
1 minute read
40 þúsund hraðabrot
Hæsti hraði sem mældist með sjálfvirku hraðaeftirliti árið 2021 var 166 km/klst. Yfir fjörutíu þúsund hraðabrot voru skráð það ár og þar af um 19 þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Átta nýjar meðalhraðamyndavélar voru teknar í notkun árið 2021. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu 2021 um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar. Ársskýrslan greinir frá sértækum aðgerðum umferðaröryggisáætlunar en meðal verkefna er framkvæmd sjálfvirks hraðaeftirlits. Í skýrslunni eru teknar saman helstu tölur varðandi slíkt eftirlit fyrir árið 2021.
Flest brotin voru skráð á vélarnar á höfuðborgarsvæðinu
Fram kemur í skýrslunni að flest brotin voru skráð á vélarnar á höfuðborgarsvæðinu eða 19.001 og næstflest voru tekin upp á vélar á Suðurlandsvegi, eða yfir 5.000 brot. Flest brot voru skráð á seinni hluta árs eða frá ágúst til nóvember en fæst í janúar. Sá ökumaður sem ók hraðast samkvæmt skráningu hraðamyndavéla var á 166 km/klst á Suðurlandsvegi. Myndavélar á höfuðborgarsvæðinu mældu flest hraðakstursbrot á svæðum þar sem hámarkshraði var 60 km/klst eða 10.694. Þar af voru flest brot á Sæbraut og næstflest á Hringbraut og Breiðholtsbraut. Alls 3.981 brot voru þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, flest á Vesturlandsvegi í póstnúmeri 110. Þar sem hámarkshraði er 30 km/klst áttu flest brot sér stað í Skeiðarvogi. Á landsvísu, þar sem hámarkshraðinn var 70 km/klst, óku flestir brotlegir á milli 81–90 km/klst eða 52% allra. Flest þeirra brota, þar sem mældur hraði var yfir 111 km/klst, áttu sér stað í Fáskrúðsfjarðargöngum. Þar sem hámarkshraðinn var 90 km/klst óku flestir brotlegir á milli 101–110 km/klst eða 53%. Þegar litið er til hópsins, sem keyrði yfir 121 km/klst, voru langflest brot skráð á Suðurlandsvegi eða 76%.
Smíðum bíllykla
Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Tímapantanir óþarfar

