Girðingar Einn daginn hættum við vinnu fyrr en endranær. Úti við Hafursá eru menn að lagfæra skógræktar girðinguna og endurnýja nokkurn hluta hennar. Við skulum skreppa þangað. Það á að sýna okkur hvernig verkið er unnið og hvernig svona girðingar eigi að vera. Við eigum sem sé að kynnast flestu sem lýtur að skógr ækt. Girðingar skal vanda vel því að þær eiga að standa lengi. Fyrst þarf að velja besta girðingarstæðið, því næst útvega gott efni og í þriðja lagi setja niður trausta hornstaura og máttarstólpa á réttum stöðum. Þá er net og gaddavír strengt á þessa staura en grennri staurar reknir niður á eftir og girðingin einnig reist á þá. Skóg ræktargirðingar eru rúmur metri á hæð, sjaldan yfir hundrað metrar milli máttarstólpa og tíu metrar á milli venjulegra staura. En á milli þeirra eru negldar tvær reglur á girðinguna til að treysta hana. Ganga þarf sér staklega vel frá hlið-, máttar- og hornstólpum. Jarðýtur eru stundum notaðar til að jafna girðingar stæði svo að auðveldara sé að beita vélknúnum tækjum við verkið og létta flutninga efnis. Ekki þarf að hlaða undir slíkar girðingar. Okkur þótti gaman að sjá vinnubrögð girðingar mannanna við Hafursá því að svona vinnu höfðum við
47