1 minute read

ÍÞRÓTTAMAÐUR ÆSKUNNAR ELDRI: Elmar Erlingsson

Síðastliðið sumar spilaði hann svo með 2. flokki ÍBV í knattspyrnu. Elmar stimplaði sig svo rækilega inn í lið meistaraflokks karla í handknattleik á síðasta tímabili og lék hann eftirminnilega í úrslitakeppninni síðasta þar sem ÍBV tapaði naumlega gegn Val í úrslitaeinvíginu.

Elmar hefur verið í yngri landsliðum síðastliðin ár og í sumar var hann fyrirliði í U18 ára landsliði íslands sem tók þátt í Evrópumeistaramótinu, þar sem liðið endaði í 10. sæti keppninnar. Elmar er duglegur og samviskusamur iðkandi og góð fyrirmynd. hverfi og ÍBV.

Advertisement

Elmar er 18 ára og er sonur Vigdísar Sigurðardóttur og Erlings Birgis Richardssonars. Systkini hans eru tvö þau Sandra og Andri. Ásamt íþróttunum stundar Elmar nám við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. „Ég æfi oftast á hverjum degi vikunnar og lyfti með því,“ sagði Elmar um tíðni æfinganna. Þá sagði hann viðurkenninguna Íþróttamaður æskunnar mikinn heiður og hvatningu.

„Það er mikill heiður og þakklæti og gefur manni meiri hvatningu í að halda áfram á sömu braut.“ Þá sagðist hann reyna að setja sér árlega það markmið að bæta sig í því sem hann er að gera og lifir hann eftir mottóinu „æfingin skapar meistarann!“

Elmar Erlingsson er kraftmikill og fjölhæfur íþróttamaður en hann lék bæði hand- og fótbolta á liðnu ári með góðum árangri og af miklum móð. Elmar hefur verið mjög öflugur í sínum aldursflokki í báðum íþróttunum og á síðasta ári fór hann að æfa með meistaraflokkunum. Hann æfði með meistaraflokki karla í knattspyrnu í byrjun árs ásamt því að spila handknattleik með ÍBV í Olísdeildinni.

Aðspurður um uppáhaldsmat sagði Elmar, Pasta carbonara skora hátt. Þá sagðist hann mest nota „Gamla góða Snapchat og Instagram“ í símanum en þó mest vera inni á Handbolti.is þegar kemur að vefsíðum.

Á milli æfinga, leikja og námsins reynir hann svo bara að slaka á, fara í sund og hitta vini. Aðspurður um það besta við að búa í Eyjum sagði Elmar „Ég dýrka samfélagið hérna og íþróttamenninguna.”

Fundir eru sem hér segir:

Sunnudaga kl. 11.00

Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur

Miðvikudaga kl 20.30

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30

Opnunartímar:

Mánudagur - lokað

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

This article is from: