1 minute read

Rafbílavæðing á Íslandi

Ísland í öðru sæti í rafbílavæðingunni

– Norðmenn öflugastir

Tæplega þrír af hverjum fjórum Norðmönnum, sem keyptu sér nýjan bíl á síðasta ári, völdu nýorkubíl. Þetta kemur fram í könnun sem Trading Platforms vann þar sem fram kemur sala á endurhlaðanlegum bílum um heim allan.

Norðmenn hafa lengi verið leiðandi á þessum markaði en í mörgum löndum fjölgar rafbílum verulega.

Hlutdeild nýorkubíla í Noregi á árinu 2020 var 74,8%,

Ísland kom í öðru sæti með 45% og Svíar voru í þriðja sæti með 42,2%. Þess má geta að markaðshlutdeild rafbíla í Noregi var aðeins 1% fyrir rétt rúmum áratug. Í

Evrópu tvöfaldaðist sala á rafbílum annað árið í röð 2020. Rafbílar voru 20% bíla sem voru seldir í fyrra í Þýskalandi og um 15% í Bretlandi og Frakklandi.

Heildarsala nýorkubíla um heim allan var 2,5% árið 2019 af allri bílasölu en var komin upp í 4,2% árið 2020. Þær 15 þjóðir, sem eru með stærsta hlutann af endurhlaðanlegum bílum, eru í Evrópu en Kína kemur í 16. sæti. Í heimalandi Tesla, Bandaríkjunum, eru rafbílar og tengibílar aðeins 2,3% af heildarsölunni.

Nýleg norsk könnun leiðir í ljós að áhugi fyrir rafbílum er mestur hjá yngra fólki og hjá þeim sem hafa meiri menntun og hærri tekjur. Í aldurshópnum 34–49 ára svara allt að 76% því til að rafbíll verði fyrir valinu sem næstu kaup. Í könnuninni kemur þó fram að dísil- og bensíneigendur sveiflist fram og til baka í ákvörðunartöku sinni en íhugi á sama tíma að kaup á rafbíl væri skynsamur kostur sem vert er að skoða frekar.

Landsbyggðarfólk í Noregi er hlynntara rafbílum en þeir sem búa í borgum. Flestir á landsbyggðinni aka um á dísilbíl en nú hefur áhuginn á rafbílum aukist til muna. Í könnuninni kemur fram að eftir sem tekjurnar eru hærri þeim mun meiri áhugi er fyrir kaupum á rafbíl en jarðefnaeldsneytisbílum.

This article is from: