1 minute read

Mikil eyðilegging í bruna í Drafnarslipp

Lögreglan leitaði fjögurra ungmenna vegna stórbrunans við Drafnarslipp

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði sl. þriðjudag eftir að ná tali af fjórum ungmennum í tengslum við rannsókn hennar á bruna í Drafnarslippnum sl. mánudagskvöld. Þau voru á ferli við Drafnarslippinn.

Advertisement

MIKILL ELDUR SEM

MAGNAÐIST HRATT

Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um 20.30 í gærkvöldi um að eldur væri í byggingu sem áður hýsti Skipamíðastöð Drafnar við Strandgötu. Allt lið slökkviliðsins var sent á vettvang til að slökkva svo kom næturvaktin til aðstoðar og var slökkviliðið á staðnum til kl. 3 í nótt en þá hafði tekist að slökkva allt.

Mikinn reyk lagði upp frá slippnum og mátti sjá hann víða að á höfuðborgarsvæðinu. Örlítill andvari var af austan og lagði reykinn því ekki yfir byggð.

Eldurinn virðist hafa komið upp í stórri skemmu þar sem bátar voru áður smíðaðir í en þetta er hátt stálgrindarhús áfast við gömlu trésmiðjuna en það er hús sem skv. heimildum Fjarðarfrétta voru húseiningar sem fengust frá hernum á sínum tíma.

Gríðarlegur eldur var í skemmunni og ljóst að þó húsið væri autt og ekki hafi verið rafmagn í því í heilt ár var mikill eldsmatur í einangrun, gömlum raflögnum og einhverju drasli sem þar var.

Slökkviliðið reyndi að verja bygginguna sem er samföst skemmunni en hafði ekki árangur sem erfiði og allt brann þar nánast sem brunnið gat.

Allt N Tt Hj V Lbo A

Í því húsi hefur um langt skeið verið starfrækt vélsmiðjan Vélboði sem hefur m.a. hannað og smíðað ýmis tæki fyrir landbúnaðinn. Í rústunum mátti sjá ýmist tæki og tól og gamla Land Rover bifreið sem hafði orðið eldinum að bráð.

Haraldur Reynir Jónsson, sem í gegnum félag sitt á húsnæðið, sagði í samtali við Fjarðarfréttir að það hafi verið ömurlegt að horfa upp á þetta brenna en Haraldur er staddur erlendis. Hann segir að sem betur fer hafi enginn slasast og engar skemmdir orðið á nærliggjandi eignum.

Ri Ji Bruninn

Er þetta þriðja húsnæðið á hafnarsvæðinu í eigu Haraldar sem brennur á síðustu áratugum, fyrst brann gamla Flensborg, vestan við Íshúsið og fyrir fáum árum brann húsnæði fiskmarkaðshúsið við Fornubúðir.

Fleiri myndir má sjá á fjardarfrettir.is og á Facebook síðu Fjarðarfrétta.

Í húsnæði Vélboða mátti m.a. sjá þennan brunna Land Rover.

This article is from: