1 minute read

Fermingardagurinn minn

Hvað er þér eftirminnilegast á fermingardaginn: Ég man hvað ég var stressaður fyrir kirkjunni og var mjög létt þegar athöfnin var búin. Svo var gaman að fá alla ættingja í heimsókn og auðvitað fullt af gjöfum.

Tókstu þátt í undirbúningnum?

Advertisement

Já ég hjálpaði til við að baka kökurnar og skreyta kökurnar, man eftir því að við notuðum papriku á brauðtertuna sem var heimaræktuð.

Hvaða veitingar voru og hvar var veislan haldin? Veislan var haldin heima. Það var boðið upp á kökur og brauðtertur.

Hvernig voru fermingarfötin þín?

Ég var í svörtum jakkafötum með svarta slaufu og hvít skyrta.

Hvað var eftirminnilegasta fermingargjöfin?

Ég man sérstaklega eftir geggjuðum hermanna penna sem ég fékk í gjöf.

Uppáhalds tónlist frá þessum tíma?

U2 og Cranberries.

Hvað er þér eftirminnilegast á fermingardaginn: eftirminnilegast, já hóst, verð að segja að það var sennilega að um kvöldið hittist allur árgangurinn og fyrsta fylleríið varð að veruleika. Ég drakk slatta af Baley’s. Það var lífsreynsla. En það var hefð fyrir því í þá daga hjá krökkum á Blönduósi að detta í það eftir fermingu. Enda orðin fullorðin að okkar mati.

Hvaða veitingar voru og hvar var veislan haldin?

Ég var svo heppin að bróðir pabba var kokkur á þessum tíma og hann sá um að elda kalkún og með því. Svo var bæði marsípan kaka fræga með dagssetningu og nafni. Veislan var haldin heima hjá mér, hjónarúminu var hent út í bílskúr og veisluborði skellt upp.

Hvernig voru fermingarfötin þín?

Ég var í mynstruðum hvítum sokkabuxum, dökkbláum skokk og hvítri skyrtu. Svo fór ég í permanent.. lambakrullur voru málið.

Hvað var eftirminnilegasta fermingargjöfin?

Það var auðvitað græjurnar frá mömmu og pabba, með geislaspilari sem var þá alveg glænýtt á markaðnum. Ég fékk svo Bart simpson geisladisk sem var geggjaður. En ég fékk einnig margt í fermingargjöf sem ég notaði lengi og nota enn: Svefnpoka, skartgripaskrín, hárblásarar sem gaf upp öndina fyrir ca 5 árum, íþróttatösku, rúmföt.

Uppáhalds tónlist frá þessum tíma?

Ég elskaði Whitney Houston og Duran duran.

This article is from: