3 minute read

Úrvinnslugjald drifrafhlaðna

Á síðasta þingi var til meðferðar mál nr. 708: Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. EES-reglur og hringrásarkerfi. Umsagnarbeiðnir voru sendar á bæjar- og sveitarfélög, opinbera aðila og samtök innan atvinnulífsins. Samtök neytenda fengu ekki umsagnarbeiðni. Málið var samþykkt sem lög í byrjun sumars. Framleiðandaábyrgðin er skýr innan evrópska efnahagssvæðisins hvort sem ökutækið er flutt inn af bílaumboði, bíleiganda sjálfum eða lögaðila sem flytur inn og selur. Þetta á við óháð því hvort ökutækið er framleitt í Evrópu eða annarri heimsálfu en gerðarviðurkennt til notkunar í Evrópu. Kanna þarf nánar ábyrgð framleiðenda vegna ökutækja sem innflutt eru ,,fram hjá“ umboðum frá þriðju löndum sbr. 19. gr. tilskipunar ESB 2006/66/EB. Neytendur hafa borgað úrvinnslu á drifrafhlöðum rafbíla við kaup á ökutækinu enda framleiðendur búnir að gera ráð fyrir þeim kostnaði í heildsöluverði þeirra ökutækja sem þeir framleiða. FÍB skorar á Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra að endurskoða þessa málsmeðferð.

Noregur – meðferð drifrafhlaðna eftir að akstursnotkun rafbíls líkur

Það verður fyrir rest að farga hverjum einasta bíl. Í Noregi annast fyrirtæki norskra bílainnflytjenda, Autoretur, móttöku, endurvinnslu og frágang ökutækja eftir að akstursnotkun líkur.

Sett var inn ákvæði um úrvinnslugjald á drifrafhlöður rafbíla með það að markmiði að ná utan um endurvinnslu og endurnýtingu þeirra. Drifrafhlöður eru rafhlöður og rafgeymar sem geyma orku til að knýja ökutæki áfram. Þetta ákvæði var í samræmi við tillögur starfshóps umhverfisráðherra um framkvæmd framleiðendaábyrgðar á rafhlöðum og rafgeymum sem skilaði af sér áliti fyrir rúmu ári síðan. Í starfshópnum sátu Ágústa Steingrímsdóttir, tilnefnd af Samtökum verslunar og þjónustu, Brynjar Elefsen Óskarsson, tilnefndur af Bílgreinasambandinu, Íris Gunnarsdóttir, tilnefnd af Úrvinnslusjóði, Margrét Bragadóttir, tilnefnd af Umhverfisstofnun, og Tryggvi Guðbjörn Benediktsson, tilnefndur af Félagi atvinnurekenda. Guðmundur B. Ingvarsson, tilnefndur af umhverfis– og auðlindaráðuneytinu, stýrði starfshópnum. Engin fulltrúi neytenda átti aðild að hópnum en FÍB gat sent inn stutt álit um tillögur hópsins. Athygli vekur að af sex fulltrúum koma þrír frá samtökum í atvinnulífinu en þeir starfa allir sem stjórnendur hjá bílaumboðum. Samkvæmt því sem FÍB kemst næst stendur til að hefja innheimtu á úrvinnslugjaldi af drifrafhlöðum rafbíla 1. janúar 2023. FÍB gerir alvarlegar athugasemdir við þessa framkvæmd og telur að þarna sé verið að leggja ný gjöld á neytendur sem þegar hafa borgað þetta vegna framleiðendaábyrgðar bílaframleiðenda í samræmi við tilskipun ESB 2006/66/EB sem Alþingi hefur þegar innleitt.

Í tilskipuninni segir í 8. gr. lið 4: .

Aðildarríkin skulu sjá til þess að framleiðendur rafhlaðna og rafgeyma fyrir vélknúin ökutæki, eða þriðju aðilar, komi á kerfum til söfnunar á notuðum rafhlöðum og rafgeymum fyrir vélknúin ökutæki frá notendum eða frá aðgengilegri söfnunarstöð í nágrenni þeirra ef þeim er ekki safnað samkvæmt kerfunum sem um getur í 1. mgr. 5. gr. tilskipunar 2000/ 53/EB. Þegar um er að ræða rafhlöður og rafgeyma fyrir vélknúin ökutæki sem koma frá vélknúnum ökutækjum sem eru í einkaeigu og eru ekki notuð í atvinnuskyni skulu slík kerfi hvorki fela í sér gjald af hálfu notenda þegar þeir fleygja notuðum rafhlöðum eða rafgeymum né skyldu til að kaupa nýja rafhlöðu eða rafgeymi. Tiltölulega fáar drifrafhlöður úr rafbílum eru að skila sér inn í endurvinnslu í Noregi þrátt fyrir að engin þjóð selji hlutfallslega fleiri rafbíla en Norðmenn. Innan fárra ára gera þeir ráð fyrir að umtalsvert magn drifrafhlaðna muni skila sér inn til endurvinnslu. Aðrar kröfur eru varðandi meðhöndlun og frágang bíladrifrafhlaðna samanborið við startgeyma. Til að mæta þessu er Autoretur í samstarfi viðBatteriretur um úrvinnslu rafbíla og tvinnbíla. Forvígismenn Batteriretur segja að endurvinnsluhlutfall sé mjög hátt í drifrafhlöðum. Efnin í þeim eru endurnýtt og hluti af rafhlöðunum fær annað hlutverk. Drifrafhlaða getur enn verið með umtalsverða rýmd þótt hún sé ekki fullnægjandi til að knýja bíl. Þessar bílarafhlöður má nýta fyrir orkugeymslu og aflstöð fyrir t.d. heimili eða frístundahús. Hægt er að safna orku inn á rafhlöðurnar til geymslu með sólarsellum eða þegar raforkuverð er hagstætt.

This article is from: