
1 minute read
rösklega til verks
veitustofnana, sagðist alltaf hafa lagt að Davíð að taka nýtt lán meðan Perlan var í byggingu. Aðrir borgarfulltrúar þögðu þunnu hljóði enda þótt póltíska ábyrgðin væri vitaskuld þeirra. Nú var hún orðin mín. Einn af fyrirliðunum í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík spurði: “Var nú ekki hægt að sópa þessu undir teppið fyrst um sinn?”. “Það er ekkert teppi nógu stórt”, svaraði ég. Sumir úr foringjaliðinu voru engir perluvinir mínir eftir þetta hafarí.
Þrátt fyrir óvæntar vendingar eins og alltaf má gera ráð fyrir í stjórnmálabaráttunni, voru mörg tækifæri til að fagna góðum áföngum í borgarstjóratíð minni. Sumar af stórframkvæmdunum voru lítt sýnilegar, því að þær huldust neðanjarðar. Þar á ég við stórfellt átak í fráveitumálum borgarinnar. Unnið var að lokun úreltra frárennslisstúta í fjörborðinu meðfram endilangri suðurströndinni og mikil stofnræsi látin koma í staðinn, sem fluttu frárennsli að dælustöðvum og síðan að fullkominni hreinsi- og dælustöð við Ánanaust þaðan sem skólpinu var dælt eftir forhreinsun tæpa tvo kílómetra út í sjávarstrauma. Stígagerð var í fullum gangi og vorum við þar að mörgu
Advertisement
Ingólfstorg, sem opnað var í byrjun desember 1993. Umhverfi Tjarnarinnar var betrumbætt. Þannig mætti lengi telja.
Mikil gróska var í framkvæmdum íþróttafélaganna í borginni með stuðningi borgaryfirvalda. Snemma á embættisferli mínum fóru forráðamenn íþróttafélaganna að koma á minn fund og herma upp á ýmsa borgarfulltrúa að þeir hefðu við ýmis tækifæri gefið loforð um að byggja íþróttahús eða nýjan fótboltavöll fyrir þetta eða hitt félagið. Gjarnan hefðu hinir kjörnu fulltrúar verið í örlætisskapinu á góðri stund á stórafmælum, árshátíðum eða herrakvöldum íþróttafélaganna. Síðan var gengið eftir því að ráðandi menn stæðu við orð sín. Víkingur hafði fengið úrlausn sinna mála í Víkinni í Fossvogsdal. Nokkurt stríð stóð um það hvort yrði næst í stórframkvæmdum, Fram í Safamýri eða Fylkir í Árbæ. Þróttur var líka í biðstöðu og KR einnig. Og Valsmenn hugsuðu stórt um áframhaldandi framkvæmdir við Hlíðarenda. Þegar öll spil voru lögð á borðið reyndist það fjöldinn allur af félögum og klúbbum sem þurfti að fá mismikla úrlausn sinna mála.