Hús feðra minna I, Frásögn sem gerir andlitið fagurt

Page 9

I Skýring Samúels frænda Ég á tvo feður. Til að fullnægja kröfum sannleikans ætti ég vissu­lega að eiga fimm, en félagarnir urðu sammála um að út­nefna Pétur og Jóbald hina raunsönnu feður og gera þá Samúel, Gilbert og Lilla Johnson að eins konar frændum. Ég var getinn og fæddur í ósköp venjulegu heim­skauta­sam­bandi. Móðir mín var hviklynd stúlka af Tununerkiut ætt­bálkinum, eða eins og Samúel frændi útskýrði það fyrir mér síðar; hún hafði stórt hjarta og mjög heitt hjarta, sem svo auðveld­lega hafði rúmað alla fjölskylduna. Ég fæddist sumardag einn á þriðja áratugnum. Móðir mín ann­ aðist mig í sjö vikur en þá safnaði hún saman sínu stóra og gjaf­ milda hjarta og skenkti það skinna­kaup­manni, Moisise að nafni, sem einmitt þá átti leið um svæði félaganna. Kamíku­póstur­inn sagði að parið hefði leitað til norð­vestur­svæðanna til að ferðast með Netsilik-eskimóunum, sem var hreint ekki ósenni­legt, þar sem Moisise var getinn netsilik-konu af nokkrum valin­kunnum mönnum í verslunarstöðinni við Warwickflóa. Móður mína bar aldrei á góma í húsi Péturs og ég, sem skildi ekki nauðsyn slíkrar veru, saknaði hennar ekki. Mér nægði fóstur­móðir mín, Aviaja; elskuleg gömul eskimóakona sem mennirnir tóku í húsið skömmu eftir að ég fæddist. Það var fyrst þegar ég var tíu

HÚS FEÐRA MINNA I

|9


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Hús feðra minna I, Frásögn sem gerir andlitið fagurt by Tækniskólinn - Issuu