Æskan og Skógurinn, Umbrot eftir Tjörva Valsson

Page 57

ÓVINIR SKÓGARINS Eftir vikudvöl í Hallormsstaðaskógi getur ekki hjá því farið að við höfum komið í Atlavík. Við skulum skreppa þangað enn einu sinni áður en við höldum burt frá Hallormsstað. Atlavík er lítil vík innarlega í Hallormsstaðaskógi upp frá Lagarfljóti. Tær lækur liðast niður víkina um sléttar grundir grasi grónar, vaxnar kjarri hér og þar. Til beggja handa eru háir, skógivaxnir ásar. Víða sér í nakta hamraveggi sem teygja sig fram að fljótinu, mynda víkina og veita henni skjól. Atlavíkur er getið í Landnámu og Droplaugarsonasögu og segir þar að Graut-Atli hafi num­ið þarna land og búið í Atla­vík. Enginn veit nú lengur hvenær byggð lagðist þarna niður. Síðan Hallormsstaðaskógur var friðaður hefur Atla­ vík orðið fjöl­sóttur ferða­manna­­staður, því að lands­lagið er fagurt og ein­kennilegt. Tjald­stæði eru þarna mörg og góð. Á sumrin er Atlavík vin­sælasti samkomu­staður Aust­firðinga. Í þetta sinn förum við til Atlavíkur til að gerast sjálf­ boða­­liðar og hreinsa til eftir síðustu sam­komu. Það er allmikið verk; tölum ekki um í hverju það er fólgið. Hitt er nóg að sjá verksummerki. Getur það verið að til séu

55


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Æskan og Skógurinn, Umbrot eftir Tjörva Valsson by Tækniskólinn - Issuu