Skip to main content

Hús feðra minna I, Frásögn sem gerir andlitið fagurt

Page 1

Hús feðra minna I

FRÁSÖGN SEM GERIR ANDLITIÐ FAGURT

Jörn Riel


Hús feðra minna I

FRÁSÖGN SEM GERIR ANDLITIÐ FAGURT


Hús feðra minna I

FRÁSÖGN SEM GERIR ANDLITIÐ FAGURT Jörn Riel

Reykjavík 2019


Hús feðra minna I, Frásögn sem gerir andlitið fagurt Bókin heitir á frummálinu: Mine fædres hus I, En fortælling hvoraf man får et smukt ansikt © Jörn Riel Íslensk þýðing: © Haukur Már Haraldsson Útgefandi: Mál og menning 2019 Öll réttindi áskilin. Hönnun kápu: Bergdís Norðdahl Umbrot: Bergdís Norðdahl Prentvinnsla: Upplýsingatækniskólinn Bók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar eða útgefanda. ISBN 9788-7418-5774-9


Efnisyfirlit 1 Skýring Samúels frænda.............................................. 7 2 Pétur og húsið hans..................................................... 13 3 Um Gill frænda, Lilla Johnson og Sam....................... 17 4 Fundur Péturs og Jóbalds á Allensléttunni................... 23 5 Þegar Aviaja fannst...................................................... 31 6 Meira um Aviöju......................................................... 42 7 Jón ærlegi..................................................................... 51 8 Um Nikódemus........................................................... 58 9 Hundakaup herra Pickerins......................................... 69 10 Um trommusöng Ivitaqs og það þegar Gill frændi varð ástfanginn.......................................... 81 11 Um Kinguk og það sem síðar gerðist........................... 89 12 Táin hans Uleroqs........................................................ 101 13 Nonni níufingur........................................................... 112 14 Daginn fyrir brottför.................................................... 127 15 Downty City................................................................ 145 16 Brottförin..................................................................... 151


I Skýring Samúels frænda Ég á tvo feður. Til að fullnægja kröfum sannleikans ætti ég vissu­lega að eiga fimm, en félagarnir urðu sammála um að út­nefna Pétur og Jóbald hina raunsönnu feður og gera þá Samúel, Gilbert og Lilla Johnson að eins konar frændum. Ég var getinn og fæddur í ósköp venjulegu heim­skauta­sam­bandi. Móðir mín var hviklynd stúlka af Tununerkiut ætt­bálkinum, eða eins og Samúel frændi útskýrði það fyrir mér síðar; hún hafði stórt hjarta og mjög heitt hjarta, sem svo auðveld­lega hafði rúmað alla fjölskylduna. Ég fæddist sumardag einn á þriðja áratugnum. Móðir mín ann­ aðist mig í sjö vikur en þá safnaði hún saman sínu stóra og gjaf­ milda hjarta og skenkti það skinna­kaup­manni, Moisise að nafni, sem einmitt þá átti leið um svæði félaganna. Kamíku­póstur­inn sagði að parið hefði leitað til norð­vestur­svæðanna til að ferðast með Netsilik-eskimóunum, sem var hreint ekki ósenni­legt, þar sem Moisise var getinn netsilik-konu af nokkrum valin­kunnum mönnum í verslunarstöðinni við Warwickflóa. Móður mína bar aldrei á góma í húsi Péturs og ég, sem skildi ekki nauðsyn slíkrar veru, saknaði hennar ekki. Mér nægði fóstur­móðir mín, Aviaja; elskuleg gömul eskimóakona sem mennirnir tóku í húsið skömmu eftir að ég fæddist. Það var fyrst þegar ég var tíu

HÚS FEÐRA MINNA I

|9


ára og hafði um langt skeið fundið fyrir ein­hverju nýju og sætljúfu sunnan buxnastrengsins, að ég fór að velta fyrir mér leyndar­dómum tilurðarinnar. Kvöld nokkurt leitaði ég Sam frænda uppi til að fá forvitni minni fullnægt. Þetta var fagurt vorkvöld og Sam sat við ána og þvoði. Hann hafði, Aviöju til sárrar armæðu, ávallt verið mikill áhugamaður um fata­þvott. Og af sinni venjulegu hugkvæmni hafði hann smíðað út­ búnað, dráttarbúnað, sem að minnsta kosti veitti fötunum ákveðinn ferskleika, þótt hann þvægi þau ekki tandur­hrein. Úti í miðri ánni var komið fyrir gömlu skipsankeri. Frá ankerinu lá tvö­faldur koparþráður að árbakkanum. Á þræðinum var komið fyrir lykkjum með hálfs meters millibili og í þær var fest skyrtum, buxum, sokkum og hverju því öðru sem þarfnaðist þvottar. Síðan var allt togað út í ána þar sem vatnið freyddi um það yfir nóttina, eða lengur, eftir því sem Sam frænda þótti hæfilegt. Eftir þennan þvott var dreift úr plöggunum renn­blautum á lyngið að húsabaki, þar sem þau þornuðu fljótt í mið­nætur­sólinni. Á veturna fékk þvotturinn að frjósa í lengd sinni og var síðan stillt upp við húsgaflinn til hægfara vindþerris. Sam frændi notaði aldrei annað en vatn til þvotta. „Sápa,“ sagði hann, „er viðurstyggð sem eyðileggur bæði húð og föt.“ Sam frændi er lærður. Hann hafði farið í háskólann, var dr. phil. og notaði hálfgleraugu með mjög þykku gleri. Ég settist við dráttarbúnaðinn, lét bakhlutann hvíla á hælunum og vafði handleggjunum utan um hnén. „Sam frændi,“ sagði ég. „Hvaðan koma yrðlingar tófunnar?“ „Að aftan, drengur minn. Ævinlega að aftan.“ Ég taldi þetta fullnægjandi svar, þar sem ég hafði oft séð tófu gjóta. „En Pétur og Jóbald?“ hélt ég áfram. „Hvernig gátu þeir eignast mig? Hvernig gátu þeir það, Sam frændi?“ Sam togaði síðustu lykkjuna út í strauminn með skelfingar­r ykk.

10 | HÚS FEÐRA MINNA I


Fjölskyldan eldar kvöldmat

Ljósm: Loman bræður

Hann festi línuna vandlega áður en hann sneri sér við og leit á mig fölbláum augum yfir hálfgleraugun. „Þú áttir móður, drengur.“ „Hvað þá?“ „Móður. Þú komst úr einni svoleiðis.“ „Hvernig þá, Sam frændi?“ „Tja, það er nú ekki svo auðvelt að útskýra það.“ Hann hallaði undir flatt og sat um stund eins og hann væri að hrista vatn úr eyr­un­um. „Heyrðu, þú ættir heldur að spyrja feður þína. Reyndu Jóbald; hann getur áreiðanlega útskýrt þess háttar miklu betur en ég.“ „Ég er búinn að spyrja hann,“ sagði ég. „Hann vildi ekkert segja. Hann bara teygði handleggina í áttina að Ungfrú Mollý og hrópaði: „Herra, gef mér einnig styrk í þetta“ og svo þaut hann upp í fjall að kasta steinum í höfuðið á sér. Hann veit áreiðanlega ekkert um þetta, heldurðu það, Sam frændi?“ Ég færði mig nær honum. „Þegar

HÚS FEÐRA MINNA I

| 11


ég spurði Pétur, sagði hann að þú værir einn af þeim sem allt vissu. Hann sagði að þú gætir útskýrt jómfrúar­fæðingu fyrir mér, ef um slíkt væri að ræða. Hvað er eiginlega móðir?“ Sam stundi þungan. „Jæja, sagði Pétur það? Sagði hann það í raun og veru? Þá verð ég víst að reyna.“ Hann lagði handlegg um axlir mér og þrýsti mér að sér. „Sjáðu til, pjakkur litli. Við mann­fólkið erum ekki eins frábrugðnir öðrum spendýrum og við sjálfir viljum vera láta. Ef út í það er farið, erum við heldur ekki nema tvö skref frá trjám frumskógarins. Þú hefur áreiðanlega séð hvernig Angut stekkur stundum á Qaqataq, ekki satt?“ Angut og Qaqataq voru tveir af sleðahundunum okkar og voru oft leidd saman vegna gæða afkvæma þeirra. „Þau eru bara að leika sér,“ sagði ég, „það segir Pétur. Aviaja segir að þau séu að hlæja saman. Það er sennilega eins og þegar ég stekk höfrung yfir Lilla Johnson.“ Sam frændi tók handlegginn af öxlum mér og tók að fægja gler­augun sín. Ég settist á hækjur fyrir framan hann og hélt áfram sigri hrósandi. „En ég er bara miklu duglegri en Angut. Hann bara stendur bakvið Qaqataq og kemst ekki yfir hana. Ég kemst yfir Lilla Johnson í hvert sinn, líka þegar hann er með bein hné.“ Sam frændi hristi höfuðið. „Það getur vissulega líkst höfrunga­ hlaupinu þínu, en þó er það ekki fullkomlega það sama. Sjáðu til, hundarnir hafa ekki áhuga á að komast yfir og það hefur full­orðna fólkið reyndar ekki heldur, ef út í það er farið. Ef þú fylgist vel með Angut og Qaqataq næst þegar þau stökkva hvort á annað, tekur vandlega eftir því sem gerist og hvað það er í raun og veru sem þau eru að gera og ef þú telur svo dagana þar til Qaqataq gýtur hvolpum, þá skilur þú hvernig á því stóð að Pétur og Jóbald eignuðust þig með móður þinni.“ „Nú, þannig,“ sagði ég lítið eitt vonsvikinn. „Það vissi ég vel. Þá

12 | HÚS FEÐRA MINNA I


Angut sýnir brýnurnar

Ljósmynd: Corbis

hafa Pétur og Jóbald stokkið höfrung yfir sömu tíkina á þennan sérstaka hátt og stuttu síðar kom ég út úr henni þar sem hún pissar líka.“ „Á vissan hátt, drengur minn, var það einhvern veginn þannig.“ „Hvar er þá tíkin núna; þessi sem varð móðir mín?“ spurði ég. „Tja, það var þannig að hún fór í burtu með ungum manni, náunga sem hún vildi heldur … stökkva höfrung með.“ „En Sam frændi, heldurðu að hún eignist enn hvolpa?“ „Örugglega, vinur minn, örugglega. Hún er ennþá ung kona.“ Sam frændi svitnaði þótt kvöldið væri fremur svalt. „Hefur þú stokkið höfrung, Sam frændi?“

HÚS FEÐRA MINNA I

| 13


„Tja, já, það hef ég vissulega. En nú eru mörg ár síðan.“ „Ég gæti líka vel hugsað mér að prófa það,“ sagði ég. Við sátum og horfðum út á ána. Fötin börðust um í straumnum og línan var svo strekkt að ég gat náð fram tónum með því að slá á hana með fingrunum. Kvöldsólin skreið eftir fjalls­topp­unum og frá firðinum heyrðust snarpir hvellir frá ís sem brotnaði á flóðinu. „Sam frændi,“ hvíslaði ég. „Gat móðir mín spýtt langspýting?“ „Hún tuggði ekki skro, að mig minnir.“ „En gat hún það?“ „Það held ég ekki.“ „Það getur Aviaja,“ fullvissaði ég hann um, hamingjusamur.

14 | HÚS FEÐRA MINNA I


II Pétur og húsið hans Á lyngiklæddum skika, hundrað metra frá ánni og við rætur fjall­ sins sem kallað var Ungfrú Mollý af því enginn hafði áhuga á að komast upp á það, stóð húsið. Þetta var gott hús. Hús með fagra rödd og angaði af einlægni. Það var hlýtt og þurrt, friðarins hús; musteri ástar og vináttu, hús sam­einaðra þjóða, eða öllu heldur sameiningarhús þjóðanna; hús Bakkusar, dómshús, stjórnarsetur, hús visku og alls kyns lista, veiði­ hús, hús Herrans, hús Péturs og hús félaganna; en upp­haf­lega var það þó hús Patreks sáluga McHuges. Patrekur McHuges var þunglyndur maður frá Downty City, bænum sem á árum áður hafði verið framvörður siðmenningar­ innar í norðri. Af ástæðum sem nú eru löngu komnar í glat­kistuna neyddist McHuges til að yfirstíga þau mörk sem armur laganna náði til. Þegar hann, í leit sinni að veiðisvæðum, náði til dalsins við Fynesfjörðinn, gekk gegnum Gæsaskarðið og stóð loks við rætur Ungfrú Mollýar, opinberaði náttúran sig fyrir honum í skrauti sem hann skildi ekki, en sem hann fann fyrir í djúpi sálarinnar; djúpi sem hann hafði ekki tekið eftir áður. Hann kreisti aftur augun til að fá fegurðaráhrifin í smá­skömmtum. Sól­glitrandi vatnið með fjólubláum ísjökunum, lyngiþakin slétta mót austri, bylgjandi valmúabreiðan sem huldi landið um­hverfis smávötnin fimm og áin sem hlykkjaðist í

HÚS FEÐRA MINNA I

| 15


Fjöll og fyrnindi

ljósm.: Óþekktur

sumarleti gegnum sólbrúnt lyngið. Patrekur McHuges fann hvernig þessi yfir­þyrmandi fegurð opnaði þunglyndan huga hans og vakti með honum tilfinningu sem var eins skýr og vinsamleg og ef hann hefði drukkið hálfa flösku af viskíi. Það hlaut að vera vilji skaparans að hér yrði numið land. McHuges sneri aftur til Downty, þar sem hann umbreytti í kyrr­þey sínum fáu eigum í birgðir, verkfæri og fagurlega útbúið brugg­tæki. Hann kvaddi góða vini og hélt fullur eftirvæntingar áleiðis til Ungfrú Mollýar og Fynesfjarðarins. Auk dráttarkerru með margvíslegum varningi hafði hann meðferðis fjóra áhuga­verða hunda (af ólíkum kynstofni, því þeir voru fjarlægðir af götum Downty í flýti), Remington bakhlæðu með hana, ásamt konu nokkurri. Hann átti hamingjurík ár á heimskautasvæðunum. Hann elskaði hundana sína, húsið sem hann byggði sjálfur og drykkinn sem dag og nótt draup reglubundið eins og tif í klukku niður í geymi bruggtækisins. Konan hans var sterk, brún og ástríðufull. Patrekur McHuges dó árið 1897. Lifur hans var ekki sterk. Konan,

16 | HÚS FEÐRA MINNA I


sem erfði stórkostlegar birgðir hans af heimabrugguðu viskíi, fylgdi honum nokkrum mánuðum síðar. Það var ekkert að lifrinni í henni; hún kunni sér einfaldlega ekki hóf. Veiðimennirnir sem bjuggu í nágrenninu gófu hina dauðu, skiptu með sér flöskubirgðum heimilisins, förguðu einstæðum hundum McHuges og negldu vandlega fyrir glugga og dyr. Þannig stóð húsið í myndrænni hrörnun þar til það var á ný tekið til íbúðar 1915.

Landnám Péturs

Pétur kom frá Dauðsmannsflóa yfir Willsonhæðirnar og niður gegnum hið þrönga Gæsaskarð. Þegar hann stóð á litla lyngi­ klædda skikanum milli árinnar og hússins, fór nákvæmlega eins fyrir honum og fyrir McHuges á sínum tíma. Blóðið jók ferðina í æðunum og hann fékk tilfinningu í hálsinn sem gerði það að verkum að hann langaði bæði til að hlæja og gráta. Innra með Pétri fæddist ómótstæðileg þörf til að segja eitthvað vel við­eigandi og eftir að hann hafði hugsað sig lengi um, lýsti hann tilfinningum sínum með: „Mikið djöfull er þetta flott!“ Pétur nam sér land. Þar sem húsið hafði eftir öllum sólar­merkjum að dæma staðið ónotað í mörg ár, bjó hann þar um sig áhyggju­laus. Veiðimennirnir á svæðunum í kring, en sumir þeirra höfðu tekið þátt í að loka stöð McHuges, viðurkenndu Pétur fljótlega. Þeir komust að því, að ýmislegt var líkt með fyrr­verandi og núverandi eiganda, til dæmis ást á hundum, veiðum, heima­bruggi og konum. Auk þess var Pétur ævinlega reiðubúinn að verja rétt sinn til staðarins með einstaklega sannfærandi rökum. Þegar hlerarnir höfðu verið teknir frá og reykháfurinn sendi frá sér reyk til himins á nýjan leik, fóru eskimóar og blóð­blandaðir veiðimenn að streyma til hússins. Pétur tók hjartan­lega á móti

HÚS FEÐRA MINNA I

| 17


þeim og veitti þeim ríkulega. Þessir mörgu vinir færðu húsinu konur sem hlóðu Pétur með rausnarskap kynþáttar síns. Konurnar áttu sér samastað í húsinu samkvæmt flóknum reglum um þarfir og kringumstæður. Fyrsti áratugurinn var einnig tími ferðalaga hjá Pétri. Með húsið sem miðpunkt flæktist hann víða um auðnina, stundum með net­ silikkum, stundum með baffínum en ekki síst með Odoniarssuaq, sem síðar verður sagt frá. Það var ekki fyrr en á þriðja áratugnum að áhugi Péturs á löng­ um sleðaferðum og töfrandi kvennamálum dvínaði. Það kallaði fram táraflóð hjá glaðværum stúlkunum og var slíkt áfall fyrir Odoniarssuaq að hann fluttist inn á hreindýraslóðirnar og tók á nýjan leik upp flökkulífið með ættflokki sínum. Pétur hafði þegar þetta var eignast vini sem sest höfðu að í hús­inu. Trygga vini sem hann gat deilt með margvíslegri gleði hvers­dags­ lífsins. Pétur var elstur og fyrir því báru menn enn meiri virð­ingu. Vinir Péturs voru þeir Gilbert, Jóbald, Samúel og Lilli John­son. Aðrir eins vinir fundust ekki í þessum hluta heimsins. Auk þess bættist ég við þennan litla sambýlishóp um miðjan þriðja ára­tuginn og stuttu síðar eskimóakonan Aviaja. Hér á eftir mun ég gera grein fyrir frændum mínum, Gill, Lilla Johnson og Samúel.

18 | HÚS FEÐRA MINNA I


III Um Gill frænda, Lilla Johnson og Sam Af frændum mínum þremur var Gilbert örugglega sá tilfinninga­ næmasti. Hann var draumóramaður og færði drauma sína í búning tónlistar og ljóða. Þegar ég til dæmis hafði einu sinni spurt hann um tilurð mína, hafði hann fest augu sín á himni­num og svarað sterkum rómi: Enn ófæddur, enn aðeins bruni í lendum, enn aðeins faðmlag, skjálfti, baugur, glóð! Enn aðeins mjöður losta. – svar sem vitanlega hljómaði vel, en sem hafði nákvæmlega enga þýðingu fyrir mig. Raunar gekk Gill frænda betur í síð­rómantískum stíl og það var ekki nema sjaldan sem ljóð hans voru svo nýstárleg að formi til og það sem birt er hér að ofan.

Gill frændi fæddist í San Fransisco, sonur vinnufælins slátrara sem eyddi fullorðinsárum sínum í veitingahúsinu „Káta Alba­trosnum“. Móðirin var þögul, sterkbyggð kona sem skipti tíma sínum milli

HÚS FEÐRA MINNA I

| 19


hreingerninga „fyrir þá fínni“ og öldrykkju með eigin­manninum í Albatrosnum. Foreldrarnir litu á soninn Gilbert sem algjöran villigróður. Hann var ein af þessum ódrepandi villijurtum sem náttúran lætur stundum vaxa í görðum heiðar­legs fólks og maður verður að reyna að lifa með í allri auð­mýkt. Faðirinn orðaði það svo meðal vina sinna, að það væri aðeins tvennt sem plagað hefði hann í lífinu: Lekandi og Gill. Það var afar sjaldgæft að drengurinn ræddi við foreldra sína. Gerðist það, var það með orðum og setningum sem voru þeim viðlíka torskilin og hebreska eða tunga bantúnegranna. Drengurinn lifði í draumaheimi sem byggður var forynjum, góðum álfum, óraunverulegum litum og hljóðum. Jafnvel áður en hann hafði lært að skrifa skáldaði hann langar epískar ballöður sem hann tautaði upphátt fyrir sjálfan sig. Væri hann ekki upp­tekinn af ljóðlist, spilaði hann á heimagerðar flautur eftir nótna­kerfi sem hann hafði sjálfur byggt upp með aðstoð rúðu­strikaðrar reiknings­bókar og talnanna frá einum upp í tólf. Til mikils léttis fyrir foreldra sína var hann tekinn snemma úr skóla. Faðirinn, sem eins og svo margir feður á undan honum geðjaðist engan veginn tilhneigingar drengsins til bókmennta og tón­listar og leit á skólavist sem heimskulegt dútl, fékk í gegnum sam­bönd sín í Albatrosnum hið merkilega barn sitt ráðið í niður­ suðu­verk­smiðju, sem framleiddi hádegisverði fyrir her­mennina á víg­völlum Evrópu. Gill, sem náttúran hafði gætt vingjarnlegri og meðfærilegri lund, sætti sig þolinmóður við örlög sín og hann annaðist gúllas­kanónu sína með svipuðum metnaði og aðrir ungir Ameríkanar önnuðust vopn sín í ókunnugum löndum. Frí­stundunum eyddi hann með foreldrum sínum í Albatrosnum, þar sem hann spilaði fyrir drykki handa fjölskyldunni á vanstillt píanó kráar­eigandans. Á slíku kvöldi

20 | HÚS FEÐRA MINNA I


hitti hann Lilla Johnson. Styrj­öldinni var lokið og nýi heimurinn jafnt sem sá gamli voru að fá timburmenn eftir vímu sigursins. Í þrjú ár hafði Gill sprautað dósir fullar af óskil­greindu hráefni, í þrjú ár hafði hann staðið á sama stað, andað að sér sama súra loft­inu, unnið sömu hand­tökin, – þriggja ára dauði. Gill var reiðubúinn að brjótast út. Lilli Johnson byrjaði hinum megin Gill frændi ljósm.:óþekktur frá. Hann hóf ferðina á efstu rim þjóð­ félags­stigans með föður af aðalsættum. Sá var á ferða­lagi í Georgíu­ ríki árið 1902. Þessi virðulegi faðir tryggði móður Lilla Johnson, svonefndri eldhúsjómfrú á Hótel Long­feather, álitlega fjárhæð sem gerði henni kleift að ala önn fyrir Lilla John­son, vaxandi systkina­ hópi og einum eða tveimur elsk­hugum. Tiginn uppruninn veitti Lilla Johnson vissa tign í barna­skaranum. Þegar sem drengur hafði hann þá bjargföstu skoðun að það væri umhverfið sem ætti að þjóna honum, en ekki öfugt. Þegar hann var fimmtán ára fluttu móðirin og systkinahópurinn suður á bóginn með frönskum prédíkara sem bent hafði á mexíkanska landamæraþorpið Deríó sem endurkomustað Krists. Meðan fjölskylda hans og pré­ díkarinn biðu þannig hins mikla dags í heilagri þolinmæði, reyndi Lilli Johnson að slá í gegn sem nautna­seggur. Hann var ekki gæddur hæfileikum föður síns. Tvisvar heimsótti hann tyftunarhús borgar­ innar áður en hann að síðustu róaðist niður sem uppvaskari á upphafsstað sínum, Hótel Long­feather. Hér hitti hann æviást sína. Hún var gangastúlka á daginn og vann sér fyrir kryddi lífsins á nóttunni. Því miður sýktist stúlkan af sjúk­dómi sem hinir fjölmörgu vinir hennar ræddu ógjarnan um.

HÚS FEÐRA MINNA I

| 21


Sjúk­dómurinn kostaði Lilla Johnson og hálft hundrað annarra sómakærra borgara sérlega sársaukafulla meðferð og rúmlegu með miklum sótthita. Eftir þessa sorglegu reynslu flæktist Lilli Johnson um land og ríki í tvö ár. Hann lærði út í ystu æsar hina vandasömu list heima­ bruggunar og þróaði á þessum tíma bragðlauka sína svo að þeir nálguðust fullkomnun. Snilli hans spannaði allt frá Agaves-spíra, Tequila og Mescal yfir Imiaq að hinu grípandi kínverska Sam-Sú. Náðar­gjöf hans leiddi hann til Frisco, þar sem einmitt í þá daga var rík þörf fyrir dugandi mann. Fundur hans og Gills leiddi til samkvæmis í Albatros, samkvæmis sem enn er minnst þegar sólin brennir tunguna í sandpappír í Sacramentódalnum Gill og Lilli Johnson urðu ásáttir um að fara í langferð um hina þyrstu Ameríku. Gegnum eyðimerkur Nevada, eftir hinu lífi sneydda saltvatni, yfir fjallgarða Montana og lengra í norður lá leiðin. Gill spilaði og Lilli Johnson bruggaði. Þeir fóru yfir landa­mærin sunnan við Lyfjahatt og fylgdu Saskatchewanánni til Prins Albert. Þar hófu þeir hina löngu ferð upp í gegnum norð­vestur­svæðið. Tilviljunin leiddi þá að húsi Péturs. Eftir því sem sagnir herma átti sér stað minniháttar ósamkomulag við lögreglu­þjóninn í Downty City, eftir líflega samkomu í Singapore, veitingahúsi Ernestós Whitecook. Til að friða yfirvöldin og gefa auk þess Ernestó tækifæri til að endurbyggja húsnæði sitt svo að segja frá grunni, héldu þeir lengra mót norðri, eins og svo margir mætir menn á undan þeim. Þeir heilluðust samstundis af kofa Patreks McHuges, af Pétri og þeirri undursamlegu ró sem stafaði af staðnum. Einkum virkaði hið síðarnefnda sem græð­andi áburður eftir hin órólegu flækingsár. Þeir aðlöguðust fljót­lega hinum daglegu háttum, sem kröfðust svo lítils en veittu allan heiminn að launum.

22 | HÚS FEÐRA MINNA I


Göngumaður á göngu

ljósm. Óþekktur

Sam veltur í hús

Um uppruna Sams frænda veit ég undarlega lítið. Hann fæddist einhvers staðar í Póllandi, tók próf í mannfræði við há­skólann í Varsjá og yfirgaf föðurlandið fimmtán árum áður en ákveðinn veggfóðrari fór að bæra á sér í nágrannaríkinu. Starf hans leiddi hann víða. Hann valdi fljótlega eskimóafræði sem sérgrein og ferðaðist um stóran hluta heimskautsins með aðstoð vinsamlegra eskimóa. Nauðsynlegur þáttur í fræðunum voru einnig heimsóknir til Suður- og Mið-Ameríku, því hann var ákafur stuðnings­maður nýrrar kenningar sem sagði að eski­móar væru varanlegur blendingskynþáttur, víxlblandaður Lagao-Santa kynþættinum og asískum mongólum. Sam frændi hafði slegið máli á sterklegar hauskúpur með háum en grönnum hvirfil­fleti, frá Brasilíu yfir Mið-Ameríku og Bandaríkin alla leið upp til ísauðna heimskautsins. Á vissan hátt má segja að Sam frændi hafi samlagast fræðum sínum og vísindastörfum. Hann er mjög vel að sér í tungu eski­móa

HÚS FEÐRA MINNA I

| 23


og lifnaðarháttum og eins og eskimóarnir hefur hann miklar mætur á munnmælasögum heimskautalandsins og dular­öflum. Tungu­tak hans smitaðist mjög af tjáningaraðferðum eski­móanna, þannig að hans daglega mál getur virst nokkuð myndrænt. Sam frændi kom veltandi að húsinu tveimur árum áður en ég fæddist. Hann valt niður brattar hlíðar Willsonhæða, gegnum Gæsa­skarðið, yfir litlu sléttuna og upp að suðurgaflinum á húsi félaganna. Í kjölfar hans kom þverbyggður dráttarsleði, vind­flegið tjald og loks trékassi með kortum og handbókum um mann­f ræði. Sam kom fjúkandi í óveðri og það var alls ekki sam­kvæmt eðli hans. Hann hefði átt að koma muldrandi niður fjallið á fögru logn­stilltu kvöldi, lýstu rauðgulu skini hnígandi sólar. Pétur og Lilli Johnson heyrðu höggið þegar hann skall á gafl­ inum. Þeir stukku út til að kanna hvað gerst hefði. Í gegnum snjó­ fokið sáu þeir lítinn þéttvaxinn mann sem fálmaði hálf­rotaður eftir hálfgleraugunum sínum. Pétur fann gleraugun og hann hjálpaði ókunna manninum á fætur og bauð honum inn í hitann. Lilli Johnson sá um föggur mannsins og eftir að hafa rannsakað þær kom hann þeim fyrir í einum útiskúrnum. Sam var leiddur til sætis við langborðið og hóf að hreinsa gler­ augun með skyrtulafinu. „Maður tjaldaði líklega of hátt,“ flissaði hann. „Það var hressi­leg salibuna sem maður fékk.“ „Þú hefur sannarlega verið langt uppfrá,“ sagði Lilli Johnson og kinkaði kolli. „Hvar varstu með búðirnar?“ Sam hagræddi gleraugunum á nefinu. „Í litlu gili sem á kortinu er kallað Meyjarbrjóstin.“ Það liðu undrunarhljóð frá mönnunum við borðið. Þeir störðu gapandi á Sam. Meyjarbrjóstin eða Rasskinnar Geltings, eins og

24 | HÚS FEÐRA MINNA I


hæðirnar voru einnig nefndar í minningu feitlagins gildruveiði­ manns, voru tveir ávalir hnjúkar á toppi Willsonhæða. Allir vissu að þessir hnjúkar voru ævinlega ísilagðir og hálir á haustin og enginn veiðimaður með vitglóru lét sér koma til hugar að tjalda þar, jafnvel ekki í rjómalogni. Pétur ræskti sig vandræðalega. Það var erfitt að segja eitthvað gáfulegt í þessari stöðu. „Jahá … hm … sagðirðu Meyjarbrjóstin? Við köllum þær Rass­ kinnar Geltings, en ég trúi að það sé sami staðurinn. Þú slóst upp tjöldum þar uppfrá, segirðu. Hm. Varstu veikur?“ spurði hann, „eða að niður­lotum kominn af þreytu? Við þekkjum það félagi. Augun fyllast af snjó og eitthvað sem er þyngra en blý fyllir stígvélin. Ójá, þá tjaldar maður hvar í fjandanum sem vera skal … en á Rasskinnum Geltings!“ Sam virti gestgjafa sína fyrir sér alvarlegur í bragði. „Ég vil ekki halda því fram að ég hafi verið sérlega þreyttur og það var ekkert rok meðan ég tjaldaði. Sjáið þið til, ástæðan til þess að ég tjaldaði einmitt þarna var að ég fann sjaldgæfa steingervinga í gilinu. Ég tjaldaði yfir þá og hefði höggvið þá lausa í nótt.“ Gill, sem ekki var viss um hvað orðið steingervingur þýddi, færði sig laumulega lítið eitt frá Samúel. Varkárni hlaut að vera dyggð undir þessum kringumstæðum. „Steingervingar?“ spurði hann. „Slíks dýrs hef ég aldrei heyrt getið áður. Er feldur þess síður eða stutthærður?“ „Það hefur engan feld,“ svaraði Sam. „Steingervingar eru for­ sögu­leg dýr eða plöntur, sem nú finnast steinrunnin.“ Gill kinkaði kolli rólegur í bragði. „Ég skildi heldur ekki þegar þú sagðist ætla að höggva þau laus,“ sagði hann eins og til að afsaka spurningu sína. „Ég hef aldrei heyrt um neinn sem högg­við hefur veiðidýr upp úr klettunum. Þess vegna spurði ég.“ Lilli Johnson drap tittlinga til félaganna. „Sagðirðu for­sögu­leg,

HÚS FEÐRA MINNA I

| 25


Tjaldað á kaldri slóð

ljósm.: óþekktur

Sam?“ Sá ókunnugi var örugglega gullnáma af frásögnum. „Segðu mér; getur maður líka verið svo lánsamur að rekast á for­sögu­lega refi og bjarndýr í steinum?“ „Auðvitað, vinur minn. Þú finnur steingerða refi og birni og mörg önnur landdýr. Það er ákaflega áhugavert og maður getur til dæmis leitt að því líkur að margar dýrategundir hafi lifað í mörgum heims­ álfum. Þannig hafa menn fundið steingerða moskus­uxa í evrópsku sjávarlagi og menn hafa líka fundið stein­gervinga af risaeðlum sem að stærð taka langt fram þeim stærstu hvölum sem við þekkjum.“ Þessi síðasti samanburður gerði félagana feimna. Menn voru vanir digurbarkalegu tali. Það var sem öll þessi mikla náttúra, þetta villta landslag með klettum og ísbreiðum, hinar endalausu freð­mýrar og kílómetra há fjöllin hvettu fólk til að tvöfalda eða þre­falda allar stærðir. En að tala um dýr sem væru stærri en hvalir var nánast að

26 | HÚS FEÐRA MINNA I


stíga yfir mörk velsæmisins. Á hinn bóginn var ljóst að Samúel var einstakur sögumaður. Lilli Johnson varð fyrstur til að rjúfa þögnina. Hann spurði lítið eitt tillits­laus: „Hvaða starf stundar þú, Sam. Kaupirðu stein­dýr eða þess háttar?“ „Nei, ég er eiginlega aðeins mannfræðingur,“ svaraði Sam. Gler­ augun voru enn tekin af nefinu og meðhöndluð af skyrtu­lafinu. „Jarðfræði er aðeins smá tómstundagaman sem ég sýsla við þegar tækifæri gefst.“ Pétur lagði stórar hendurnar á borðið fyrir framan sig. Hann sneri lófunum upp. Þannig sýslum við allir við sitt af hverju,“ sagði hann. „Við félagarnir höfum að vísu mestan áhuga á því sem lifir. Við veiðum sjávar- og landdýr, skilurðu? En svona hefur mann­ fólkið mismunandi áhugamál, guði sé lof. Mætti maður spyrja, til að svala forvitni Lilla Johnson, hvað það er sem fært hefur þig á þessar slóðir?“ Sam andaði á gleraugun og fægði kunnáttusamlega. „Það eru mann­f ræði­rannsóknir, sem fært hafa mig hingað. Nú er um að ræða rannsókn á netsilik eskimóum. Auk þess hefur maður áætlanir um að leita ummerkja eftir sadlermiutana, sem dóu út um alda­mótin. Ætlan mín er að ná til norðurhluta Baffin, áður en vetur gengur í garð.“ Pétur leit hugsandi á lófa sína. „Einmitt það, já. Jahá, það er ýmislegt sem við skiljum hér í húsinu. Mannfræðirannsóknir. Vissu­ lega hefur maður oft heyrt um slíkt, en maður er að verða of gamall til að muna merkingu allra þessara erfiðu orða.“ Sam svaraði tillitssamur: „Mannfræði snýst eins og þú veist, um uppruna mannsins og mismunandi kynþætti.“ „Þarna kom það,“ gall í Pétri. „Mér fannst ég líka hafa heyrt eitthvað um þetta áður. Bíddu nú við, þá ert þú það sem kallað er mann­vísinda­maður?“

HÚS FEÐRA MINNA I

| 27


Sam kinkaði kolli og brosti til viðstaddra. „Andlega séð og dálítið ýkt er ég það sjálfsagt, en daglega nefnist ég aðeins mann­f ræðingur.“ Lilli Johnson laut yfir borðið og lagði fingur á öxl Sams. „Heyrðu Sam, þetta veit ég töluvert um,“ sagði hann. „Það hefur eitthvað með hauskúpur að gera, er það ekki?“ „Rétt.“ Sam kom gleraugunum fyrir á neðri helmingi nefsins. „Höfuðskeljar eru ómissandi í mínu fagi.“ „Ég þekkti einu sinni braskara frá Brasilíu,“ hélt Lilli Johnson áfram. „Hann var í sömu grein og þú. Alveg vitlaus í hausa af Tucano indíánum. Þú hefðir átt að sjá þá, Sam. Það var vinna. Nánast listiðn. Svo voru þeir ósviknir. Það er mikið um pretti í þessu starfi, Sam, þú verður að viðurkenna það; þú veist, með apahöfuð, lélega suðu og þess háttar.“ „Það er sjálfsagt rétt,“ samþykkti Sam, „en ég er á þeirri skoðun að vísindi vinar þíns hafi verið af öðrum toga en mín.“ Lilli Johnson kreppti hnefann og hélt honum við andlit Sams. „Þeir voru um það bil svona stórir,“ útskýrði hann, „og verulega vel saumaðir saman við bæði augu og varir. Það er enginn vafi á að þetta voru sömu vísindi og þín, Sam. Ég þekki þennan náunga mjög vel, verð ég að segja, því við stóðum í ýmsum við­skiptum saman. Og,“ bætti hann við, eins og til endanlegrar sönnunar, „hann var með nákvæmlega sams konar gleraugu og þú.“ „Ekki skyldi maður neita því að vinur þinn hafi viss mann­f ræði­leg áhugamál,“ sagði Sam vingjarnlega, „en maður verður þó að reikna með því að hans höfuðáhugamál hafi verið við­skipti.“ „Þar hittirði naglann á höfuðið, Sam. Hann smyglaði haus­unum í gegnum Kúbu og seldi þá ríkum túristum í Flórída.“ Einingu var náð og nú seig þægilegt andrúmsloft yfir menn­ina við borðið. Gill sauð selkjöt og Lilli Johnson bar fram Sam-Sú. Sam var neyddur til að borða svo mikið að tunga hans, eins og hann

