4 minute read

PISTILL FORMANNS

MEISTARAFLOKKUR KVENNA Björgvin Karl Gunnarsson

Undirbúningur fyrir tímabilið hófst í október árið 2019 með hefðbundnu sniði. Lyftingar, hlaup og fótboltaæfingar. Kjarnafæðismót kvk. var haldið í fyrsta skipti árið 2020 og mættum við til leiks þar ásamt Einherja og var árangur og uppgangur liðsins ásættanlegur, síðasti leikur í því móti hjá okkur fór aldrei fram vegna Covid og það hvarf margt út í veður og vind vegna ástandsins sem því fylgdi. Meðal annars gekk ekki að fá þá leikmenn til landsins sem samið var við þar sem algjört ferðabann var í gildi í Trinidad og Tobacco. Öllu skellt í lás og algjört æfingabann tók gildi. Leikmenn æfðu hver í sínu horni og biðu eftir að fá að æfa saman og þegar að því loksins kom var það með takmörkunum. Þó það hafi gengið ágætlega er það ekki sá undirbúningur sem knattspyrnulið þarf fyrir mót, það komu Nínu Wilson, markmann frá Watford í Englandi, danska miðvörðinn Heidi Giles, Halldóra Birta kom heim frá Selfossi og auk þess komu til okkar Halla Marinós frá KR og Sigmundína á láni frá Þrótti, auk þeirra komu svo nokkrar gamlar kempur inn í verkefni eins og Freyja Viðarsdóttir og Selja Snorradóttir. COVID TÍMABILIÐ 2020 „Stór hluti liðsins eru stúlkur fæddar á árunum 2000 til 2002 og eru lykilleikmenn FHL. Framtíðin er björt.“ upp nokkur meiðsli á þessu tímabili, sum þeirra hægt að rekja Eftir erfiðan leik úti á móti Hömrunum fyrir verslunarmannabeint til ástandsins. helgina, þar sem liðið var ekki með sjálfu sér, þá kemur Við upphaf móts erum við í vandræðum með að fullmanna lið en tókumst virkilega vel á við það. Breytum taktík og náðum að kreista fram jákvæð úrslit í byrjun móts. Meiðsli leikmann á borð við Sonju, Steinunni og Viktoríu gerði það að verkum að við urðum að sækja liðsstyrk í seinni glugganum. Við fengum viðsnúningur og leikur liðsins fór á flug og frammistaðan oft heilt yfir frábær. Þó svíða mjög jafnteflin tvö á heimavelli þar sem sem við óðum í færum en náðum ekki að skora, sigur í öðrum af þessum tveimur leikjum hefði skilað okkur upp um deild.

Advertisement

Ungir leikmenn voru að spila stórt hlutverk í sumar. María Nicole og Karítas Embla voru að spila reglulega í byrjun móts og fengu góða reynslu, Rósey Björgvinsdóttir og Freyja Karín Þorvarðar festu sig í sessi sem byrjunarliðsleikmenn og uxu með hverjum leik. Þess má geta að stór hluti liðsins eru fæddar frá ´00 til ´02 og eru lykilleikmenn FHL. Framtíðin er björt. Þegar mótið er flautað af þá áttum við tvo leiki eftir og ennþá möguleika að komast upp um deild. FHL átti þrjá leikmenn í úrvalsliði annarrar deildar tímabilið 2020, þær Shakira Duncan, Heidi Giles og Freyju Karínu auk þess sem fleiri voru tilnefndar.

FHL 2020

Ég vil hrósa öllu liðinu fyrir sitt framlag í sumar, stelpurnar voru frábærar. Í íþróttum eru hlutverk leikmanna mismunandi, allar voru þó með hugann við verkefnið og þau markmið sem við ætluðum okkur sem lið. Liðið tók stór skref í að vera lið sem getur náð árangri, æfðu vel, sýndu mikla og góða liðsheild og það munaði sáralitlu að liðið færi upp í ár. Það er komin reynsla í hópinn og þekking á því hvað þarf til að ná árangri. Framtíðin er björt ef haldið er rétt um hlutina. Við viljum þakka styrktaraðilum, stjórn og meistaraflokksráði kvenna og þeim sem gerðu sér ferð á þá fáu leiki sem

Höttur þakkar stuðninginn á árinu:

„Liðið tók stór skref í að vera lið sem getur náð árangri, æfðu vel, sýndu mikla og góða liðsheild og það munaði sáralitlu að liðið færi upp í ár.“

áhorfendur mættu á, ykkar stuðningur er ómetanlegur og er hugur allra að gera en betur á næstu árum og búa til og hlúa vel að góðu kvennaliði.

Hvað má gera betur

Það má bæta umgjörð og utanumhald. (tek fram að stór bæting varð eftir að meistarflokksráðið kom inn fyrir tímabilið 2020) Það þarf að skapa fleiri verkefni fyrir yngri leikmenn, auka þarf við styrktarþjálfun og æfingakúltúr. Það vantar fleiri styrktaraðila inn í íþróttastarfið. Fótboltakveðja

Björgvin Karl Gunnarsson Þjálfari meistaraflokks kvenna.

This article is from: