Myndlist: Árs nám fyrir nemendur sem lokið hafa starfsbraut eða sambærilegu námi

Page 1

Árs nám í myndlist

mynd list

Fyrir hverja er námið?

→ Námið er fyrir allt fólk sem hefur klárað starfsbraut í framhaldsskóla.

→ Fólk má líka hafa klárað nám sem er líkt og starfsbraut.

HVAÐ LÆRUM VIÐ Í NÁMINU?

→ Í náminu lærum við um myndlist og hönnun.

Við lærum allskonar leiðir sem fólk notar til að búa til myndlist. Til dæmis lærum við vinnu-aðferðir og tækni sem fólk notar.

→ Við lærum orð og lýsingar sem við notum til að tala um myndlist og hönnun. Við lærum líka að nota orð og hugmyndir til að búa til myndlist og hönnun.

→ Við lærum lista-sögu og tölum um listaverk sem fólk hefur búið til. Við lærum um samtíma-list og tölum um hvernig list myndlistarfólk er að gera í dag.

HVENÆR ER KENNSLA?

→ Námið er hálft nám. Kennsla er frá morgni fram að hádegi. Námið er alla virka daga og ekki um helgar.

→ Námið er tvær annir. Ein haustönn og ein vorönn.

→ Hver önn er 15 einingar. Samtals er námið 30 einingar.

→ Þú hefur lært hvað það eru margar leiðir og aðferðir til að búa til myndlist.

→ Þú hefur lært að nota margar þessar aðferðir til að búa til eigin listaverk.

→ Þú hefur lært að nota allskonar verkfæri og tæki til þess að búa til myndlist.

→ Þú hefur lært að vinna í þinni eigin list. Þú hefur lært að gera það sjálfstætt eða með stuðningi frá öðrum.

→ Þú getur sagt frá þínum listaverkum og þú getur talað um listaverk eftir annað listafólk. Við getum öll lært að segja frá list eins og okkur líður best að gera það.

→ Þú getur sagt frá áhugamálunum þínum. Þú kannt leiðir til að halda áfram að búa til list og skapa listaverk. Þannig ert þú skapandi manneskja í samfélaginu.

HVAÐ KANN ÉG EFTIR AÐ HAFA KLÁRAÐ NÁMIÐ?

Hvernig sæki ég um námið?

→ Þú fyllir út umsókn á www.mir.is. Umsóknarfrestur er til 22. maí.

→ Þú sendir líka skissubækur og sýnis-horn af listaverkum eftir þig.

→ Þú hittir okkur í skólanum og við tölum saman. Það heitir að koma í inntökuviðtal.

HEFUR ÞÚ SPURNINGAR?

→ Námsgjöld skólaárið 2024-25 eru 200.000 kr. eða 100.000 kr. önnin.

→ Ef þú vilt spyrja um námið eða fá aðstoð getur þú hringt í

skrifstofu skólans í síma 5511990 eða sent okkur tölvupóst

á berglinderna@mir.is. Berglind Erna Tryggvadóttir er yfirkennari námsins.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.