Umhverfisvottanir
Til er heill frumskógur af umhverfismerkjum og vottunum á markaði en ekki eru öll merkin jafn áreiðanleg. Mikilvægt er fyrir alla, sem stunda innkaup, að vera búnir að fara vandlega
yfir þau og finna hvaða merkjum er raunverulega hægt að treysta.
Áreiðanleg umhverfismerki eru öll í samræmi við ISO 14024 staðalinn um umhverfismerkingar og yfirlýsingar.
Þau eiga eftirfarandi þætti sameiginlega
Úttektum er sinnt af óháðum þriðja aðila.
Viðmiðin eru sértæk og þróuð af sérfræðingum.
Viðmiðin byggja á lífsferilsnálgun og gera þannig
kröfur til hráefnis, framleiðslu, notkunar og förgunar.
Viðmiðin eru hert á nokkurra ára fresti sem tryggir
sífelldar betrumbætur á vörunni eða þjónustunni.
Umhverfismerki sem hægt er að treysta og snúa að umhverfi og heilsu:





Svansmerkið Evrópublómið Blái engillinn Bra Miljöval Green Seal

UMHVERFISMERKI OG LÍFRÆN VOTTUN
Umhverfismerkin segja okkur að í vottunarferlinu er allur lífsferill vöru eða þjónustu metinn, allt frá frumframleiðslu til notkunar og förgunar.
Merkin um lífræna ræktun snúa að framleiðsluháttum hráefna í tiltekna vöru fremur en allan lífsferil hennar, það nær t.d. ekki yfir framleiðsluhætti eða pökkun, einungis í iðnaðarjarðgerd.
Umhverfismerki sem hægt er að treysta og snúa að lífrænni ræktun:









Sjá frekari upplýsingar um umhverfisvottanir á www.laufid.is

VARÚÐ:
Það er auðveldara að læra hvaða umhverfismerki eru áreiðanleg (sbr. myndir hér til hliðar) heldur en að læra hver eru ekki áreiðanleg, einfaldlega vegna þess hve ótrúlega mörg þau eru.

Umhverfisvottanir fyrir lífræna ræktun, segja til um að við
framleiðslu hráefna í tiltekna vöru hafi alþjóðlegum stöðlum um lífræna ræktun verið fylgt. Merki um lífræna vottun á
brauðtegund þýðir að ákveðnum skilyrðum um ræktun hráefnanna var fylgt, en segir ekki til um hvernig brauðið var bakað eða í hvernig umbúðum það er.

Skilyrði um lífræna ræktun eru t.d:
Sáðvara, áburður og varnarefni eru af náttúrulegum toga.
Skiptiræktun er stunduð í stað síræktunar.
Búfé fær lífrænt ræktað fóður.
Stórkaup er leiðandi fyrirtæki í heildsölu og dreifingu á
Íslandi með mikla reynslu og sérfræðiþekkingu. Fyrirtækið
býður upp á fjölbreytt úrval af hágæða vörum sem styðja
við skilvirkni, gæði og sjálfbærni í rekstri viðskiptavina sinna.
Græn stefna okkar
Stórkaup hefur skýra umhverfisstefnu sem leggur áherslu á að draga úr sóun og lágmarka umhverfisáhrif
í allri starfsemi sinni. Við fylgjum nýjustu lögum, reglum og tækniþróun til að tryggja að rekstur okkar sé bæði vistvænn og ábyrgur. Með aukinni vitund starfsfólks og viðskiptavina stuðlum við að jákvæðum breytingum og aðgerðum sem vernda auðlindir og náttúru landsins.
Græn afrek okkar
Stórkaup hefur markvisst innleitt svansvottaðar vörur í vöruúrval sitt til að stuðla að sjálfbærri neyslu. Við höfum lagt mikla vinnu í að lágmarka sóun og orkunotkun með ábyrgri meðhöndlun á söluvörum og umbúðum. Að auki hafa viðskiptavinir okkar fengið fræðslu og stuðning til að innleiða endurvinnslu og umhverfisvænar lausnir, sem hefur leitt til áþreifanlegra jákvæðra áhrifa á samfélagið og náttúruna
Umhverfisvæn vörumerki okkar
Stórkaup vinnur með framsæknum vörumerkjum sem leggja áherslu á umhverfisvernd:
• Nilfisk – Hreinsibúnaður sem uppfyllir strangar umhverfiskröfur.
• Numatic – Endingargóð og notendavæn hreingerningatæki með áherslu á sjálfbærni.
• Bambo Nature – Persónuvörur og hreinsiefni með áherslu á sjálfbærni og minni áhrif á umhverfið.
• Abena – Persónuvörur og hreinsiefni með áherslu á sjálfbærni og minni áhrif á umhverfið.
Þessar lausnir hjálpa viðskiptavinum okkar að taka vistvænar ákvarðanir og styðja við grænari framtíð.






















































SKRIFSTOFUVÖRUR

Bong umslög fóðruð Airpoc, 18x26

EINNOTA VÖRUR


Minnismiðar Esselte 10x10cm 500blöð

Kaffimál bioware brún 20cl, 50stk




Bambus gafflar bioware 17cm, 100stk


Töflutúss fylling blá V Pilot, 12stk




Minnismiðar Esselte 10x10cm 500blöð



Töflutúss fylling blá V Pilot, 12stk






Bambus gafflar bioware 17cm, 100stk



Bekkjapappír
Papernet, 49,2cmx50m, 9rl 2l



Blautklútar án ilm ABENA, 18x20cm, 80bl, áfylling



