2 minute read

Dómur um akstursdrægni

Áhugaverður dómur í Noregi um akstursdrægni tengiltvinnbíls á raforku

Héraðsdómur í Osló dæmdi nýverið Mitsubishi Motors í Noregi fyrir villandi auglýsingar varðandi akstursdrægni Mitsubishi Outlander tengiltvinnbíls á raforku.

Oslóarbúi keypti Mitsubishi Outlander af söluumboðinu Motor Forum fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Kaupin voru gerð á grundvelli þess að auglýst akstursdrægni bílsins dygði honum til að aka til og frá vinnu á rafmagni. Eftir að hafa fengið bílinn náði hann engan veginn þeirri drægni sem lofað var.

Kaupandinn kvartaði fyrst til Úrskurðarnefndar í neytendakaupum í Noregi sem úrskurðaði neytandanum í vil. Motor Forum undi ekki úrskurðinum og áfrýjaði til héraðsdóms.

Lækkun á kaupverði

Héraðsdómur í Osló komst að þeirri niðurstöðu líkt og Úrskurðarnefndin að Mitsubishi hafi veitt bæði villandi og rangar upplýsingar í auglýsingum og kynningargögnum þar sem fram kom að akstursdrægnin á rafmagni væri 54 kílómetrar. Héraðsdómur taldi rangar upplýsingar um drægni hafa haft veruleg áhrif á viðskiptin.

Kaupandinn krafðist riftunar á kaupunum og endurgreiðslu á kaupverðinu gegn því að skila bílnum. Dómurinn féllst ekki á þá kröfu en dæmdi að kaupandinn ætti að fá endurgreidda lækkun á kaupverði bílsins upp á 20.000 norskar krónur sem gerir um 285.000 íslenskar krónur á núverandi gengi.

Fordæmisgildi

Þrátt fyrir að upphæð endurgreiðslunnar í dómnum sé ekki há gæti dómurinn haft verulegar afleiðingar og áhrif á markaðnum fyrir bílasala, bílainnflytjendur og neytendur sem kaupa hleðslubíla og rafbíla.

Í frétt NAF, systurfélags FÍB í Noregi, er haft eftir forstjóra Mitsubishi Motors í Noregi að þar á bæ sé ekki búið að taka endanlega ákvörðun um áfrýjun en að lögmenn fyrirtækisins séu að fara yfir dóminn.

Óánægja viðskiptavina með drægni

Margir rafbíla- og tengiltvinnbílaeigendur í Noregi hafa leitað til NAF og kvartað yfir akstursdrægni bíla sinna. NAF hefur í nokkrum tilvikum farið fram á endurgreiðslu eða afslátt fyrir hönd félagsmanna sem í flestum tilvikum hefur verið hafnað af söluaðilum. Fimm af sex kvörtunum til Úrskurðarnefndar í neytendakaupum á liðnum misserum um drægni raf- og tengiltvinnbíla var hafnað.

NAF telur dóminn jákvæðan fyrir neytendur

„Fáir úrskurðir hafa fallið varðandi akstursdrægni í Noregi og þess vegna er dómurinn jákvæður fyrir neytendur. Mikilvægt er að fá dóm sem segir að upplýsingar um drægni verði að vera raunhæfar,“ er haft eftir

Vigdis Svennungsen sem er í forsvari fyrir lögmannsstofu NAF.

Ísland

Íslensk lög um neytendakaup taka sérstaklega mið af norskum rétti og því má gera ráð fyrir að þessi dómur geti haft áhrif hér á landi. Mitsubishi Outlander PHEV hefur verið vinsælasti tengiltvinnbíllinn á íslenskum markaði á liðnum 5 árum. Hekla, umboðsaðili Mitsubishi á Íslandi, gefur upp 45 km akstursdrægni (WLTP) MMC Outlander Phev á raforku í bæklingi á netinu.

Mitsubishi Motors var dæmt til að veita afslátt af kaupverði bíls þar sem bíllinn komst að hámarki aðeins 40 kílómetra á rafhleðslunni. Mitsubishi Motors auglýsti allt að 54 kílómetra akstursdrægni á raforku. Rangar og villandi upplýsingar er niðurstaða héraðsdóms Oslóar.

This article is from: