Formannskjör 2013

Page 1

Formannskjör 18.-28. janúar

Landsfundur 1.-3. febrúar


Árni Páll Árnason Kæru vinir og samherjar Undir forystu Samfylkingarinnar hefur ríkisstjórn Íslands náð miklum árangri í glímunni við áhrif og afleiðingar hrunsins með jöfnuð að leiðarljósi. Við getum verið stolt af þeim sögulega árangri. En staðan er viðkvæm og brugðið getur til beggja vona. Við höfum ekki enn náð fullu jafnvægi í ríkisbúskapnum og við búum við efnahagslega einangrun. Allir finna á eigin skinni kostnað af hruni gjaldmiðilsins og efnahagsáfallinu: Lægri laun, hækkandi skuldir og skatta. Tiltrú á getu stjórnmálanna til að leysa vanda venjulegs fólks hefur aldrei verið minni. Samfylkingin var stofnuð um drauminn um stóran flokk ólíks fólks sem aðhyllist sígilda jafnaðarstefnu, baráttu launafólks, kvenfrelsi, umhverfisvernd og athafnafrelsi. Sá draumur þarf að rætast í verkum okkar. Þessi fjölbreytni á að geta gert okkur sterkari en aðra flokka. Við getum nýtt hana, hlustað, rökrætt og leitt samtal ólíkra hópa og veitt forystu um niðurstöðu í þágu almannahagsmuna.

Tækifærin eru mörg. Það stendur engum nær en Samfylkingunni að brjóta upp stöðnuð stjórnmál og tengja þau við raunveruleg áhyggjuefni venjulegs fólks. Hún á að hasla völlinn og skora þá á hólm sem hafa ekkert fram að færa nema lausnir fortíðar, varðstöðu um sérhagsmuni og rányrkju gagnvart fólki og náttúru.

raunverulegs samningsréttar um kaup og kjör en vera ekki fórnarlömb tilviljanakenndrar gengisskráningar sem kollvarpar afkomu okkar með reglulegu millibili. Jafnaðarflokkur Íslands skuldar þjóðinni að efna fyrirheit Skúla Thoroddsen frá 1891 um að fá loks laun greidd í gjaldgengum gjaldmiðli.

Ísland getur áfram verið opið land sem fagnar samkeppni um fólk og hugmyndir. Við þurfum frelsi til orða, hugsunar og athafna og eigum áfram að tryggja fjölbreytta opinbera þjónustu óháð efnahag.

En formaður Samfylkingarinnar megnar lítið einn. Hann flytur ekki fjöll og breytir ekki stefnu flokksins á einn veg eða annan og á heldur ekki að geta það. En það er hans að virða og virkja fjölbreytileikann og kraftinn sem býr í flokknum og þeim breiða hópi fólks sem vill styðja hann.

Undanfarnar vikur hef ég farið um land allt og rætt við ólíkasta fólk. Allir þrá nýja sýn fram á veginn. Á öllum brennur hið sama: Við viljum sambærileg lífskjör og bjóðast í nálægum löndum. Þess vegna er spurningin um aðild að ESB og aðgang að alvöru gjaldmiðli allt annað og meira en hefðbundin pólitísk þrætubók. Hún snýst um að færa íslensku launafólki þau lýðréttindi sem þykja sjálfsögð í öllum öðrum vestrænum ríkjum: Að njóta

Ég vil helga mig því verki. Til þess þarf ég stuðning ykkar.

Árni Páll Árnason

Formannskjör Svona er kosið í netkosningu 18.-28. janúar á xs.is Allir flokksfélagar hafa kosningarétt

Atkvæði með bréfpósti

Atkvæðisrétt hafa flokksfélagar í Samfylkingunni sem voru skráðir í flokkinn eigi síðar en kl. 18.00 11. janúar sl.

Hægt er að fá atkvæðaseðil sendan í bréfpósti á lögheimili. Slík beiðni þarf að koma fram eigi síðar en kl. 18.00 mánudaginn 21. janúar. Beiðnina skal senda með tölvupósti í netfangið kosningar2013@samfylking.is eða með því að hringja í síma 414 2200. Atkvæðaumslag skal póstleggja eigi síðar en mánudaginn 28. janúar 2013. Póststimpill gildir.

