Læknaneminn 2019 (fagaðilar)

Page 9

Kennslu- og fræðslumála­nefnd Guðrún Margrét Viðarsdóttir formaður Kennslu- og fræðslumálanefndar 2018-2019 Kennslu- og fræðslumála­ nefnd (KF) hefur haft í nógu að snúast á nýliðnu starfsári. Við sóttum hina venjulegu fundi kennslu­ ráðs, deildarráðs og deildar­innar auk þess sem við áttum sæti í vinnuhóp varðandi endurskipulagningu námsins í læknis­fræði. Gott samstarf hefur verið milli KF og stjórnar Félags læknanema varðandi hin ýmsu mál sem viðkoma nemendum í deildinni.

Sigrún Perla Böðvarsdóttir, Vala Kolbrún Pálmadóttir, Geir Tryggvason auk Elínborgar Bárðardóttur sem kynnti sérnám í heimilislækningum á Íslandi. Í samvinnu við Alvogen og Axel F. Sigurðsson hjartalækni héldum við hið vinsæla hjartahlustunarvísó sem var vel sótt af nemum á öllum námsárum. Stórkostleg stórslysaæfing var haldin í húsnæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði í mars. Við skipulag æfingarinnar fengum við góða aðstoð frá Bjargráði og björgunarsveitinni Ársæli auk þess sem Hjalti Már Björnsson bráðalæknir og deildarlæknar á bráðasviði komu að undirbúningi æfingarinnar. Tæplega 50 manns mættu á æfinguna, bæði læknanemar á öllum námsárum og hjálparhellur úr ýmsum áttum. Æfingin gekk ótrúlega vel, Stefán Júlíus

Aðalsteinsson og Anna Hjördís Grétarsdóttir hlutu leikaraverðlaunin í ár fyrir afbragðsleik en allir þeir sem komu að æfingunni sinntu sínu hlutverki með glæsibrag. Tólf lið tóku þátt í holsjárkeppninni í ár sem líkt og áður var haldin í samvinnu við Karl Ólafsson kvensjúkdómalækni. Öll liðin stóðu sig mjög vel og náðu í sameiningu öll að klára þrautina. Að lokum stóðu þó Kjartan Helgason og Jón Gunnar Kristjánsson uppi sem sigurvegarar með besta tímann. Áður en námsárinu lýkur stefnum við á að halda kynningu á BS verkefnavinnu fyrir annars árs nema. Það hefur verið sannur heiður að fara fyrir þessum glæsilega hóp síðasta árið og þakka ég kærlega fyrir mig. Fyrir hönd KF þakka ég fyrir liðið starfsár.

Mentorverkefnið var á sínum stað eins og síðustu ár þar sem nemar af fimmta ári voru fyrsta árs nemum innan handar meðan þau stigu sín fyrstu skref í Læknadeild. Líkt og fyrri ár stóð­ um við fyrir kúrsakynningum þar sem eldri nemendur sem hafa lokið áföngum kynna þá fyrir yngri námsárum og veita hin ýmsu ráð. KF skipulagði líkams­ skoðunarkennslu fyrir annars árs nema til að undirbúa þau fyrir komandi klíník. Einnig skipulögðum við fræðslubúðir í lífefna- og lífeðlisfræðikennslu fyrir annað árið sem fóru fram tvær kvöldstundir í húsakynnum mæðraverndar á Kvennaspítalanum. Sérnámskynningin var sérlega glæsileg í ár þar sem fimm sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum kynntu sérnám sín í ólíkum löndum. Fyrirlesarar í ár voru Stefán Haraldsson,

Lýðheilsufélag Læknanema Kristín Haraldsdóttir formaður Lýðheilsufélags læknanema 2018-2019 Starfsár Lýðheilsufélagsins 2018-2019 var viðburðaríkt og bættust við nýjungar í starfsemi félagsins. Í ágúst sendi félagið tvo fulltrúa, Ástu Guðrúnu Sighvatsdóttur og undir­ ritaða, á aðalfund alþjóðasamtaka læknanema (e. Inter­national Federation of Medical Students’ Associ­ations, IFMSA) í Montréal. Þar voru sóttir fundir hjá Standing Committee of Public Health (SCOPH), lýðheilsugrein IFMSA,

Kennslu- og fræðslumálanefnd 2018-2019. Frá vinstri: Sigmar Atli Guðmundsson, Guðrún Margrét Viðarsdóttir, Lilja Dögg Gísladóttir, Jón Erlingur Stefánsson, Helga Þórsdóttir, Hafsteinn Örn Guðjónsson

og lýðheilsumálefni rædd daginn út og inn. Í vetur hefur Lýðheilsufélagið verið í góðu samstarfi við SCOPH. Bangsaspítalinn var haldinn 23. september. Líkt og á seinasta ári var Bangsaspítalinn haldinn á þremur heilsugæslu­ stöðvum á höfuðborgar­ svæðinu á sama tíma. Það skipulag hefur reynst vel og gefur bangsa­ læknunum rýmri tíma með hverju barni. Bangsalæknarnir voru öllu viðbúnir en þeir gipsuðu brotnar loppur og vængi, bólusettu ófáa bangsa og læknuðu hina ýmsu kvilla. Í nóvember hélt Lýðheilsufélagið bíókvöld í Bíó Paradís í samstarfi við fulltrúaráð og var opið fyrir alla læknanema. Þar var myndin Bleeding Edge sýnd, en það er heimildarmynd þar sem lækningatækjaiðnaðurinn í Banda­ ríkjunum er rannsakaður.

Verkefnið Sjálfselsk hófst í janúar sem er nýtt verkefni hjá félaginu og hefur það að markmiði að efla geðheilsu læknanema. Meira er fjallað um Sjálfselsk seinna í blaðinu. Í mars stóð félagið fyrir fræðslukvöldi um sýklalyfja­ ónæmi. Karl Gústaf Kristinsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítala, fræddi læknanema um efnið og svaraði fjölmörgum spurningum. Þetta verkefni er dæmi um hugmynd sem vaknaði vegna þátttöku í IFMSA, en sýklalyfjaónæmi hefur verið mikið til umræðu þar seinustu ár. Lýðheilsufélag læknanema þakkar fyrir afar skemmtilegt starfsár.

Ávörp og annálar

9


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Læknaneminn 2019 (fagaðilar) by Félag Læknanema - Issuu