Hús feðra minna - Laura Daniela Cano Hurtado

Page 9

I Skýring Samúels frænda Ég á tvo feður. Til að fullnægja kröfum sannleikans ætti ég vissulega að eiga fimm, en félagarnir urðu sammála um að útnefna Pétur og Jóbald hina raunsönnu feður og gera þá Samúel, Gilbert og Lilla Johnson að eins konar Sögumaður. frændum. Ég var getinn og fæddur í ó­sköp Ljósm.: Óþekktur. venjulegu heimskautasambandi. Móðir mín var hviklynd stúlka af Tununerkiut ættbálkinum, eða eins og Samúel frændi útskýrði það fyrir mér síðar; hún hafði stórt hjarta og mjög heitt hjarta, sem svo auðveldlega hafði rúmað alla fjölskylduna. Ég fæddist sumardag einn á þriðja áratugnum. Móðir mín annaðist mig í sjö vikur en þá safnaði hún saman sínu stóra og gjaf­milda hjarta og skenkti það skinna­kaupmanni, Moisise að nafni, sem einmitt þá átti leið um svæði félaganna. Kamíkupósturinn sagði að parið hefði leitað til norðvestursvæðanna til að ferðast með Netsilik-eskimóunum, sem var hreint ekki ósennilegt, þar sem Moisise var getinn netsilik-konu af nokkrum valinkunnum mönnum í verslunarstöðinni við Warwickflóa. Móður mína bar aldrei á góma í húsi Péturs og ég, sem skildi ekki

HÚS FEÐRA MINNA I | 7


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.