
1 minute read
Blýantsteikningar
from Lhí portfolio
by lalalalalala
Áður en ég byrjaði að mála blýantseiknaði ég mikið og vakti myndlistaráfangi í Menntaskólanum við Sund áhuga minn. Hér eru nokkrar myndir sem ég teiknaði á þeim tíma.
Þessa mynd teiknaði ég af ömmu minni. Þessi mynd er af vinkonu minni. Þessa mynd fann ég á Pinterest.
Advertisement

Þetta verk var tilraun hjá mér að útfæra hamingjulegt málverk í gegnum sveppi. Ég notaði ólíumálningu og steinaði svo plast steina á stilkana hjá þeim.
Málverk

Ég mála mikið með olíumálningu og hef gaman af því að fikra mig áfram með litum og blöndunartækni. Hér eru dæmi um málverk sem ég hef málað nýlega.
Þetta verk er um ástríðu tveggja kvenna. Ég notaði ,,inverted filter’’ í símanum til að hafa litina öfuga svo ég hefði hugmynd af hvernig litirnir ættu að fara saman.

Þetta verk hefur mikið tilfinningagildi hjá mér. Ég málaði það með vatnsblandaðri Akrýl málingu, ég hellti málingunni á rammann og svo snéri ég rammanum til hliðar svo málningin myndi leka eins og ég vildi. Ég málaði þetta þegar ég var í námi í Háskóla Ísland, ég var í miðnum lokaprófum og þurfti mikla útrás fyrir tilfiningarnar mínar. Mér leið líklegast ekki alveg nógu vel á þessum tímapunkti vegna álags og finnst mér það túlkast í málverkinu þegar litið er á það.
Myndina hérna til hægri er mynd sem ég málaði af systur minni í útskriftargjöf. Hún er teiknuð upp eftir ljósmynd með svo máluð með olíumálingu, munstrið í bakgrunninum er málað með Akrýl málningu.
Málverk
Myndin hérna til vinstri er ekki fullklárið en mig langaði að hafa hana með. Líkaminn er málaður eftir módeli sem ég tók mynd af. Hugmyndin af þessari mynd togaði mikið í mig, þar sem hún er túlkun af staðnum sem ég er á í dag. Hún á að tákna frelsi og núvitund.




Þessi mynd er máluð með olíumálningu. Þetta mynstur er ein útgáfa af týpum af munstri sem er fast í hausnum á mér, og ég hef teiknað marg oft. Hér langaði mig einnig að setja dýpt í myndina svo ég bætti við skyggingum. Þessi mynd er máluð á tvo striga.

Þessi mynd er máluð með Akrýl málningu og gerð á þrjá striga.