

Efnisyfirlit

Skissur
Hugmyndaferlið mitt byrjar alltaf á annað hvort skissu á blaði eða Ipad teikningu. Ég hef notast við Ipad mikið þegar ég mála. Oft tek ég myndir inn á milli þegar ég er að mála af málverkinu og teikna ofan á myndina í Ipadinum, eins og sést á efri myndinni til hægri. Þar teiknaði ég skissu af hvernig munstrið gæti litið út á strigunum. Ég fæ innblástur aðalega af Pinteresd, gömlum skissum, myndum sem ég tek sjálf og Instagram.



Hér má sjá dæmi um hugmyndavinnu sem ég notaðist við þegar ég málaði í kringum spegil á vegg. Eins og sjá má á myndinni til vinstri þá byrjaði ég að taka mynd af speglinum, teiknaði inn á myndina og hermdi svo eftir myndinni í Ipadinum.

Svo er myndin til hægri útkoman með akrýl málningu.

Blýantsteikningar

Áður en ég byrjaði að mála blýantseiknaði ég mikið og vakti myndlistaráfangi í Menntaskólanum við Sund áhuga minn. Hér eru nokkrar myndir sem ég teiknaði á þeim tíma.
Þessa mynd teiknaði ég af ömmu minni. Þessi mynd er af vinkonu minni. Þessa mynd fann ég á Pinterest.


Þetta verk var tilraun hjá mér að
útfæra hamingjulegt málverk í
gegnum sveppi. Ég notaði
ólíumálningu og steinaði svo
plast steina á stilkana hjá þeim.
Málverk

Ég mála mikið með olíumálningu og hef gaman af því að fikra mig áfram með litum og blöndunartækni. Hér eru dæmi um málverk sem ég hef málað nýlega.
Þetta verk er um ástríðu tveggja kvenna. Ég
notaði ,,inverted filter’’ í símanum til að hafa litina
öfuga svo ég hefði hugmynd af hvernig litirnir ættu að fara saman.

Þetta verk hefur mikið tilfinningagildi hjá mér. Ég málaði það með vatnsblandaðri Akrýl málingu, ég
hellti málingunni á rammann og svo snéri ég rammanum til hliðar svo málningin myndi leka eins og

ég vildi. Ég málaði þetta þegar ég var í námi í Háskóla Ísland, ég var í miðnum lokaprófum og þurfti
mikla útrás fyrir tilfiningarnar mínar. Mér leið líklegast ekki alveg nógu vel á þessum tímapunkti
vegna álags og finnst mér það túlkast í málverkinu þegar litið er á það.
Myndina hérna til hægri er mynd sem ég málaði af systur minni í útskriftargjöf. Hún er teiknuð upp eftir ljósmynd með svo máluð með olíumálingu, munstrið í bakgrunninum er málað með Akrýl málningu.
Málverk
Myndin hérna til vinstri er ekki fullklárið en mig langaði að hafa hana með. Líkaminn er málaður eftir módeli sem ég tók mynd af. Hugmyndin af þessari mynd togaði mikið í mig, þar sem hún er túlkun af staðnum sem ég er á í dag. Hún á að tákna frelsi og núvitund.




Þessi tvö málverk voru máluð með olíumálningu.
Þessi mynd er máluð með olíumálningu. Þetta mynstur er ein útgáfa af týpum af munstri sem er fast
í hausnum á mér, og ég hef teiknað marg oft. Hér


langaði mig einnig að setja dýpt í myndina svo ég bætti við skyggingum. Þessi mynd er máluð á tvo striga.
Þessi mynd er máluð með Akrýl málningu og gerð á þrjá striga.
Ég hef frekar nýlega byrjað að nota Ipadin í
annað en að skissa og útfæra hugmyndir.
Hér eru nokkrar nýlega gerðar myndir í
Ipad.



Þessi mynd á að tákna sjálfsvinnu. Litirnir undir húðinni eiga að tákna ,,sjálfið hennar’’ allt það litríka og fallega sem hún er undir öllu.
Hér var ég að reyna að gera áferð sem á að líkjast málmi.