N ja r ða r b r au t 1 1 a Engar tímapantanir
in Stöndum vakt
a!
Miðvikudagur 3. desember 2025 // 34. tbl. // 46. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
DAGLEGAR FRÉTTIR
Jólalukka VF í tuttugasta og þriðja sinn í 18 verslunum Sjöþúsund vinningar frá fimmtíu fyrirtækjum á Suðurnesjum auk veglegra útdráttarvinninga Átján verslanir á Suðurnesjum eru með í Jólalukku Víkurfrétta 2025 sem hefst 5. desember en þetta er í tuttugasta og þriðja skipti sem Víkurfréttir standa fyrir þessum vinsæla skafmiðaleik í samvinnu við verslanir í Reykjanesbæ í desember. Sjö þúsund vinningar verða skafðir af Jólalukk2025 umiðum fyrir þessi jól en þeir eru frá fimmtíu fyrirtækjum á Suðurnesjum. Þá verða sextíu vinningar í þremur útdráttum í desember ta en dregið verður úr kur Víkurfrét Skafmiðalei miðum (með engum vinningi á) sem skilað er í Nettó verslanir í Njarðvík og Keflavík. Stærsti útdráttarvinningurinn er glæsilegur hægindastóll frá Bústoð í Keflavík, fjögur Smart LG-sjónvörp auk tuttugu 15 þús. kr. inneignarvinninga frá Nettó. Nöfn verslana sem bjóða upp á Jólalukku VF má finna á bls. 7. Glæsilegir útdráttarvinningar eru frá fleiri aðilum sem sjá má í auglýsingu á bls. 8-9.
kk u l a l ó J
Líflegar ljósaskreytingar á Reykjanesveginum Á Reykjanesveginum í Njarðvík eru líflegar ljósaskreytingar núna fyrir jólin. Mikill metnaður hefur verið lagður í að lýsa upp íbúðarhúsið og garðinn og svo virðist sem nýjar skreytingar bætist við á hverjum degi. Svona var staðan í byrjun mánaðarins. VF/hilmarbragi
a
ð i ð a l b a l r e ó b m Skapar um 100 störf í Helguvík J e s e d . 17 Tíu milljarða króna framkvæmd fyrir Atlantshafsbandalagið:
Fram undan eru umfangsmiklar framkvæmdir í Helguvík eftir að undirritaður var samningur við Atlantshafsbandalagið, NATÓ, um 390 metra langan viðlegukant við Helguvíkurhöfn. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir framkvæmdirnar skapa áætlað um 100 störf, bæði bein og óbein, og vona megi að flest þeirra falli í skaut heimamanna.
„Þetta mun þýða verulega uppbyggingu á næstu árum og styrkja rekstur Reykjaneshafnar,“ segir hann og bendir á að hafnargarðurinn nýtist einnig þegar herskip eru ekki við bryggju. Aukin skipaumferð skili auknu umfangi og tekjum inn í rekstur hafnarinnar og þar með bæjarsjóð. Kjartan segir nálægðina við Keflavíkurflugvöll og reynslu bæjarins af varnarmannvirkjum hafa
vegið þungt. „Við höfum lifað með þessari starfsemi í áratugi og látum hana ekki trufla daglegt líf. Það var margt skoðað en niðurstaðan varð Helguvík og við fögnum því.“ Hann bendir á að eftirspurn eftir iðnaðarlóðum í Helguvík sé góð og að skýr stefna sé um að land næst höfninni sé nýtt undir hafnsækna starfsemi. „Þetta er stór og jákvæður áfangi eftir sex til sjö ára vinnu,“ segir bæjarstjórinn.
Jólablað Víkurfrétta kemur út miðvikudaginn 17. desember næstkomandi. Blaðið verður veglegasta blað ársins frá okkur á Víkurfréttum, stútfullt af viðtölum við Suðurnesjafólk og öðru áhugaverðu efni. Vinnsla blaðsins stendur nú yfir og hvetjum við ykkur sem viljið koma að efni eða auglýsingum að vera tímanlega á ferðinni. Síðustu skil á efni í blaðið er föstudaginn 12. desember. Lokaskil á auglýsingum eru mánudaginn 15. desember. Póstfangið er vf@vf.is
Séð yfir hafnarsvæðið í Helguvík. Fremst á myndinni rís 390 metra langur hafnargarður og olíubyrgðastöð. VF/hilmarbragi
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í 45 ÁR