
2 minute read
Bíll ársins
Bíll ársins á Íslandi 2021
Volkswagen ID-4
Volkswagen ID-4 hlaut Stálstýrið um val á bíl ársins 2021 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands. Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) stendur að þessu kjöri. Bílablaðamenn frá bilablogg.is, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, FÍB–blaðinu, Viðskiptablaðinu og visir.is tóku þátt í lokaprófinu. Ekki fór fram val á bíl ársins í fyrra sökum kórónaveirufaraldursins. Í kjölfarið var tekin ákvörðun um að færa valið aftur til vormánaða. Verðlaunaðir voru 12 bílar sem komust í úrslit og sá sem flest stig hlaut Stálstýrið eftirsótta. BÍBB hefur staðið fyrir valinu á Bíl ársins frá árinu 2001 og notast við stigakerfi í tólf flokkum líkt og hjá öðrum þjóðum. Gefin eru stig frá 0 og upp í 10 og er því hámarks stigafjöldi hvers bíls 120 frá hverjum dómara. Lokaprófanir fóru fram 26. maí og eftir hana var ljóst hvaða bíll hlyti nafnbótina bíll ársins og um leið Stálstýrið eftirsótta.
Þess má geta að Volkswagen ID-4 hefur vakið verðskulduga athygli en bílinn var útnefndur „heimsbíll ársins“ (WCOTY) fyrir árið 2021. Bíllinn varð hlutskarpastur í vali rúmlega 90 blaðamanna frá 24 löndum. Í flokki minni jepplinga/jeppa komust tveir rafbílar í úrslit og einn tengiltvinnbíll. Bílarnir í úrslitum í flokknum voru: MG EHS PHEV, Skota Enyaq EV og Volkswagen ID-4. Í þessum flokki fékk Volkswagen ID-4 flest stig, alls 838.

Jóhann Ingi Magnússon frá bílaumboðinu Heklu tekur hér við Stálstýrinu úr hendi Finns Thorlacius.


Í flokki minni fólksbíla komust tveir rafbílar í úrslit ásamt einum sem knúinn er af jarðefnaeldsneyti. Bílarnir voru: Opel Corsa E, Toyota Yaris, Honda ES. Opel Corsa fékk flest stigin í þessum flokki, alls 768.
Í flokki stærri fólksbíla komust Volkswagen ID-3, Peugeot e-2008 og Opel Mokka í úrslit. Þar af voru tveir rafbílar og einn sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Volkswagen ID-3 fékk flest stig í þessum flokki, alls 780.
Í flokki stærri jepplinga/jeppa voru engir rafbílar. Þar komust í úrslit Ford Explorer, Kia Sorento og Land Rover Defender. Í þessum flokki fékk LR Defender flest stig, alls 776.