28 | HÚS FEÐRA MINNA I


orðaði það sjálfur, stóð næstum upp á endann. Þegar menn sátu við kvölddrykkinn eftir máltíðina, spurði Gill: „Segðu mér, Sam, ætlarðu raunverulega að fara alla leið upp til norður­enda eyjarinnar í ár?“ Sam lagði glasið varlega á borðið og hallaði sér aftur á bak í stólnum. „Maður vill vita eitthvað um sadlermiutana, sem eftir því sem sagt er voru hreint stórkostlegt fólk. Þeir voru yfirmáta sóða­ legir, líklega mestu svínin á heimskauta­svæðunum. Húsin þeirra voru svört af sóti, vegna þess að konurnar þeirra hugsuðu ekkert um lampana og veggir þeirra og rúmstæði voru klístrug og angandi af spiki. Furðulegt fólk með furðulega siði. Mér hefur verið sagt að þeir hafi borið spikið frá veiðistöðvunum þannig, að þeir skáru stórt gat í miðjuna og smeygðu spik­stykkj­un­um yfir höfuðið eins og kraga. Jafnvel þótt fólkið sé nú horfið, hljóta að finnast einhverjir Baffínlendingar sem muna ennþá eftir þeim.“ Pétur horfði aðdáunaraugum á þennan litla, þéttvaxna ná­unga. „Þú veist sjálfsagt heil ósköp, Sam og hefur ferðast mikið. Ég myndi aldrei láta mig dreyma um að fara svo langt norður­eftir að hausti til. Er það ekki töluverð áhætta að ferðast einn um þessar breiddar­ gráður með þann útbúnað sem þú hefur?“ „Hjá mér er spurningin um farangur ekki eins mikilvæg og um ferða­félaga,“ svaraði Sam. „Ég hef, eins og þið hafið tekið eftir, lítinn útbúnað og er á allan hátt lítilmótlegur ferðamaður. En maður talar fjórar eskimóamállískur og hefur friðsamlegt hugar­far.“ „Ferðist maður með eskimóum gegnir allt öðru máli,“ sagði Pétur og kinkaði kolli. „Betri ferðafélagar finnast ekki. Málið er bara að finna þá, Sam. Mér er næst að halda að þú hefðir átt að hefja ferðina fyrr. Það eru margar dagleiðir til næstu útstöðvar og Herrann einn veit hvar hirðingjarnir halda sig á þessum tíma árs. Nú er haust, Sam, eins og þú fékkst að reyna þegar þú faukst niður af Rasskinnum Geltings.“ Pétur teiknaði með vísifingri á borð­plötuna. Lilli Johnson

HÚS FEÐRA MINNA I

| 29


sá að hann var í klemmu, að hann átti erfitt með að finna réttu orðin. Loks komu þau. „Það er ekki lengur sérstaklega mikið pláss hér í húsinu og ég get vel skilið að þú skulir vilja komast sem fyrst til að sinna verkefnum þínum. Sjálfsagt erum við ekki mjög vísindalegir í okkur, þótt við vitum ýmislegt um sitt af hverju. En hafir þú löngun til að hvílast um stundar­sakir og skoða steingervingana hér í kring í ró og næði, hýsum við þig með ánægju. Síðan getum við flutt þig á fyrstu ísa­lögum til Ukusik, sem er næsta mannabyggð.“ Sam hristi höfuðið. „Þetta er mjög vingjarnlegt af ykkur, en maður myndi aðeins verða til aukinnar fyrirhafnar. Þið mynduð fljót­lega verða þreyttir á að hafa miðaldra ónothæft flón í húsinu. Ég get hvorki veitt né verkað skinn.“ „Þú myndir gera okkur greiða með því að dveljast hjá okkur,“ sagði Pétur nánast biðjandi. Hann var að hugsa um hve skemmti­ leg­ur ávinningur Sam myndi verða og hve skelfilegt það yrði ef einhver nágrannannan tryggði sér hann til langframa. Hann horfði spenntur á gestinn. Breitt bros breiddist yfir hrukkótt andlit Samúels. „Það gerist stundum að maður fyllist gleðilegri tilfinningu og situr því bara og skortir orð,“ sagði hann. „Þakka ykkur fyrir. Maður verður þá kyrr.“ Sam komst aldrei á norðurenda Baffíneyjar. Til þess þó að hafa reglu á hlutunum og til að gróa ekki fastur við Ungfrú Mollý, ræddi hann um það á hverju ári að hafa sig af stað. Þó gætti hann þess vandlega að koma fram með þessar fararóskir sínar á þeim árs­tíma er komandi vetur hafði þegar komið í veg fyrir sérhverja til­raun til ferðalaga. Samúel eignaðist góða vini, stað þar sem hann gat iðkað fræði sín í ró og næði og loks – þegar ég kom í heiminn – fjölskyldu. Hér á eftir ætla ég að segja frá Jóbald og fundum hans og Péturs á Allansléttunni sumarið 1933.

30 | HÚS FEÐRA MINNA I


Líf á hjara veraldar getur verið ansi erfitt. Hér fjallar Jörn Riel um um líf óvenju­ legrar fjölskyldu sem hefur ansi fjöl­

breittan bakgrunn. Fimm feður takast

á við að ala upp dreng eftir að móðirin flyst í burtu með öðrum manni.

Hvernig er að alast upp á norðurslóðum? Hvernig er lífið á óhefðbundnu heimili?

Hvað fær hóp ólíkra manneskja til að stofna heimili?

„Ég á tvo feður. Til að fullnægja kröfum sannleikans ætti ég vissu­lega að eiga fimm, en félagarnir urðu sammála um að út­nefna Pétur og Jóbald hina raunsönnu feður og gera þá Samúel, Gilbert og Lilla Johnson að eins konar frændum.“


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Hús feðra minna I, Frásögn sem gerir andlitið fagurt by Tækniskólinn - Issuu