
4 minute read
Hvað ætlar þú að gera
í sumarfríinu?
Vinsælasta spurningin þegar hinir svokölluðu sumarfrísmánuðir nálgast er án efa hvað eigi að gera í sumarfríinu. Henni fylgir ákveðin pressa og felur í sér aðrar undirliggjandi spurningar: Hvað ætlar þú að gera sem er skemmtilegt, uppátækjasamt, öðruvísi og spennandi? Í henni felst einnig fullyrðingin um að áunnið orlofið verði leyst út á sumarmánuðunum. Jafnframt er óskrifuð regla að bannað sé að svara einhverju leiðinlegu.
Advertisement
Ég er ekki sumarfrístýpan og þar af leiðandi þreytir spurningin mig. Iðulega svara ég „leiðinlega“ og veld viðmælanda ákveðnum vonbrigðum. Sko nei, ég ætla ekki að gera neitt … sem þykir frásagnarvert né heldur er ég þess vís á að leysa út orlofið mitt í þær vikur sem kallast sumar á Íslandi.
Hugsanlega hefur mér mislukkaðist að læra að taka sumarfrí. Yfir skólaárin voru sumrin alla jafna vertíð. Tíminn var nýttur til að safna í forða og frekari fjárráða fyrir veturinn. Eftir skólann mistókst mér viljandi eða óviljandi að eignast börn, svo ég er og hef aldrei verið háð skólafríum barna eða leikskólalokunum. Þar af leiðandi hef ég ætíð mátt sæta rest með frí í júlí, og annað hvort þurft að leysa fríið mitt út fyrr eða seinna. Þrátt fyrir allt er sumarið uppáhaldstíminn minn.
Margt er líkt með lifnaðarháttum Íslendinga og bjarna; á sumrin vökum við – á veturna liggjum við í híði. Búsetan á norðurhveli er æði strembin; dimmir vetrarmánuðirnir og kuldinn gera það að verkum að útivera er síður eftirsóknarverð og allt verður torveldara. Dagurinn er svo stuttur að varla tekur því að fara á fætur. Mér dytti því seint í hug að ferðast til útlanda á besta tíma ársins. Satt best að segja finnst mér hugmyndin glapræði, þrátt fyrir rigninguna og rokið á suðvesturhorninu. Að fara til útlanda „bara af því bara“ finnst mér ruglað bruðl. Sérstaklega í ljósi þess að landið okkar er á heimsmælikvarða og náttúruperlurnar margar. Ef sólarþyrstir eru við að skrælna má alltaf sækja sólina á Norður- eða Austurlandið og hitann sömuleiðis.
Á meðan samfélagsmiðlafærslur frá vinum sýna mér strandlengjur og fjarlæg höf þá er öfund mín lítil sem engin. Mér finnst fátt betra en að setjast út í garð og horfa á sumarblómin og ógróðurinn vaxa. Ég kýs að nota árstímann til að hanga lengur úti með hundinum á kvöldin, njóta bjartra nátta og miðnætursólarinnar. Hafið þið einhvern tíma tekið eftir því að alltaf í kringum miðnætti kemur blankalogn – eins og vindurinn sé lagstur til hvílu eftir langan dag?
Á meðan sundlaugagarðurinn lokar á Tenerife um klukkan átta eru flestar laugar landsins opnar til klukkan tíu. Ég elska að eiga auðveldara með að vakna til vinnu og þurfa ekki að skafa eða hanga í umferðateppu. Ég elska að stökkva niður í bæ og hitta kæran vin upp úr þurru eða rífa fram grillið og sötra á svölunum. Ég dýrka að þurfa ekki að klæðast sokkum og á sama tíma finna fyrir fresku og köldu loftinu. Þess vegna vel ég að vinna í „sumarfríinu“ og tek mér svo almennilegt frí frá amstrinu á veturna.
Sumarið fyrir mér er frí frá rest af ári.
Og til að svara spurningunni þá ætla ég að blómstra; af því að lífið er loksins, eftir langan vetur, orðið bærilegt.
„Síðustu árin hafa áherslur í starfi okkar í sífellt ríkari mæli miðast við að hvetja fólk til virkrar þátttöku og stunda útiveru. Hver velur sér ferð við hæfi en mikilvægast er að að fara út og hreyfa sig og vera með skemmtilegu fólki. Þarna erum við einfaldlega að vinna eftir markmiðum félagsins og ánægjulegt að þátttaka í ferðum okkar síðustu ár hefur aldrei verið meiri né áhugi á útivist,“ segir Heiða Meldal ferðafulltrúi Ferðafélags Íslands.
Sumarstarf FÍ er að komast á skrið og á dagskránni næstu vikur og mánuði eru margar skemmri sem lengri áhugaverðar ferðir. Nefnir Heiða að á áætlun séu allmargar ferðir um svæðið að Fjallabaki; um Laugaveginn, Torfajökulssvæðið og slóðirnar þar í kring. Einnig langi marga að fara í leiðangra um, t.d. um Lónsöræfi, Víknaslóðir, Rauðasand og Strandir. Um leið hafa allir fjallaskálar félagsins verðið opnaðir að undanförnu. ,, Segja má að allt okkar starf snúist í grunninn um lýðheilsustarf, rekstur fjallaskála, útgáfustarf og fræðslu,“ segir Heiða.
„Hornstrandir hafa skipað stóran sess í ferðaáætlun félagsins. Fyrir mörgum árum tókum við að okkur rekstur Hornbjargsvita en þar hafði verið komið upp ferðaþjónustu yfir sumartímann. ,, Við höfum lagt í mikla vinnu sl. ár við Hornbjargsvita og tekið bæði vatnsbúskap og rafmagnsmál og endurnýjað ásamt því að reisa nýjan stiga upp úr fjörunni og endurnýja rennuna sem dregur allan búnað og vistir upp úr fjörunni,.“ Aðstaðan er því orðin mun betri en hún var og Hornbjargsviti einn af lykilstöðum ferðamanna sem fara í gönguferðir á Hornstrandir.
„Starfsemi okkar í Þórsmörk á sér langa sögu. Skagfjörðsskáli í Langadal er eitt af okkar elstu sæluhúsum og raunar er sú bygging mjög samofin ímynd og sögu félagsins. Ófáir eiga góðar minningar um að hafa dvalist þar, ýmist í skipulögðum ferðum okkar eða á eigin vegum. Nú erum við lögð af stað í það stóra verkefni að endurbyggja Skagfjörðsskála og þegar er búið að teikna og hanna skálann sem verður byggður í anda þess gamla, á sama stað, með sama ytra útliti en innra skipulag og aðstaða uppfærð og nútímavædd, meðal annars með salernum og sturtum, stærri forstofu og stærra eldhúsi, kæligeymslu og þurrk aðstöðu auk þess sem gluggar í sal eru stækkaðir og útsýnið úr skálanum nýtur sín betur. Nærri lætur að sumarleyfisferðir FÍ þetta árið séu yfir 40 talsins en þegar allar ferðir félagsins á þessu ári – lengri sem skemmri með öllum ferðum fjallaverkefna – eru teknar með í breytuna eru þær vel á þriðja hundraðið. En það er ekki nóg að setja upp mikinn fjölda ferða. Þær verða líka að hitta í mark ,“ segir Heiða, „og vera í takti við samfélagið og þróun þess.“
„Fólk vill ferðir sem eru áskorun, og það vill taka þátt í verkefnum með fjölmörgum ferðum og skýru markmiði, ekki síst unga fólkið sem er að koma inn í starfið hjá okkur. Skemmri ferðir um svæði sem eru í umræðunni, til dæmis vegna auðlindanýtingar, hafa verið fjölsóttar í gegnum tíðina en þetta hafa verið samstarfsferðir með Landvernd um svæði sem fólk hefur áhuga á að kynna sér,“ segir Heiða.