LISTHÓPAR

Myndlist-Dans



Hitt Húsið er miðstöð ungs fólks á aldrinum 16-25 ára. Meðal fjölmargra verkefna þar eru Listhópar Hins Hússins, sem starfræktir eru yfir sumartímann og eru löngu orðnir ómissandi partur af iðandi sumarlífi Reykjavíkur. Ungu fólki gefst kostur á að sækja um og koma með hugmyndir að skapandi verkefnum og valdir einstaklingar fá síðan tækifæri til að vinna að list sinni í átta vikur. Mikið af ungu og efnilegu listafólki stígur sín fyrstu skref á listabrautinni með starfi sínu í Listhópum. Sum þeirra stunda nú þegar listnám á háskólastigi og því vel á veg komin að verða fagfólk í listum. Verkefni hópanna eru fjölbreytt og einkennast af miklum metnaði og sköpunargleði. Starf þeirra gefur okkur tilefni til að líta upp frá amstri hverdagsins og upplifa óvænt stefnumót við listagyðjuna. Sumarið er tíminn, allt getur gerst! Hægt er að fylgjast með starfi listhópanna á veraldarvefnum og götum borgarinnar. Komdu með í listaleiðangur í Reykjavík og njóttu þín í miðborginni.
Hitt Húsið is a cultural and information center for young people between the age of 16-25. One of the numerous projects that Hitt Húsið carries out, is the Creative Summer Groups project which has become an essential part of the city´s cultural environment Young people are given the opportunity to form a summer job, by applying to Hitt Húsið with their own creative ideas The groups consist of young ambitions and creative artists and their projects are diverse A lot of the upcoming artists take their fist steps within the field of arts in the Creative Summer Groups Some are already students at the Iceland University of the Arts or other art schools of higer education and well on their way to becoming professional artists These creative young people provide us with an exuse to take a break from our everyday life and enjoy vibrant art in the heart of the city It´s summer in Reykjavík, anything can happen! Come with us on an exciting art excursion and enjoy the centre of Reykjavík More information about the Creative Summer Groups can be found online
Þær mætast aftur Á bar í miðbænum hittast tvær ungar konur fyrir tilviljun eftir að hafa ekki sést lengi. Er uppgjör óumflýjanlegt? Thea Snæfríður Kristjánsdóttir vinnur í sumar að leikriti sínu ÞÆR og mun bjóða fólki að hlýða á leiklestra á brotum úr leikhandriti í mótun Verkið fjallar um eftirmál ástarsambands tveggja ungra kvenna og samskipti þeirra Tekist er á við spurningar um þörf manneskjunnar fyrir uppgjör og sjálfseyðingarhvötina sem getur falist í endurtekningu sársaukafullra samskipta. Thea Snæfríður stundar nám í bókmenntafræði við HÍ og hefur leikið í sjónvarpsþáttum og leiksýningum í áhuga- og atvinnuleikhúsi
They meet again In a downtown bar in Reykjavík two young women bump into each other after having been in no contact for a while Is a showdown inevitable? This summer Thea Snæfríður Kristjánsdóttir will work on the script for her play ÞÆR and invites people to listen to readings of scenes from the work in progress. The play is about the aftermath of a relationship between two young women and their interactions It deals with the human need for closure and how the repetition of painful communication becomes a self-destructive measure Thea Snæfríður currently studies literature at the University of Iceland and has acted in TV-series and plays NOTE: All readings will be in Icelandic!
