
1 minute read
Átak um notkun öryggisbelta
Átaki hrint af stað um mikilvægi notkunar öryggisbelta
Samgöngustofa hefur hrint af stað átaki sem kallast Smellum saman. Þar er fólk minnt á að nota öryggisbelti og er farin svolítið nýstárleg leið til þess. Í staðinn fyrir að nota hræðslu og daprar staðreyndir er lögð áhersla á jákvæða nálgun, gleði og umhyggju fyrir hvert öðru. Í átakinu lét Samgöngustofa útbúa lag og tónlistarmyndband þar sem Króli og Rakel Björk syngja lagið Smellum saman. Lagið er nokkuð sjálfstætt og fjallar um ástina og lífið ásamt því að undirstrika að öryggið gefur okkur tækifæri til að njóta lífsins. Eins og við erum öll meðvituð um getur ein laus manneskja í bíl stórslasað aðrar þó þær séu í belti.
Því er þetta verkefni sem við þurfum að takast á við saman, allir í bílnum þurfa að smella beltunum – Smellum saman. Munum að vera jákvæð í umferðinni, spennum beltin og verum jákvæð og tillitsöm gangvart samferðafólki okkar í umferðinni.
