta árið eftir friðum. Eftir friðun hér 2006 hætti blesgæs að fækka og hefur stofninn að mestu staðið í stað en ungahlutfall áranna 2008-2010 gefur vonir um að hann gæti jafnvel rétt eitthvað við ef vel árar þó það hafi verið vonbrigði að hlutfallið lækkar aftur 2011 til 2013. Hátt ungahlutfall 2010 leiddi til aukningar í blesgæsastofninum um rúmlega þrjúþúsund gæsir sem er aukning um 14,4% (Fox, T. o.fl. 2011) en 2011 gekk sú aukning að mestu til baka (Fox, T. o.fl. 2012). 4


Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

70% 60% 50% 40% 30%

3028

1858

2170

2908

2982

2357

1190

912

93

189

288

207

216

355

378

0%

91

10%

246

20%

Ár 4. mynd. Hlutfall blesgæsaunga í vængjasýnum (bláar súlur) og í túnum, og ökrum (gular súlur). Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins. Endur Greindir voru vængir af 286 stokköndum 2013. Hlutfall ungra stokkanda var um 50% sem er nokkuð lægra en 1993-2000, en það var 64% (95% öryggismörk 61-67%) (Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004). Þó sýnastærð sé lítil bendir þetta til að árið 2013 hafi verið undir meðallagi hjá stokköndinni. Sýni af öðrum tegundum anda var svo lítið að það reyndist ekki vera marktækt. 2. tafla. Fjöldi stokkanda sem greindur var í veiðinni 2013. Tegund Stokkönd

Fullorðin 144

Ung 142

Ávallt hefur reynst erfiðara að safna andavængjum en gæsavængjum og megnið af andavængjum sem berast eru sendir með gæsavængjum. Ástæður þessa eru meðal annars þær að frá 2003 eftir að söfnun vængja hófst á ný var megin áhersla lögð á að safna gæsavængjum þar sem söfnun og greining var að mestu á kostnað höfundar og Halldórs W. Stefánssonar þar til styrkur fékkst úr veiðikortasjóði 2006 og svo aftur 2008, 2010, 2011, 2012 og 2013. Þá er einnig mun minna veitt af öndum en gæsum. Einnig ber stundum á því að veiðimönnum finnist ekki taka því að hafa samband eða senda vængi ef þeir veiða fáa fugla, en slíkt er algengara í andaveiðinni. Ólíklegt er að sæmilega stór sýni fáist úr andaveiðinni nema ráðist verði í sérstakt söfnunarátak með auknum auglýsingum. Ef slíkt átak bæri árangur þá er einna helst að marktæk sýni fáist af stokköndum þar sem hún er samkvæmt veiðiskýrslum langmest veidda öndin.

5


Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

4

Heimildir

Arnór Þ. Sigfússon 2000. Gæsarannsóknir og skotveiðimenn. SKOTVÍS 6(1): 29-34. Arnór Þ. Sigfússon 2005. Ungahlutfall í veiði. Gæsakvak, Fréttabréf gæsaáhugamanna, 1: 45. Arnór Þ. Sigfússon 2007. Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2006. Skýrsla VST. Reykjavík, nóvember 2007, 4 bls. Arnór Þ. Sigfússon 2010. Greining á gæsavængjum úr veiði. Skotvís 16(1): 7-13 Arnór Þ. Sigfússon 2011. Greining Umhverfisstofnun. Akureyri 2011.

á

gæsavængjum

úr

veiði.

Veiðidagbók

2011,

Einar Guðmann 2007. Veiðar á villtum fuglum og spendýrum. Umhverfisstofnun, 290 bls. Fox AD, Francis I, Walsh A. 2011. Report of the 2010/2011 international census of Greenland White-fronted Geese. Greenland White-fronted Goose Study. National Parks & Wildlife Service, Ireland. 18 bls. Fox AD, Francis I, Walsh A. 2012. Report of the 2011/2012 international census of Greenland White-fronted Geese. Greenland White-fronted Goose Study. National Parks & Wildlife Service, Ireland. 28 bls. Halldór Walter Stefánsson 2009. Aldursgreining gæsa með fjöður úr dvergvæng. Veiðidagbók 2009, Umhverfisstofnun. Akureyri 2009. Mitchell, C. 2008. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2007 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge. Mitchell, C. 2013. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2012 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge. Mitchell, C. 2014. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2013 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge. Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004. Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 1993- 2000. Skýrslur Náttúrufræðistofnunar Íslands NÍ-03009. Reykjavík 2004. Newth, J.N. 2007. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2006 international census. Wildfowl & Wetlands Trust Report, Slimbridge.

6


Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2013

05121002-4-GR-0016-Hlutfall-2013.docx

7/13


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.