Duo dolce er skipað fiðluleikurunum Karitas Þorsteinsdóttur og Sigrúnu Klausen sem báðar hafa lokið framhaldsprófi í fiðluleik Í sumar munu þær leggja áherslu á að kynna mismunandi tímabil klassískrar tónlistar í formi samspils tveggja fiðla, en einnig mun dúóið taka fyrir íslenska tónlist. Duo dolce vill kynna listformið duo í gegnum fiðluleik og sýna hvernig fiðlur geta verið ólíkar en um leið fundið samhljóm og myndað fallegar laglínur Sumarið 2024 mun Duo dolce flytja mismunandi klassísk verk á skapandi og skemmtilegan hátt
Duo dolce consists of two violinists, Karitas Þorsteinsdóttir and Sigrún Klausen This summer, Duo dolce will focus on portraying different periods of classical music in the form of two violins, the duet will also showcase traditional Icelandic music and folk songs Duo dolce wants to portray the art form of the duet through two violins and show how they can play different melodies at the same time but make it sound as one piece The summer of 2024 Duo dolce will play many pieces in a fun and interesting way
'Kruklið: Gagn & Gaman’, verkefni Hjalta Nordal og Kormáks Loga Bergssonar, er myndbandsverk í átta þáttum í stíl fræðsluefnis og kynningarmyndbanda Hver þáttur mun hafa það að markmiði að fræða landsmenn um nýjar og framandi leiðir og aðferðir til ýmissa athafna daglegs lífs Til að mynda ný sundtök, ný handtök og verkfæri í eldhúsinu, ný svipbrigði og tilfinningar, ný dægradvöl, ný leið til að tala íslensku og margt fleira. Myndböndunum er ætlað að leysa áhorfandann úr fjötrum hins vanabundna og hvetja hann til að opna hugann og endurnýja veruleikann með óhlutbundnum augum Því allt er gott sem nýtt er
'Kruklið: Gagn & Gaman', by Hjalti Nordal and Kormákur Logi Bergsson, is a video art piece in eight episodes in the style of public PSAs and educational material Each episode has the aim of finding new and alien ways to go about daily tasks such as new ways of swimming, cooking, conveying emotion, passing the time, speaking languages and much more. The aim of the videos is to free the viewer from the shackles of tedious habit and encourage them to open their mind and see reality from a new perspective Because new equals better
Kruklið
@kruklid
@kruklid
Strengjakvartettinn Eyja er skipaður fiðluleikurunum Söru Karín Kristinsdóttur og Elísabetu Önnu Dudziak, víóluleikaranum Diljá Finnsdóttur og sellóleikaranum Ágústu Bergrós Jakobsdóttur. Þær kynntust við nám í tónlistardeild Listaháskóla Íslands Í sumar mun Strengjakvartettinn Eyja leika bæði þjóðlega tónlist og tónlist innblásna af þjóðlögum, og lífga þannig upp á fallega sumardaga í Reykjavíkurborg
The Eyja String Quartet consists of the violinists Sara Karín Kristinsdóttir and Elísabet Anna Dudziak, the violist Diljá Finnsdóttir and the cellist Ágústa Bergrós Jakobsdóttir They all met during their studies at the Iceland University of the Arts This summer they will perform both beautiful folk songs and music influenced from folk songs. Their program is intended for all ages and their goal is to entertain and enrich the beautiful summer days in Reykjavík
@eyjaquartet
Njótum hverrar árstíðar er tónlistarverkefni píanóleikarans Kjartans Ragnars Kjartanssonar, en hann er að ljúka við fyrsta ár í Menntaskóla í tónlist hjá Svönu Víkingsdóttur. Verkefnið gengur út á að spila misþekkt verk á píanó til að kynna fyrir fólki nýja heima tónlistarinnar en á sama tíma spila aðgengilega tónlist Þó verður lögð áhersla á lög sem fólk þekkir vel, svo sem íslensk dægurlög, og fjölbreytta klassíska tónlist Til að hjálpa áheyrendum við túlkun og skynjun tónlistarinnar munu lögin sem flutt verða vera flokkuð eftir árstíðum. Haldnir verða litlir stofutónleikar á elliheimilum, leikskólum og fleiri slíkum stöðum í þeim dúr
Enjoying Every Season is the musical project of pianist Kjartan Ragnar Kjartansson, who just finished his first year at the music school Menntaskóli í Tónlist studying under Svana Víkingsdóttir The project consists of playing both known and lesser known pieces on the piano to introduce the audience to new worlds of music, while at the same time, playing accessible music There will, however, be an emphasis on recognizable songs, such as popular Icelandic songs, and diverse classical music To aid the audience in interpreting the music, the songs performed will be grouped by the different seasons of the year Cozy informal concerts will be held in retirement homes, kindergartens and similar places.
@kjartanragnar @njotumhverrararstidar
Félagarnir Gunnar Karl Thoroddsen og Ingvar Steinn Ingólfsson skipa Kort í sól þar sem þeir láta æskudraum sinn rætast og hanna listræn borgarkort með óhefðbundnum upplýsingum Kortin verða með ólík þemu sem gætu t d verið styttur bæjarins, sögur úr sundlaugunum, götur sem byrja á stafnum R eða eitthvað í þeim dúr Gunnar sér um hönnunina á kortunum og Ingvar er textasmiðurinn. Þeir sameina krafta sína til að skapa einstök og áhugaverð kort borgarbúum til gagns og gamans
Lifelong friends Gunnar Karl Thoroddsen and Ingvar Steinn Ingólfsson are bringing their childhood dream to life with Kort í sól (Map in sun), designing artistic city maps infused with unconventional information Their maps are designed to be interesting, fun, and experimental Each map features a different theme, such as the town's statues, stories from the swimming pools, streets starting with the letter R or something in that direction Gunnar handles the design of the maps, while Ingvar writes the accompanying text Together, they create one-of-a-kind maps for the enjoyment of both residents and visitors of Reykjavík
@kort.i.sol
Kort í sól
Gunnar Freyr Ragnarsson vinnur að ljósmyndaseríu sem segir sögu Listhópa & Götuleikhúss Hins Hússins og mannlífið í kringum þau Markmiðið er að nýta ljósmyndir til að kynna skapandi og skemmtilegt starf ungs fólks Í lok sumars verður hægt að sjá verkið í heild sem ljósmyndabók en einnig á ljósmyndasýningu, í gallerí Hins Hússins, september 2024.
Gunnar Freyr Ragnarsson is creating a photography series that will narrate the story of The Creative Summer Groups and Street Theater of Hitt Húsið, as well as capturing the human life surrounding them The aim is to highlight the creative and enjoyable work of young people through photography. The complete work will be showcased in a photo book and a photo exhibition at Hitt Húsið Gallery at the end of the summer
@Gunnar Ragnarsson http://gragnarsson.com
Þjóðsögur í Brúðuham er verkefni sem Marta Björk Atladóttir ætlar að vinna að í sumar Marta er stop motion animator og brúðusmiður sem útskrifaðist seinasta sumar úr grunnámi í teiknimyndagerð við Listaháskólann í Leeds Verkefnið gengur út á að vekja til lífs persónur, álfa og tröll úr íslenskum þjóðsögum og ævintýrum í formi stop motion örmyndbanda Við búum í dimmu og köldu landi þar sem ljós var af skornum skammti fyrr á tímum Þá gat hver skuggi verið ill vætt, hvert hljóð verið afturganga og hvert óþekkt barn umskiptingur. Þjóðsögurnar innihalda myndir sem brúðusmíði vekur til lífs og gerir áþreifanlegar
Þjóðsögur í Brúðuham, or Folktales in Puppet form, is a project produced by Marta Björk Atladóttir, a stop motion animator and puppet maker, who graduated last summer from Leeds Arts University with a degree in animation During the project she will bring to life the people, elves and trolls from the Icelandic folktales in the form of short stop motion videos Iceland is a dark and cold country where light was in short supply. Every shadow could be an evil being, every sound a ghost and every naughty child a changeling The folktales contain scenes that puppetmaking can bring to life and make tangible
@m art emis
www.martabjork.uk
Spíra er tónlistarverkefni Hafrúnar Birnu Björnsdóttur, sem lauk B Mus í víóluleik frá Listaháskóla Íslands nú í vor Í sumar mun Spíra kynna víóluna fyrir almenningi með flutningi á frumsamdri spunatónlist. Við flutninginn notast hún við looper pedal sem gerir henni kleift að vefa saman ólík hljóð víólunnar Spíra mun flytja tónlist sína á mismunandi stöðum borgarinnar og leyfir umhverfinu að hafa áhrif á stefnu tónlistarinnar
Spíra is the music project of Hafrún Birna Björnsdóttir She graduated with a B Mus in viola performance from the Iceland University of the Arts in the spring of 2024. This summer, Spíra will introduce the viola to the public with original improvised music She uses a looper pedal during her performance that allows her to weave together the different sounds of the viola Spíra will perform her music in different parts of Reykjavík with the idea of letting the environment directly influence the music.
@haf.viola @spiraviola
Tónlistartvíeykið Sómadrengir samanstendur af vinunum Jökli Jónssyni og Elíott Þorsteinssyni sem munu gæða borgina lífi með undurfögrum tónum í sumar Báðir eru þeir sprenglærðir á sín hljóðfæri en Elíott er gítarleikari og Jökull hljómborðsleikari. Þó spila þeir á fleiri hljóðfæri og munu nýta sér það Auk þess að gefa tónlistina út á streymisveitum munu þeir líka flytja hana á tónleikum svo vegfarendur geti notið góðs af Sómadrengir verða landi og þjóð til sóma "
The musical duo Fine Fellows consists of friends Jökull Jónsson and Elíott Þorsteinsson, who will enliven the city with their beautiful songs. Both are highly skilled musicians, with Elíott playing guitar and Jökull playing keyboards, although they play more instuments In addition to releasing their music on streaming services, they will also hold concerts, allowing passersby to enjoy it Fine Fellows will be very fine "
@somadrengir
@somadrengir
Lyklar og Strengir er píanó- og gítartvíleikur leikinn af Vigdísi Erlu Davíðsdóttur píanóleikara og Hildi Luo Káradóttir gítarleikara Markmið þeirra í sumar er að kynna allskyns tónlist fyrir fólki og dreifa gleði með tónlist sinni sem víðast um borgina. Tónlist af ýmsum toga verður flutt og munu þær spila saman og sitt í hvoru lagi Þær stunda báðar nám við Menntaskólann í Tónlist (MÍT) og eru á framhaldsstigi í náminu á sínum hljóðfærum Þær vonast til að geta glatt sem flesta borgarbúa með hljóðfæraleik sínum út um borg og bý í sumar
Keys and Strings is a piano and guitar duo that consists of the musicians Vigdís Erla Davíðsdóttir, pianist, and Hildur Luo Káradóttir, classical guitarist. The duo‘s goal is to introduce different kinds of music and spread joy with music in various places in the city They will play both as a duo and solo They study in Menntaskólinn í Tónlist (MÍT) and are both at an advanced level on their instruments They hope to be able to spread happiness to as many citizens as possible with their musical performance throughout the city this summer.