Kosið á xs.is Kosið verður með rafrænum hætti á heimasíðu Samfylkingarinnar frá og með föstudeginum 18. janúar til kl. 18.00 mánudaginn 28. janúar nk.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Samfylkingarinnar xs.is


Guðbjartur Hannesson Kæru flokkssystkin Við höfum lifað ótrúlega tíma síðastliðin ár. Mikið hefur áunnist í endurreisn íslensks samfélags en ærin verkefni eru framundan. Ég vil að íslensk börn og ungmenni geti alist upp í velferðarsamfélagi að norrænni fyrirmynd, samfélagi sem stenst samanburð við það besta. Samfélagi þar sem sterkt velferðarkerfi og sterkt atvinnulíf eru ekki álitnar andstæður. Samfélagi sem býður börnum okkar og barnabörnum tækifæri til að virkja hæfileika sína. Í mínum huga er jöfnuður og samábyrgð forsenda þess að okkur takist að skapa slíkt samfélag. Ég lýsti yfir framboði til formennsku í Samfylkingunni því ég treysti mér til að berjast fyrir því að Samfylkingin verði áfram leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum, slái taktinn í endurreisn og uppbyggingu íslensks samfélags. Hvaða ríkisstjórn sem er væri umdeild af verkum sínum á þessum viðburðarríku árum frá hruni. Við höfum lagt höfuðáherslu á að heyja varnarbaráttu fyrir velferðarkerfið og þá sem minnst bera úr býtum. Það hefði ekki hvaða ríkisstjórn

sem er gert. Jöfnuður og velferð hefur verið okkar leiðarstef og þungum böggum kreppunnar hefur verið dreift af sanngirni.

blómstri en síðast en ekki síst þarf að búa fyrirtækjunum gott og stöðugt rekstrarumhverfi og tryggja örugga hagstjórn.

Nú hefur varnarbaráttan breyst í sókn. Kaupmáttur fólks fer vaxandi, skuldastaða heimila og fyrirtækja hefur breyst til hins betra og Ísland er nú í fimmta sæti þeirra Evrópuríkja þar sem hagvöxtur mælist mestur. Verulega hefur dregið úr atvinnuleysi, störfum er að fjölga og fjárfestingar að aukast í atvinnulífinu.

Ég legg áherslu á skýra stefnu Samfylkingarinnar í Evrópumálum. Okkar verkefni er að ljúka aðildarviðræðum, ná fram góðum samningi og gefa þjóðinni lokaorðið um afstöðu Íslendinga til aðildar.

Erfiðleikar í íslensku samfélagi eru smám saman að víkja fyrir bjartsýni og tækifærum. En munum að það er ekki síður vandasamt verkefni að stjórna þegar birta fer af degi. Nú skiptir öllu máli að víkja ekki af þeim vegi sem við höfum varðað. Sá vegur byggist á jöfnuði og velferð fyrir alla. Við eigum að nýta þau tækifæri sem bjóðast, halda vel á spilunum og tryggja að græðgi og spilling verði íslensku samfélagi aldrei aftur að falli. Framundan er að skapa atvinnulífinu umgjörð sem eflir það og ýtir undir fjölbreytni. Góð almenn menntun, hugvit og sérþekking á sem flestum sviðum er ein af lykilforsendum þess að atvinnulífið

Ég hef tamið mér að vinna að málum með virðingu fyrir ólíkum einstaklingum og skoðunum. Ég kann að hlusta og meta ólík sjónarmið og er ávallt reiðubúinn að leita lausna, leggja mig fram um að leiða fram niðurstöðu án þess að gefa afslátt af grundvallarmarkmiðunum. Ég tel að grunngildi Samfylkingarinnar um jöfnuð, réttlæti og kvenfrelsi hafi aldrei verið mikilvægari fyrir samfélagið. Samfylkingin var stofnuð til að verða fjöldahreyfing um þessi gildi og við hvikum aldrei frá þeim heldur fylgjum þeim eftir af heiðarleika og festu. Með framboði mínu vil ég leggja mitt af mörkum til að svo verði. Ég vona að við eigum samleið í þeirri baráttu.

