
4 minute read
HEILSUDAGURINN Í SAFNAHÚSI
Tígull heyrði í nokkrum sem að kítku við í Safnahús á heilsudaginn síðastliðinn sunnudag og fékk að heyra hvernig þeim leist á og hvað þeim fannst áhugaverðast.
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Advertisement
Mér leist vel á viðburðinn, frábært framtak, meira af svona takk.
Hvað fannst þér áhugaverðast?
Mér fannst áhugaverðast hvað allir eru farnir að leggja áherslu á svefn í daglegri rútínu jafnt við hreyfingu.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
Starf/menntun: fræðingur. viku þegar ég er landi. Er búinn að betrumbæta með nokkrum stigum aðstöðuna síðan þá. En þetta er minn upphálads tími í vikunni. Einn inni í bílskúr, ber að ofan, öskrandi á lóðin og sjálfan mig. Hlustandi
Nafn: Vilborg Þórunn Stefánsdóttir.
Æfa daglega ásamt því að leggja upp með hreinu mataræði. Erum með frábæra tíma og þjálfara í boði hér í Eyjum, Dugnaður, Crossfit, hlaupaþjálfun/Eyjaskokk. Hvet fólk bara að byrja og mæta!
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Mjög vel, ég sá reyndar aðeins fyrri hlutann af fyrirlestrunum.
Hvað fannst þér áhugaverðast?
Mér fannst Sigurjón Ernir koma með áhugaverða punkta bæði varðandi mataræði, svefn og föstur. Þetta vekur mann til umhugsunar og það er aldrei of seint að byrja.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
Ég fer í leikfimi fjórum sinnum í viku og út að ganga þess á milli. Er að borða að mestu hreint fæði og kolvetnalítið.
Mér fannst hann mjög fræðandi og skemmtilegur. Hef sjálfur mjög gaman af þessum pælingum með mataræði og hreyfingu. Hafði mjög gaman af Viðarsdætrunum og mest þó af Sigurjóni Ultrahlaupara, sérstaklega með blóðsykurspælingarnar í sambandi við mismunandi mataræði. Síðan hef ég alltaf mjög gaman af Tryggva Hjalta sem ætlar að vera 200 ára.
Nafn: Theodóra Ágústsdóttir.
Fjölskylda: Carlos Guani, Ísafold og drengur væntanlegur í mars.
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Frábært framtak, vel sótt og augljóst að Vestmannaeyingar ætla sér að verða 200 ára.
Hvað fannst þér áhugaverðast?
Hversu mikilvægur svefn er heilsunni okkar og hversu mikil áhrif það hefur á okkur ef við erum vansvefta. Það hefur áhrif á næringuna, einbeitingu og taugakerfið okkar.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
Í byrjun síðasta árs fór ég að hlusta á líkamann minn, hvað hefur slæm áhrif á mig og tók lítil skref í átt að þeim markmiðum. Ég hætti að drekka dökkt gos, orkudrykki, minnkaði fæðu sem fór illa í mig, áfengi, tók út snjallforrit og dró úr símanotkun.
Nafn: Ágúst Halldórsson
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni? Ég keypti mér alvöru lóð og stöng ásamt hálf rekka og bekk fyrir bráðum áratug. Hef því stundað þungar lyftingar. Réttstöðu, hnébeygju og bekkpressu þrisvar í á hljóðbækur, tónlist eða podköst. Ég veit að fólk þolir ekki að heyra svona. En allavega fyrir mig þá væri ég bara einhver rækjusamloka með perustefni ef ég hefði ekki þessa aðstöðu. Það vara 3-4 tímar í þetta í viku sem er minni tími en venjulegt fólk eyðir í símanum sínum á dag. Síðan er þetta alltaf þess virði við að sjá aðdáunarsvipinn á Guðbjörgu minni þegar ég ríf mig úr að ofan fyrir hana áður en við förum í bælið.

ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS: Eiður Aron Sigurbjörnsson
Miðvikudaginn 1.febrúar var haldin viðurkenningarhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja.
Þar veitti Stjórn Íþróttabandalags
Vestmannaeyjaíþróttamanniársins og íþróttafólki æskunnar viðurkenningu. Tígull fékk að birta umsagnir stjórnarinnar um þá leikmenn sem hlutu þau verðlaun að þessu sinni.
Íþróttamaður Vestmannaeyja þarf til að bera að hafa skarað fram úr í íþrótt sinni og með framkomu sinni verið öðrum til fyrirmyndar.
Íþróttamaður Vestmannaeyja 2022 er Eiður Aron Sigurbjörnsson. Eiður Aron er fyrirliði karlaliðs ÍBV í knattspyrnu. Eiður lék með yngri flokkum ÍBV alla leið upp í meistaraflokk til ársins 2011 og er hann á þeim árum að berjast með ÍBV í efri hluta efstu deildar. Eiður heldur þá erlendis í atvinnumennsku þar sem hann spilar með liðum í
Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi við góðan orðstír en hann snýr svo aftur heim til Íslands þar sem hann semur við Val í Reykjavík og á þeim 4 árum sem hann er hjá Val vinnur hann þrjá Íslandsmeistaratitla. Eiður ákveður á hátindi ferils síns að snúa aftur heim til Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2021 og hjálpa sínu félagi að komast upp úr fyrstu deild og í deild þeirra bestu sem þeir og gerðu. Eiður Aron var svo lykilmaður í liði ÍBV á árinu 2022 og átti stóran þátt í að halda liðinu áfram í efstu deild. Eiður Aron er mikil fyrirmynd utan vallar sem og innan og var hann kjörinn besti leikmaður meistaraflokks karla í ÍBV árið 2022 . Í desember síðastliðinn skrifaði Eiður Aron svo undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild ÍBV, sem eru mikil gleðitíðindi fyrir ÍBV og Eyjasamfélagið allt.
Eiður Aron er 32 ára og eiga þau Guðný Ómarsdóttir, kærasta hans, saman börnin Emilíu Eir og Ómar Dag. Tígull tók létt spjall við Eið í vikunni sem leið. „Ég er bara mjög stoltur af þessu, alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir sín afrek í fótboltanum,“ sagði Eiður um viðurkenningu bandalagsins. Á milli sparka, vinnur Eiður í Ísfélaginu og segir hann það ganga bara vel saman. „Ætli við æfum ekki svona fimm sinnum í viku og svo einn leikur.“ Aðspurður hvort hann setji sér persónulega nýtt markmið fyrir hvert tímabil sagði hann það mjög einfalt. „Verða betri en tímabilið áður,“ enda lifir hann eftir því mottói að gefa 100% í það verkefni sem hann er í hverju sinni. Eftirminnilegast á ferlinum segir Eiður vera fyrsti Íslandsmeistaratitilinn. En hver skyldi vera erfiðasti andstæðingurinn á æfingum? „Ég verð að gefa Arnari Breka þetta,“ sagði Eiður og hló. „Mesti pepparinn er hins vegar Jón Ingason, ekkert eðlilega mikill peppari.“
Eiður sagðist líða mjög vel í Eyjum og kostina mjög marga „stutt að fara, fólkið og auðvitað veðrið.“ sagði Eiður og brosti og bætti svo við að lokum. „Mig langaði að þakka því fólki sem stóð við bakið okkur á síðasta tímabili og vonandi sjáum við enn fleiri á næsta tímabili.“