
1 minute read
Minni eftirspurn eftir bílum
Bílaframleiðendur eru farnir að merkja minni eftirspurn í Evrópu og Norður-Ameríku. Sérfræðingar segja vaxandi vísbendingu um að neytendur hiki við kaup vegna hækkandi verðs og aukinnar verðbólgu.
Framleiðendurnir segja að þeir hafi byrjað að taka eftir minni eftirspurn í mars á þessu ári. Svo hefði stríðið í Úkraínu ekki bætt ástandið. Bíðtími eftir nýjum bílum er farinn að styttast vegna minni eftirspurnar.
Sjá þróunina ekki breytast á næstunni
Verðbólga í Evrópu og Bandaríkjunum hefur aukist mikið undanfarna mánuði og hafa landsbundnir seðlabankar gefið út að þeir sjái þá þróun ekki breytast á næstunni. Nýleg könnun þýsku Ifo-stofnunarinnar í München sýndi að pöntunarstaða þýskra bílaframleiðenda dróst saman og verðvæntingar voru á niðurleið vegna hættu á gasskorti og áframhaldandi veikleika í kínverska hagkerfinu. Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur íhugað að lækka verð á bílum sínum og koma af stað ívilnunum sem voru felldar niður á síðasta ári.
Bílasala tók kipp í Þýskalandi í október
Bílasala í Þýskalandi tók töluverðan kipp í október eftir nokkra lægð framan af árinu. Nýskráningum í landinu fjölgaði um 17 prósent í mánuðinum og var mesta salan í bílamerkinu Polestar. Mikill skortur hefur verið á íhlutum til bílaframleiðslu um langt skeið og má rekja hann til heimsfaraldurs og stríðsins í Úkraínu.
Íhlutaskortur minnkaði nokkuð í október og gátu þá bílaframleiðendur Þýskalands aukið framleiðslu sína. Alls voru 208.642 nýir bílar skráðir á landinu í mánuðinum sem er aukning um 17 prósent. Sala rafbíla jókst um um rúm 18% og nálgast nú 20 prósenta markaðshlutdeild.
