18.tbl.2013

Page 16

16

miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR

skólahreysti Magnað afrek hjá Holtaskóla sem sigraði Skólahreysti þriðja árið í röð

Holtaskóla-hreysti „Það er ekkert nema ást og umhyggja í matnum hérna hjá okkur,“ sögðu konurnar í mötuneyti Holtaskóla þegar blaðamaður ýjaði að því að það hlyti nú að vera eitthvað sérstakt í fæðinu sem gerði það að verkum að skólinn næði þessum einstaka árangri í Skólahreysti. Síðastliðinn fimmtudag náði Holtaskóli þeim ótrúlega árangri að sigra Skólahreysti í þriðja sinn í röð. Holtaskóli tók þátt í úrslitum ásamt Myllubakkaskóla sem hafnaði í fimmta sæti af 12 liðum. Lið Holtaskóla í ár var skipað þeim Theodór Sigurbergssyni, Kolbrúnu Júlíu Newman, Guðmundi Ólafssyni, Ingibjörgu Sól Jónsdóttur og Thelmu Hrund Helgadóttur. Bæði í riðlakeppninni og úrslitakeppninni sjálfri sigraði skólinn ekki eina einustu þraut. Það er þannig að liðsheildin og sú staðreynd að liðið er ofarlega í öllum þrautum sem skilar þessum frábæra árangri. „Ég átti alls ekki von á þessu og var hreinlega búinn að sætta mig við fjórða sætið. Þessu er bara stillt hérna upp fyrir okkur, við vinnum þetta alltaf,“ sagði Theodór í nokkurri geðshræringu að lokinni keppni í Laugardalshöll. Theodór viðukenndi að úrslitin hafi komið flatt upp á hann þar sem skólinn hafi ekki sigrað neina grein. Hann sjálfur sá um upphýfingar og dýfur fyrir skólann. Kolbrún Júlía Newman sem sá um armbeygjur var sátt við árangur liðsins en hún sagðist ekki eiga svör við því af hverju þessi uppgangur væri að eiga sér stað í Holtaskóla. Theodór var þó með þær skýringar að vel væri haldið utan um þessa keppni í Holtaskóla og mikil áhersla lögð á að æfa vel. Ætlaði sér Íslandsmet Þau Ingibjörg Sól Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson, sem sáu um hraðaþrautina, voru sigurreif þegar blaðamaður Víkurfrétta sveif á þau að lokinni verðlaunaafhendingu. Guðmundur átti æsilegan lokasprett í hraðaþrautinni þar sem

segja mætti að sigurinn hafi komið í hús. Á lokasprettinum sagðist Guðmundur Ólafsson hafa verið að hugsa um að bæta Íslandsmet frekar en um um að sigra keppnina. „Ég ætlaði mér Íslandsmet en sigurinn er mun betri,“ sagði Guðmundur. Íþróttakennarar Holtaskóla eiga sjálfsagt þátt í árangri liðsins þrátt fyrir að ábyrgðin sé sett töluvert í hendur keppenda. B ergþór Magnússon annar íþróttakennara skólans segir að krakkarnir séu samviskusamir og tilbúnir að takast á við hin ýmsu verkefni sem liggja fyrir. „Þau hafa frábærar fyrirmyndir sem hafa verið hérna undafarin ár. Þau feta í þeirra fótspor.“ Bergþór segir íþróttastarf í bæjarfélaginu vera til fyrirmyndar og vissulega hjálpi það líka til. „Það eru fá bæjarfélög sem státa af jafn öflugu íþróttastarfi og Reykjanesbær.“ Hetjurnar hylltar Haldin var sigurhátíð á sal Holtaskóla morguninn eftir hinn frækna sigur þar sem hetjur skólans voru hylltar. Skólastjórinn Jóhann Geirdal var stoltur af nemendum sínum en skólinn er nú sá eini sem sigrað hefur keppnina þrisvar sinnum en alls hafa níu keppnir verið haldnar. „Það er ábyggilega verið að gera eitthvað sérstakt hérna hjá okkur. Hvað það er er ekki gott að segja til um. Ég þakka fyrst og fremst liðsheildinni hérna í skólanum. Bæði nemendur, starfsmenn og foreldrar eru lifandi í því sem verið er að gera. Það er mjög mikilvægt.,“ segir Jóhann. Blaðamaður spyr að því hvort pressan verði nokkuð of mikil á næstu keppendur en þrír af fimm liðsmönnum verða frá að hverfa í framhaldsskóla næsta haust. „Það er auðvitað mikilvægt að passa að svo verði ekki. Auðvitað er gaman þegar að vel gengur og við vonumst eftir að svo verði áfram. Það er hins vegar mjög góður árangur að komast bara í þessa úrslitakeppni.“ Jóhann segir að árangur skólanna sé eftirtektaverður og að óvíða sé stemmningin fyrir Skólahreysti meiri en í Reykjanesbæ.

Fyrri árangur Suðurnesjamanna í Skólahreysti

Á

rangur skóla frá Suðurnesjum hefur verið frábær frá upphafi og eiga ungmenni héðan m.a. tvö Íslandsmet. Jóhanna Júlía Júlíusdóttir nemandi í Myllubakkaskóla tók 177 armbeygjur í fyrra. Þar bætti hún fyrra metið um 70 armbeygjur

sem verður að teljast alveg ótrúlegt. Fyrir skömmu vakti svo glæsilegt Íslandsmet Elvu Lísu Sveinsdóttur úr Njarðvíkurskóla verðskuldaða athygli. Heiðarskóli sigraði keppnina árið 2009 en skólinn hefur hafnað í öðru sæti árin 2010 og 2012.

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir bæjarfélagið mjög stolt af unga fólkinu sem hefur sýnt og sannað að þegar menn einsetja sér að ná árangri, æfa sig vel, hafa skýra sýn á markmiðið og kunna að framfylgja því þegar á hólminn

er komið, er allt hægt. „Þetta sýna nemendur okkar í Skólahreysti og eru einnig að sýna það í almennu bóknámi. Þetta er því gríðarlega mikilvæg aðferðarfræði fyrir allt lífið. Árangur unga fólksins okkar í Skólahreysti hvetur okkur öll

áfram, hvar sem við störfum, til að ná settum markmiðum og stuðla þannig að hamingju og heilbrigði allra íbúanna,“ sagði bæjarstjórinn í samtali við Víkurfréttir.

Guðmundur Ólafsson átti rosalegan endasprett í tímaþrautinni.

Bikarinn á loft.

Sindri Kristinn Óskarsson úr Myllubakkaskóla var ansi snöggur.

TIL HAMINGJU

MEÐ SIGURINN Í SKÓLAHREYSTI Reykjanesbær óskar Holtaskóla til hamingju með glæsilegan árangur í Skólahreysti, þriðja árið í röð. Reykjanesbær – heilbrigður bær!


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
18.tbl.2013 by Víkurfréttir ehf - Issuu