2 minute read

Skattlagning á öryggi

FÍB ekki hlynnt skattlagningu á öryggi ökutækja

Umhverfisstofnun vinnur nú að því að uppfæra áætlun um loftgæði og lúta breytingar að því að lagt verði til að sveitarfélög fái heimild til að leggja gjald á notkun nagladekkja. Gangi áætlanir eftir þarf að gera breytingu á umferðarlögum. Hlutfall negldra dekkja var talið í Reykjavík miðvikudaginn 9. mars 2022 og skiptist það þannig að 40% ökutækja var á negldum dekkjum og 60% á annars konar. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að félagið sé ekki hlynnt skattlagningu á öryggi ökutækja. Hann segir sérstakan skatt á nagladekk vera aðför að öryggi.

FÍB hefur markvisst ekki verið hlynnt skattlagningu á öryggi ökutækja

„Félagið hefur markvisst ekki verið hlynnt skattlagningu á öryggi ökutækja. Á sama tíma höfum við í sjálfu sér hvatt fólk til þess að gera sína eigin þarfagreiningu en æski-legt er að sem flestir séu án nagla sem þurfa ekki að vera á nöglum. Það að setja sérstakan skatt á naglanotkun er eitthvað sem við teljum geta verið aðför að öryggi,“ segir Runólfur. Tilgangurinn með gjaldtökunni er að draga úr notkun nagladekkja í þéttbýli, einkum til að bæta loftgæði. Runólfur telur æskilegra að upplýsa fólk um umhverfisleg áhrif af notkun nagladekkja frekar en að skattleggja notkun þeirra.

Öryggislega séð slær ekkert negldum vetrardekkjum við, í vissum aðstæðum

„Aukin meðvitund er um að notkun nagladekkja hafi neikvæð áhrif á slit gatna og umhverfið. Samdráttur hefur verið í notkun nagladekkja en fyrir nokkrum árum var mikill meirihluti á slíkum dekkjum. Þetta hefur breyst og ónegld dekk eru alltaf að verða betri og betri og orðinn ákjósanlegur kostur að taka ónegld vetrardekk. Öryggislega séð slær ekkert negldum vetrardekkjum við, við vissar aðstæður, en þær aðstæður eru mjög hverfandi í til dæmis þéttbýlinu á suðvesturhorninu,“ segir Runólfur Ólafsson.. Nagladekkjagjald hefur verið við lýði um nokkurt skeið í Noregi og nemur 20 þúsund krónum fyrir veturinn, miðað við fjögur nagladekk. Þess má geta að fyrir nokkrum árum var hávær umræða í Svíþjóð um slík dekk. Sett var á laggirnar nefnd sem átti að finna leiðir til að bæta loftgæði í nokkrum borgum í Svíþjóð. Hún lagði að lokum til að mæla ekki með skatti á nagladekk. Sömu sögu er að segja frá Finnlandi. Annars staðar í Evrópu er nagladekkjanotkun afar lítil og víðast hvar bönnuð með öllu.

Upplýsingamynd frá Stavanger í Noregi þar sem gjald fyrir nagladekk er tilgreint.

Vefverslun FÍB.is opin allan sólarhringinn

This article is from: