
7 minute read
Þjónusta við vetnisbíla
Í maí 2019 breyttist bensínstöð Orkunnar norðan Miklubrautar í fyrstu fjölorkustöð landsins þar sem ökumenn og aðrir notendur gátu keypt nær alla endurnýjanlega orkugjafa sem framleiddir eru til samgangna hér á landi auk hefðbundins jarðefnaeldsneytis. Um sögulegan atburð var að ræða í orkusölu landsins því að í fyrsta skipti mátti gera slíkt á sömu áfyllingarstöðinni. Miklar vonir voru bundnar við opnun þessarar stöðvar og þótti hún marka ákveðið upphaf og framfaraspor að margra mati. Metangasið kom frá urðunarstað Sorpu í Álfsnesi, hraðhleðsla fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla frá Orku náttúrunnar (ON) og þá var hægt að fá vetni sem ON framleiðir með rafgreiningu í Hellisheiðarvirkjun. Fjölorkustöðin við Miklubraut var samstarfsverkefni sem hafði verið í undirbúningi um langt skeið og Evrópusambandið styrkti um tvær milljónir evra.
Þjónustan ekki nógu góð
Nú eru breyttir tímar því að fjölorkustöðinni við Miklubraut hefur verið lokað og hafa eigendur vetnisbíla aðeins aðgang að vetni fyrir bílana á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, annars vegar á Vesturlandsvegi í Reykjavík og við Fitjar í Reykjanesbæ hins vegar. Það er ljóst að þjónustan við vetnisknúna bíla er ekki eins og best verður á kosið. Hvað veldur því og hvað ber framtíðin í skauti sér? Hjá Orku náttúrunnar fengust þær upplýsingar að fyrirtækið framleiði vetni við Hellisheiðarvirkjun og selji í smásölu til Íslenska vetnisfélagsins (ÍV), dótturfélags Skeljungs. „Vetnisframleiðslan á Hellisheiði hefur gengið vel en framleiðsla hófst af alvöru seinni hluta ársins 2020. Covid–takmarkanir settu strik í reikninginn varðandi áfyllistöðvarnar. Óvæntar rekstrarstöðvanir drógust á langinn þar sem skortur var á þjálfuðum mannskap í þau verk og bíða þurfti eftir erlendum aðila til að sinna þeim. ÍV er nú búið að þjálfa aðila og ætti því að vera minna um niðurtíma vegna viðhalds. Undanfarið hefur samstarf ON og ÍV gengið vel og eins og staðan er í dag þá annar framleiðslan vel þeirri eftirspurn sem er til staðar,“ segir Hólmfríður Haraldsdóttir sérfræðingur í orkumiðlun hjá Orku náttúrunnar.
Framboð af bílum og vetnisstöðvum þarf að haldast í hendur
Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi, var spurður hvernig gengi almennt fyrir eigendur vetnisbíla að nálgast og fá vetni á bílana sína og hvað mætti betur fara í þessum efnum? „Núna eru tvær vetnisstöðvar starfræktar, í Reykjavík og Reykjanesbæ. Eigendur vetnisbíla hafa því ekki enn sem komið er eins greiðan aðgang að orku og eigendur annarra bíla. Framboð af bílum og vetnisstöðvum þarf að haldast í hendur. Vetnisbílarnir eru fáir og þó stöðvarnar séu aðeins tvær gætu þær sinnt margfalt fleiri bílum en eru í umferð,“ sagði Páll. – Hvað með framboðið á vetnisbílum. Nægir það og er áhugi enn fyrir hendi hjá umboðinu varðandi þessa bíla? „Okkur hjá Toyota finnast vetnisbílar vera mjög spennandi kostur því að þeir geta sinnt eftirspurn eftir rafmagnsbílum og hafa ýmislegt fram yfir venjulega rafmagnsbíla. Vetnisbílar eru í grunninn venjulegir rafmagnsbílar að því frátöldu að búið er að taka út hleðsluþáttinn og flýta fyrir með því að búa til vetni með rafgreiningu sem svo aftur er breytt í rafmagn í bílnum sjálfum. Þannig sparast sá mikli tími sem fer í að hlaða rafbíla því að einungis tekur nokkrar mínútur að fylla bílinn af vetni.“ — Hver er sýn Toyota á framtíð vetnisbíla og þjónustu við vetnisbílaeigendur? „Við sjáum ekki annað en að úrval vetnisbíla muni aukast, sérstaklega í stærri bílum, strætisvögnum, rútum og vöruflutningabílum en einnig í stærri fólksbílum,“ sagði Páll Þorsteinsson.
