
1 minute read
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÆSKUNNAR YNGRI: Birna
María Unnarsdóttir
fyrir land og þjóð á árinu 2022. Einnig var Birna María valin besti leikmaður 3. flokks í knattspyrnu á síðasta ári. Birna María er mjög dugleg og samviskusöm og á eflaust eftir að ná langt í því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
Advertisement
Birna er 16 ára og dóttir Unnars Hólm Ólafssonar og Helgu Jóhannu Harðardóttur og svo á tvær yngri systur, Erlu Hrönn og Örnu Hlín.
Birna er í 10. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja og æfir vanalega átta sinnum í viku handbolta og fótbolta „og svo fer ég 2-3x í akademíuna hjá GRV.“
Birna segist titilinn íþróttamaður æskunnar mjög hvetjandi „Er mjög stolt að hafa fengið þessa viðurkenningu og hvetur mig áfram til að stunda mínar íþróttir af krafti.“ Hún segist setja sér það markmið ár hvert að halda áfram að bæta sig sem leikmann og einnig að liðin hennar verði enn betri. Einnig er markmið hennar að ná titil í handboltanum. Hún lifir eftir mottóinu að standa sig vel og vera góður einstaklingur.
Uppáhaldsmatur Birnu er Rjómapasta með pylsum, helst með eplasalati á kantinum.
Í símanum notar hún mest Snapchat og TikTok og segist líklega fara oftast inn á google.com.
Þegar stund gefst milli æfinga og náms finnst henn best að bara chilla eða vera með vinum.
Birna María Unnarsdóttir er ung og mjög efnilegur iðkandi í fótbolta og handbolta. Hún hefur verið valin í landslið í báðum íþróttagreinunum og spilað opinberlega

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Aðspurð um það besta við að búa í Eyjum segir hún það vera „fjölskyldan, vinirnir, þægilegt umhverfi og ÍBV.“