Guðbjartur Hannesson

Dagskrá landsfundar Samfylkingarinnar 1.-3. febrúar Helstu atriði á dagskrá Föstudagur, 1. febrúar

14.00 Setning 15.15 Mælt fyrir ályktunum og lagabreytingum 16.30 Málefnanefndir starfa 20.00 Föstudagsfjör – kjördæmin keppa o.fl.

Laugardagur, 2. febrúar

9.00 Skýrsla framkvæmdastjórnar 10.00 ESB í fókus 11.30 Formannskjöri lýst 12.00 Málstofur 14.00 Hraðstefnumót við frambjóð- endur Samfylkingarinnar 16.30 Atvinnumál 20.00 Hátíðarkvöldverður í Perlunni

Sunnudagur, 3. febrúar

10.00 Umræður og afgreiðsla 12.45 Stjórnmálaályktun, afgreiðsla 14.00 Lokaathöfn Stefnuræða formanns

Góður tími gefst til almennra umræðna sem og til nefndastarfa. Á landsfundi verður kosið í ýmis embætti innan flokksins, svo sem varaformaður, formaður framkvæmdastjórnar o.fl. Atkvæðisrétt á fundinum hafa kjörnir fulltrúar aðildarfélaga flokksins. Ítarlegri dagskrá er að finna á www.landsfundur.is


Höldum áfram rétt á spilunum og horfum bjartsýn fram á veginn!

Við getum verið stolt af árangrinum sem náðst hefur á síðustu árum.

Útlönd fylgjast með Atvinnuleysi er nú um helmingi minna en í byrjun árs 2009.

Ótal greinar hafa verið birtar í erlendum blöðum um góðan árangur þjóðarinnar undanfarin ár.

Þjóðin fær loksins sanngjarnan arð af fiskveiðiauðlindinni, 13 milljarða á þessu ári sem nýtast til sameiginlegra verkefna.

Sanngjarnari arður af auðlindum hafsins

Jafnrétti kynjanna hefur hvergi mælst meira undanfarin 4 ár. Tekist hefur að jafna ráðstöfunartekjur heimila og verja þá tekjulægstu.

Meiri verðmætasköpun

Fleiri vinnandi hendur

Sanngjarnari skattar

Meiri jöfnuður Eftir mesta samdráttarskeið frá sjötta áratugnum er hagvöxtur nú 3% - meiri en í Bandaríkjunum!

Skattbyrði 60% þjóðarinnar er minni eða óbreytt. Þau 40% sem betur standa greiða nú meira til samfélagsins.

Landsfundur 1.-3. febrúar að Hlíðarenda í Reykjavík. Lifandi vettvangur skoðanaskipta!

Landsþing 60+ Föstudaginn 1. febrúar kl. 10.30

Landsfundurinn verður settur föstudaginn 1. febrúar, kl. 14 í Valsheimilinu að Hlíðarenda með ræðu formanns Samfylkingarinnar Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.

Allir félagar í Samfylkingunni, 60 ára og eldri, eru boðnir velkomnir á landsþing 60+ sem verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda að morgni fyrsta landsfundardags, 1. febrúar.

Hagnýtar upplýsingar um fundinn, tillögur málefnanefnda og fleira er að finna á vefnum: www.landsfundur.is.

Á dagskrá landsþingsins eru venjuleg landsþingsstörf, en auk þess verður dagskráin krydduð með skemmtiatriðum.

Allir félagar í Samfylkingunni eru velkomnir á landsfund.

Tilgangur Landssamtakanna 60+ er að gæta hagsmuna fólks sextíu ára og eldra innan Samfylkingarinnar og við stefnumótun flokksins.

Það væri okkur sönn ánægja að sjá þig. Stjórn landssamtakanna 60+

Samfylkingin | Hallveigarstíg 1 | 101 Reykjavík | sími 414 2200 | xs.is


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.