100% rafdrifinn MG ZS EV Luxury
Langtímaleiga FLEX aðeins 79.990 kr. á mánuði
Með langtímaleigu FLEX er allt innifalið fyrir almennan rekstur bílsins: Dekk, ábyrgðarskoðun, þjónustuskoðanir og tryggingar. Um er að ræða 36 mánaða leigu með inniföldum 18.000 km akstri á ári. Hafðu samband við okkur og kynntu þér langtímaleigu á nýjum MG.
Verð á MG ZS EV Luxury: 4.590.000 kr.


Nýr og glæsilegur MG ZS EV Luxury er 100% rafdrifinn 5 manna fjölskyldubíll. Rafhlaðan er 44,5 kWh og drægni er 263 km (WLTP-prófun). Tekur við allt að 85 kW hraðhleðslu.
Meðal staðalbúnaðar í MG ZS EV eru sjálfvirk há/lág aðalljós, skynvæddur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun, akreinavari og akreinastýring, E-Call neyðarhringing og leiðsögukerfi með Íslandskorti. Aukabúnaður í Luxury: bakkmyndavél, blindhornsviðvörun, upphituð framsæti, opnanlegt glerþak, regnskynjari, brekkubremsa, 17" álfelgur, 6 hátalarar o.fl.
Verið velkomin í reynsluakstur!

Takmarkandi er að aðgangur að vetni sé hvergi nema á suðvesturhorninu
Heiðar Jón Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, segir að nú sé ágætt að eiga við það að fylla á vetni. Tvær stöðvar séu virkar, Fitjar og Vesturlandsvegur. Það er handhægt að dæla og á færi allra almennra notenda. Þó er takmarkandi að aðgangur að vetni er hvergi annarstaðar á landinu. Þetta skýrist líklega af því að uppbygging er dýr en viðbúið er að innviðir muni líklega vaxa með aukinni notkun. „Fram til þessa hefur einungis verið í boði að kaupa fólksbíla eða jepplinga á Íslandi. Við hjá Hyundai á Íslandi höfum átt vetnisbíl á lager frá 2018. Hyundai hefur sett mikla vinnu í þróun á rafbílum. Við bjóðum í dag upp á vöruflutningabíla, strætisvagna, rútur og fólksbíla. Hyundai á Íslandi hefur menntað fólk í þjónustu við vetnisbíla og mun viðhalda þeirri þekkingu og þjónustu að óbreyttu,“ sagði Heiðar Jón Sveinsson hjá Hyundai.