@Lyklar og strengir
KÖNNUN Á SNERTIFLÖTUM SKÖPUNARKRAFTS OG ANDSPYRNU
Frá vefstað er textílverk Svanhildar Irmudóttur. Hún var við skiptinám við ENSAD (École Nationale Supérieure des Arts Décoratifs) í París á vormisseri 2024 og lýkur BA námi sínu í textílhönnunn við Designskolen Kolding að ári Svanhildur mun skapa textílverk sem samanstendur af tveimur veggteppum Gerð verður tilraun til að skoða samstæður milli andófs og sköpunarkrafts og spurt hvort þar megi finna andsvar við sinnuleysi í samtímanum. Markmiðið er að opna heim sköpunar með því að gefa innsýn í vinnsluferli textílverka Gengið er út frá því að gangast þarf við ákveðinni óvissu til að skapa nýtt verk og þá um leið nýjan veruleika
‘From the Loom’ is a textile work by Svanhildur Irmudóttir She participated in an exchange program at ENSAD (École Nationale Supérieure des Arts Décoratifs) in Paris during the spring semester of 2024 and she will complete her BA in textile design at Designskolen Kolding next year Svanhildur will create a textile piece consisting of two tapestries This work will explore the connections between resistance and creativity and investigate whether an answer to contemporary apathy can be found in these intersections The goal is to demystify the world of creation by providing insight into the process of textile work. Creating a new piece and, simultaneously, a new reality requires embracing a certain level of uncertainty
@vefstadur
Götuleikhúsið er orðið vel þekkt á meðal fólks í borginni og hefur skapað sér sérstöðu með metnaðarfullum og myndrænum uppákomum á hverju sumri, frá árinu 1994. Síðan þá hefur leikhúsið fóstrað stóran hóp af ungu fólki sem mörg hver starfa í dag sem þekktir listamenn á ýmsum sviðum Á hverju sumri býðst ungmennum á aldrinum 17 til 25 ára að sækja um að starfa með Götuleikhúsinu
Í sumar mun hópurinn glæða götur og torg borgarinnar lífi og brjóta upp hversdaginn með óvæntum uppákomum sem gleðja, vekja til umhugsunar og hrista upp í áhorfendum Ekki missa af Götuleikhúsinu í miðbænum í sumar!
The Street Theatre is well known to many people and has created unique, ambitious and picturesque events every summer since 1994 Over the years, it has nurtured many young people that have later become well known artists. Every summer, people from 17 - 25 years of age get the opportunity to apply to work with the group
Hitt Húsið Street Theatre will transform the streets and squares of Reykjavík into vibrant and lively places this summer It will emerge with surprising happenings that will cheer the audience and kindle excitement
Leikstjóri:MagnúsThorlaciusBúningahönnuður:HuldaKristínHauksdóttir
Götuleikarar:ÁstaFanneyPétursdóttir,DagnýLiljaBaldvinsdóttir,IðaÓskGunnarsdóttir,LáraStefaníaGuðnadóttir, MatthildurSteinbergsdóttir,ÓðinnMániGunnarsson,SnorriRafnFrímannsson,SærúnElmaJakobsdóttir, ÞórÁstþórsson
FÖSTUDAGS FIÐRILDI - FANTASTIC FRIDAY
07. júní - Miðborg - City Center 12:00 - 14:00
28. júní - Miðborg - City Center 12:00 - 14:00
17. JÚNÍ - INDEPENDENCE DAY
17. júní - Miðborg - City Center 14:00 - 16:00
VÆNGJASLÁTTUR - FINAL FESTIVAL
11. júlí - Miðborg - City Center 16:00 - 18:00
www.hitthusid.is