Skinfaxi 4 2013

Page 38

Í haust var sett af stað verkefni sem kallast Íþróttaakademía Fjölnis (ÍAF) og er það tækifæri ætlað unglingum sem æfa boltaíþróttir í Fjölni og eru í 9. og 10. bekk. Verkefnið snýst um að bjóða upp á skipulagða tækniþjálfun í handbolta, fótbolta og körfubolta ásamt hagnýtri fræðslu í þáttum sem skipta máli, s.s. íþróttasálfræði og næringarfræði. Aðalmarkmið ÍAF er að bjóða upp á þjálfun og fræðslu sem styður við það sem þegar er gert í flokkum félagsins, annað og fleira en gert er nú þegar í deildunum. Þetta verkefni er hugsað fyrir íþróttamenn sem vilja ná langt í íþrótt sinni og eru tilbúin að leggja mikið á sig, til að svo megi verða. Sveinn Þorgeirsson er verkefnastjóri verkefnisins. ÍAF byggir á samstarfi unglingadeilda grunnskóla Grafarvogs og Umf. Fjölnis og felst tækifærið fyrir unglingana í að fá að velja ÍAF sem valgrein í námi sínu í stað hefðbundinna námsgreina. Þess má geta að verkefnið er unnið að fyrirmynd sem hefur gengið afar vel hjá Haukum í Hafnarfirði, Afreksskóla Hauka, undir stjórn Kristjáns Ómars Kristjánssonar. Skráning í verkefnið var mjög góð. Um 36 nemendur eru nú skráðir og koma þeir úr boltagreinunum þremur, af báðum kynjum. Haldinn var kynningarfundur með foreldrum og iðkendum í byrjun annar og verkefnið kynnt. Ein meginforsenda þess að verkefnið gengur eins vel og raun ber vitni, er þeir góðu þjálfarar sem fengust til að starfa hjá félaginu. Til að stýra bóklegu tímunum, þar sem allar greinarnar koma saman, voru fengnir Elmar Hjaltalín, yfirþjálfari fótboltans,

Íþróttaakademía Fjölnis sett af stað

og Arnór Ásgeirsson íþróttafræðingur. Um tækniþjálfunina sjá þeir Pétur Sigurðsson (körfubolti), Elmar Hjaltalín (fótbolti) og Guðmundur Rúnar Guðmundsson (handbolti). Hjá Fjölni vona menn að haustönnin, sem er senn á enda runnin, verði sú fyrsta af mörgum og mun verkefnið verða í stöðugri þróun næstu misserin. Vonast er til að í framtíðinni

verði hægt að bjóða upp á þetta tækifæri fyrir fleiri greinar innan Fjölnis. Forsvarsmenn félagsins eru fullvissir um að æfingarnar og fræðslan muni hjálpa íþróttamönnum Fjölnis til að ná fram sínum besta árangri þegar fram í sækir.

Kirkjubæjarklaustur – Verið hjartanlega velkomin Sauðárkróki 1.–3. ágúst 2014

Húsavík 20.–22. júní 2014 38

SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands

Íþróttamiðstöð, sundlaug, upplýsingamiðstöð og sýningar.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.