Fróði Benjamín Þrastarson
Af yrm borinn
Konsept texti: Ég hef allt mitt líf haft áhuga bæði fantasíuheimum og myndasögum. Ég ákvað því að gera myndasögu með slíku þema.
Grunnur sögunnar var spunninn út frá tilviljunarkenndum fundi aðalpersónunnar og lítillar eldspúandi furðuveru. Það leiðir ferðalags þar sem hún reynir að koma dýrinu á sínar heimaslóðir.
Verkið snýst annars vegar um ævintýra- og ferðalagsþemað, en hinsvegar um myndun sambandsins milli dýrsins og konunnar, og hvernig að góðar dáðir stundum borga sig.
Einnig má líta á söguna sem skoðun á drekaþemanu sem að dúkkar upp í mörgum fantasíusögum (td. Eragon) þar sem aðalpersónan finnur drekaegg og elur upp. Oftast leiðir það til þess að þrátt fyrir að hafa mennska greind verður drekinn ekkert meira en einhverslags burðardýr/orrustutól fyrir manneskjuna, sem þannig fær að vera mikilvæg hetja, sem breytir örlögum fólks og landa. Frekar einhliða samband í raun.
Lokaverk // Fróði Benjamín Þrastarson // Teiknibraut á BA stigi // Vorsýning 2022