Ekki gott í svona frumkvöðlaverkefni

Aðspurður hvort einhver vandræði hafi verið varðandi áfyllingu á vetnisbílana sagði Heiðar ekki hafa frétt af neinum vandræðum með slíkt þegar stöðvarnar eru að fullu virkar. „Komið hefur upp að vetnisdælurnar hafi bilað og eins stundum gengið illa að fylla tankinn. Það er að sjálfsögðu bagalegt og ekki til framdráttar í svona frumkvöðlaverkefni. Ég tel að verið sé að vinna við að bæta,“ sagði Heiðar. Hvað er vetni? Vetni er lofttegund sem er til staðar í miklu magni í alheiminum en á jörðu fyrirfinnst hún að mestu leyti í vatni og lífrænum efnasamböndum. Nýta má vetni til að knýja bíla en þá þarf hreint vetni til að setja á þá. Ein leið til að framleiða vetni er með rafgreiningu vatns sem skilur að vetni og súrefni úr vatnssameindunum. Rafgreining er orkufrek og byggir á raforkunotkun en að loknu framleiðsluferlinu er vetninu safnað saman og geymt á þrýstihylkjum sem orkuberi rafmagns í sama skilningi og rafhlöður. Þar sem rafmagn á Íslandi er framleitt með endurnýjanlegum orkugjöfum er vetni framleitt hér einnig endurnýjanlegt. Vetnisbílar eru líkir rafbílum að því leyti að þeir innihalda rafmótor sem knýr bílinn áfram. Í vetnisbíl er rafgeyminum sem orkubera skipt út fyrir vetnisþrýstihylki og við bætist efnarafall. Í efnarafal er rafmagn og vatn framleitt úr efnaorku sem losnar við efnahvarf vetnis og súrefnis. Raunar er hægt að brenna vetninu í sprengihreyflum líkt og bensíni en vegna þess hve dýrt er að framleiða vetnið er yfirleitt horft til efnarafala sem hafa um 2,5 sinnum betri orkunýtingu en sprengihreyflar.
Erlendir bílaframleiðendur hafa mikla trú á vetni til frambúðar

Erlendir bílaframleiðendur hafa mikla trú á vetni til frambúðar og hafa nokkrir þeirra hafið samstarf á þessu sviði. Daimler Truck AG og Volvo Group eru í samstarfi um framleiðslu á eldsneytiskerfi fyrir ökutæki sem nota vetni til eldsneytis. Eldsneytiskerfið er einkum hugsað fyrir stóra vetnisknúna atvinnubíla sem ætlaðir eru til lengri ferðalaga.
Þessir tveir stóru bílaframleiðendur hafa stofnað til samstarfs um þessa þróunarvinnu og kallast hún cellcentric.
Sérfræðingar eru fullvissir um að þegar eftirspurn eftir vetni eykst og smásölumarkaðir þróast fari hleðslustöðvar fyrir vetni einnig í fjöldaframleiðslu og muni það lækka dreifingarkostnað og verð. Í umfjöllun í FÍB–blaðinu um vetnisknúnar bifreiðar á síðasta ári kom fram að mikil þróun er í framleiðslu efnarafala og hefur Toyota gefið út að bílar með slíkan búnað verði orðnir ódýrari en bæði rafhlöðu- og brennsluvélabílar árið 2025 þrátt fyrir miklar framfarir í þróun drifrafhlaðna.
Vetnisbílar hafa átt undir högg að sækja
Einnig ætlar suður–kóreski bílaframleiðandinn Hyundai ekki að láta deigan síga í framleiðslu á vetnisbílum á næstu árum ef marka má markmið fyrirtækisins og í yfirlýsingu skömmu fyrir síðustu áramót. Þar segir að vetnisbílar hafi átt undir högg að sækja á
síðustu árum en markmið Hyundai er að snúa þeirri þróun við og framleiða 700 þúsund vetnisbíla á næstu tíu árum.
Forvígismenn Hyundai segjast hafa mikla trú á vetnisbílum sem eru um margt hagstæðari í rekstri en venjulegir rafbílar. Fyrirtækið segir fjárfestinguna gríðarlega mikla en með bjartsýni að vopni er hægt að komast langt. Kínversk stjórnvöld hafa uppi áform að styðja meira við framleiðslu á vetnisbílum en gert hefur verið fram til þessa. Innleiða á nýja stefnu sem hefur það markmið að hvetja neytendur til að kaupa þessa bíla. Kína er langstærsti markaðurinn fyrir nýorku-, tengiltvinn- og vetniseldsneytisrafbíla í heiminum.
Önnur kynslóð af vetnisbílnum Toyota Mirai kom á markað 2020