1 minute read

Vetnisbíll fór 1000 km

Toyota Mirai ók yfir þúsund km á einum vetnisgeymi

Franskt fjögurra manna teymi setti nýtt met þegar það ók Toyota Mirai yfir þúsund kílómetra á einum vetnisgeymi. Ferðin hófst snemma að morgni dags í maí 2021 frá vetnisstöð Hysetco í Orly skammt frá París og lauk eftir 1003 kílómetra. Þá var vetnisgeymirinn næstum tómur.

1003 kílómetrunum var ekið á þjóðvegum suður af París og staðfesti óháður þriðji aðili kílómetrafjölda og vetnisnotkun. Samkvæmt Toyota er um nýtt heimsmet að ræða. Grænt vetni var notað við mettilraunina og var meðalneyslan 0,55 kg / 100 km.

Nýr Mirai tilheyrir annarri kynslóð vetnisrafbíla frá Toyota. Skilvirkara eldsneytiskerfi, ásamt betri lofthreyfingu og meiri vetnisgeymslu, stuðlar að áætluðu drægi um 650 km við venjulegar akstursaðstæður. Ökumenn notuðu vísvitandi mjög hagkvæmt aksturslag til að ná metinu 1003 km en umfram það var engin sérstök aksturstækni notuð. Meðal fjögurra ökumanna sem settu metið var Victorien Errusard, einn af stofnendum Energy Observer. Aðrir ökumenn voru James Olden, verkfræðingur hjá Toyota Motor Europe, Maxime Le Hir, vörustjóri hjá Mirai og Marie Gadd framkvæmdastjóri hjá Toyota Frakklandi.

5,6 kg H2 = 1003 km

í

Vefverslun FÍB, öryggi og þægindi fyrir ferðalagið Nánar á FIB.is

This article is from: